Farice tapaði 475 þúsund evrum í fyrra, eða sem nemur um 69 milljónum króna, samanborið við 4 milljóna evra hagnað árið áður. Viðsnúningur milli ára skýrist af 5,2 milljóna evra eða 752 milljóna tekjuskattsinneign árið 2024. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði jókst milli ára og nam 8,1 milljón evra, eða um 1.152 milljónum króna. Helstu skýringar á tekju- og EBITDA vexti eru samkvæmt ársreikningi aukin eftirspurn frá gagnaversviðskiptavinum. Greint var frá því skömmu fyrir áramót að ákveðið hafi verið að sameina Farice ehf., Öryggisfjarskipti ehf. og tæknihluta Neyðarlínunnar ohf. Hlutafé var lækkað um 7,8 milljónir evra á árinu en Ríkissjóður Íslands á allt hlutafé félagsins. Lykiltölur / Farice ehf. 2025 2024 Tekjur 2.328 2.165 Eigið fé 10.298 10.135 Eignir 13.070 14.011 Afkoma -69 591 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .