Innflutnings- og heildverslunin Garri hagnaðist um 650 milljónir króna í fyrra, samanborið við 584 milljónir árið 2024. Tekjur námu 10 milljörðum króna, sem var 5,7% aukning frá fyrra ári. Í skýrslu stjórnar segir að ytri aðstæður hafi áfram verið krefjandi,t.d. vegna verðbólgu og hás vaxtastigs auk stríðsátaka, en félagið hafi sýnt fram á góða aðlögunarhæfni. Stjórn leggur til að 150 milljónir verði greiddar í arð. Lykiltölur / Garri ehf. 2025 2024 Tekjur 10.005 9.464 Eigið fé 1.419 884 Eignir 2.700 2.637 Afkoma 650 584 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .