Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.5.2026 | 16:30 Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Það vakti mikla athygli þegar þegar Snorri Másson spurði út í flöggun hinsegin fánans á Alþingi í síðasta mánuði. Samsett mynd/Anton Brink/Karítas/Unsplash Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sigurjón ráðinn sveitarstjóri Nýr meirihluti í Dalvíkurbyggð Magnús nýr sveitarstjóri í Skagafirði Kerfisflokkarnir standi þétt saman Breytingar boðaðar í borginni » Fleiri tengdar fréttir Ara Edwald, oddvita Miðflokksins í Reykjavík, liggur ekkert á að svara boði Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að taka við stjórnarformennsku hjá Orkuveitu Reykjavíkur. „Það stendur ekkert til að svara því um hæl og það er eitthvað í það að ég svari einhverju um það,“ segir Ari í samtali við mbl.is. Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum og gat myndað tveggja flokka meirihluta með Miðflokki. Að lokum ákvað flokkurinn þó að mynda þriggja flokka meirihluta með Framsóknarflokki og Viðreisn. Frétt af mbl.is „Það verður ekkert hik á okkur“ Illa gengið að mynda meirihluta Miðflokkurinn sótti í sig veðrið víða um land og náði inn sveitarstjórnarmönnum í mörgum sveitarfélögum. Þrátt fyrir góðan árangur tókst flokknum aðeins að mynda meirihluta í einu sveitarfélagi, Reykjanesbæ. „Ég er ekki með neina sérstaka kenningu um af hverju það sé, stundum spilast bara misjafnlega úr hlutunum,“ segir Ari. „Ég held að þetta hafi verið mjög góður meirihluti sem menn ná að mynda þarna í Reykjanesbæ og ég held að það hefði verið betra fyrir kjósendur og fyrir sveitarfélögin ef Miðflokkurinn hefði verið hafður með víðar.“ Þá segir hann dauðafæri hafa verið í Reykjavík til að mynda öflugan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Frétt af mbl.is Kerfisflokkarnir standi þétt saman Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri kynnti nýjan meirihluta með Framsóknarflokki og Viðreisn í Viðey eftir stórsigur í kosningum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Fánamál Snorra vakti athygli Í aðdraganda kosninga vakti það mikla athygli þegar Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, spurði út í flöggun hinsegin fánans við skóla og stofnanir í ræðustól Alþingis. Þar spurði hann hvort það væri ekki eitthvað „bogið við hugmyndafræðilegar áherslur í skólakerfinu“. Heldurðu að fánamál Snorra hafi vegið þungt í meirihlutamyndunum víðs vegar á landinu? „Nei, það held ég ekki, ekki þegar upp er staðið,“ segir Ari. Frétt af mbl.is Hinsegin fáninn ekki áróður að mati yfirkjörstjórnar Ari telur fánamál Snorra ekki hafa verið banabiti flokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Langt á milli minnihlutaflokkanna Hann segir langt vera á milli flokkanna sem mynda nýjan minnihluta í borginni en það eru Miðflokkur, Samfylking, Vinstrið og Sósíalistar. „Já, það blasir við að það er langt á milli þessara flokka og ef þú skoðar áherslurnar í kosningabaráttunni er augljóslega styst á milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.“ Það er til dæmis töluvert lengra frá Sjálfstæðisflokknum yfir í Viðreisn heldur en yfir í Miðflokkinn. Viðreisn hélt sig við vinstri áherslurnar sem höfðu verið við lýði undanfarin misseri í vinstri meirihlutanum, sem auðvitað Viðreisn bar ábyrgð á síðustu tvö kjörtímabil.“ Hann segir það augljóst að einhverjir flokkar hafi þurft að skipta um stefnu strax eftir kosningar. Það sé þó ekki í hans höndum að túlka hvort það sé Sjálfstæðisflokkurinn eða einhver annar. Frétt af mbl.is Silja Sóley: Klókt hjá Hildi að útiloka Miðflokkinn Sanna Magdalena Mörtudóttir er oddviti Vinstrisins í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hefur aðeins leitt til hörmungar fyrir þjóðir Hann segir pólitík Vinstrisins og Sósíalista vera „grjótharða frá ysta vinstrinu“. „Þau eru að halda fram kenningum sem allir vita að eru margreyndar. Eins og gríðarlega mikil innvistun og opinber rekstur á sviði verktaka- og byggingarstarfsemi eða rekstri matvælaverslana í samkeppni við hefðbundnar matvælaverslanir og slíkt.“ Hann ítrekar að stjórnmálakenning flokkanna sé margreynd og hafi aldrei leitt neitt. „Allir vita að þetta hefur ekki leitt til neins nema hörmunga fyrir þjóðir, þannig að maður var í sjálfu sér hissa á að slík sjónarmið væru yfirleitt á ferðinni í kosningabaráttu á Íslandi árið 2026.“ Að lokum segir hann að þó að flokkurinn hafi náð góðum árangri víðs vegar á landinu sé alltaf gott að líta í eigin barm og skoða hvað gera mætti betur. Frétt af mbl.is Gagnrýnir ný áform meirihlutans Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sigurjón ráðinn sveitarstjóri Nýr meirihluti í Dalvíkurbyggð Magnús nýr sveitarstjóri í Skagafirði Kerfisflokkarnir standi þétt saman Breytingar boðaðar í borginni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fleiri gætu sloppið við lyfjameðferð Liðsstyrkur í Breiðholtið Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt París SG - Arsenal, staðan er 0:1 Hélt í febrúar að verðbólgan væri að fara í 2% Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Lét teikna hagkvæmari íbúðir Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Óræð niðurstaða um krónu og evru Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Leyniherbergi í Alþingishúsinu Miðill læknaði hann af kviðsliti Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Fleiri gætu sloppið við lyfjameðferð Liðsstyrkur í Breiðholtið Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt París SG - Arsenal, staðan er 0:1 Hélt í febrúar að verðbólgan væri að fara í 2% Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Reynum að fanga sál Evrópu Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Leyniherbergi í Alþingishúsinu Miðill læknaði hann af kviðsliti Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article