Innlent | mbl | 10.3.2026 | 14:25 Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið » Fleiri tengdar fréttir „Ég hef sagt að ég tel að þjóðinni sé vel treystandi til að komast að réttri niðurstöðu í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu þótt spurningin sé sannarlega villandi. En þessari ríkisstjórn, eins og stjórnarsamstarfið stendur, er ekki treystandi til að leiða þetta verkefni.“ Þetta sagði þingmaður Miðflokksins, Snorri Másson, á Alþingi fyrr í dag undir fundarliðnum störf þingsins. Í máli sínu benti Snorri á að þær fregnir hefðu borist í gær að svo virtist sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra myndi ekki taka þátt í umræðum um ESB-tillöguna varðandi að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Benti hann aukinheldur á að Kristrún hefði verið fjarverandi í Silfrinu á Ríkisútvarpinu í gærkvöldi, sem og Inga Sæland, þar sem tillagan var rædd meðal formanna allra hinna þingflokkanna. Frétt af mbl.is Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hafði samúð með Þorgerði „Inga er í útlöndum, ég býst við að það sé heppileg tímasetning fyrir hana. En Kristrún Frostadóttir er á Íslandi og hún var í þinginu fyrr um daginn og var í þættinum sögð ekki hafa þorað í Silfrið, sem staðgengill hennar neitaði ekki fyrir. Allt um það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ein send og við það að horfa á hana komu upp einkum tvær tilfinningar; annars vegar var það samúð, að það var sannast sagna átakanlegt að horfa á Þorgerði Katrínu skilda eina eftir á móti öllum að tala fyrir þessari vondu hugmynd. Þessi tilfinning er e.t.v. lýsandi fyrir eina sviðsmynd í málinu; þrautagönguna hér fram undan, ef af aðildarumsókn verður, að Viðreisn verði áfram ein og yfirgefin að tala af veikum mætti fyrir þessu máli í þverklofinni ríkisstjórn, sem er að öðru leyti logandi hrædd við að tjá sig um málið, fyrir utan e.t.v. nokkra óhlýðna aukaleikara í Samfylkingunni. Hins vegar var það tilfinningin sem er hin sviðsmyndin í málinu, þ.e. þessi óþægilegi grunur um það sem gerist næst, að í því tómarúmi sem þögn forsætisráðherra skilur eftir sig stígi fram nýr náttúrulegur leiðtogi þessarar ríkisstjórnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hæstv. utanríkisráðherra, með það eitt að markmiði að koma Íslandi í Evrópusambandið,“ sagði þingmaðurinn. Frétt af mbl.is Beint: Umræður um ESB-tillöguna halda áfram Ríkisstjórninni ekki treystandi Sagði Snorri næst að hann teldi að þjóðinni væri vel treystandi til að komast að réttri niðurstöðu í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórninni, eins og stjórnarsamstarfið standi, væri hins vegar ekki treystandi til að leiða það verkefni. „Það er kannski það eina jákvæða við daginn í gær að þetta kom í ljós strax á fyrsta degi.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Logi verðlaunaður í Tyrklandi Þorgerður heldur til Washington „Snædís hefur æft gríðarlega vel fyrir Bocuse d’Or“ Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Telja sig vita orsök stórbrunans Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sá handtekni starfsmaður verktaka Hart sótt að Kristrúnu Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Fékk nótina í skrúfuna Vilja lengja Hringveginn og teygja yfir Vestfirði Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Logi verðlaunaður í Tyrklandi Þorgerður heldur til Washington „Snædís hefur æft gríðarlega vel fyrir Bocuse d’Or“ Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Telja sig vita orsök stórbrunans Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja sig vita orsök stórbrunans Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Fékk nótina í skrúfuna Vilja lengja Hringveginn og teygja yfir Vestfirði Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar