Innlent | mbl | 11.6.2026 | 15:24 Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fóru yfir ESB-málið á þingi í dag. Samsett mynd/mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Fara fram á þingstubb í ágúst Hefur ekkert með ESB að gera Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Sendiráðið bregst við brigslunum Samkeppnishæfni meiri en innan ESB » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Samkomulag á lokametrunum Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 „Allur er varinn góður“ Telur ólíklegt að þinglok verði á morgun Sögðu forsendur brostnar » Fleiri tengdar fréttir „Ég ítreka það sem ég hef sagt hér bæði fyrr í dag og fyrri daga, að auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum. Það liggur alveg fyrir,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þegar hún var spurð um erlend áhrif í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gerði málið að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Hann vísaði til ummæla sem Kristrún lét falla á blaðamannafundi þegar hún kynnti áform ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Hann benti á að Kristrún hefði verið spurð hvort hún hefði áhyggjur af hugsanlegum afskiptum erlendra aðila af kosningabaráttunni. „Hæstvirtur ráðherra taldi sannarlega ástæðu til að hafa áhyggjur af því og taka þyrfti hart á slíku,“ sagði Sigmundur Davíð. Innanlandsmál Kristrún kvaðst viðurkenna að hún vissi ekki sérstaklega í hvað Sigmundur Davíð væri að vitna í. „Ég stend við það sem ég sagði hér áðan að þetta er innanlandsmál, þetta er innanlandspólitík og það er innanlandsákvörðun Íslendinga að hefja þessar viðræður eða ekki og auðvitað viljum við ekki óeðlileg afskipti. Það er hins vegar munur á óeðlilegum afskiptum og málefnalegri umræðu, ég tala nú ekki um ef fólk er að óska svara frá Evrópusambandinu um einhverjar staðreyndir sem snúa að málinu, þá er ekkert óeðlilegt að svör við því komi frá sambandinu enda er það væntur aðili máls,“ sagði forsætisráðherra. Segir ESB þekkt fyrir afskipti af kosningum Sigmundur Davíð tók aftur til máls og sagði að þetta væri ágætis tækifæri til að minna á það að minni hluti utanríkismálanefndar hefði beinlínis bannað að spyrja Evrópusambandið spurninga og fá hjá því svör á þeim nótum sem Kristrún hefði verið að nefna að mætti hugsa sér. „Það sem ég er að vísa í er það sem fram hefur komið m.a. í samningsafstöðu Evrópusambandsins til þeirrar umsóknar sem nú er leitast við að endurvekja þar sem segir berum orðum að Evrópusambandið ætli sér að hafa áhrif á almenningsálitið í aðdraganda aðildarviðræðna. Það er nú þegar byrjað að láta í sér heyra varðandi aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu, þjóðaratkvæðagreiðsluna sjálfa og hvað komi út úr henni. Evrópusambandið er raunar þekkt fyrir afskipti af kosningum og innanríkismálum í aðildarlöndunum og hefur státað sig af því að hafa skipt sér af bæði þingkosningum og forsetakosningum í einum fjórum, fimm eða sex Evrópuríkjum. Spurningin stendur því. Hún er almenn að því leyti að ég bið hæstvirtan forsætisráðherra einfaldlega að svara því: Stendur það áfram, hæstvirtur ráðherra, að tilraunir Evrópusambandsins til að hafa áhrif á almenningsálitið verði ekki liðnar?“ Þjóðin veit sínu viti Kristrún ítrekaði að það lægi alveg ljóst fyrir að þetta væri innanlandsmál og að óeðlilegum afskiptum yrði mótmælt. „Ef fólk er hins vegar að leita svara við spurningum hjá Evrópusambandinu finnst mér ekki óeðlilegt að Evrópusambandið svari þeim spurningum. En í lok dags þá veit þjóðin sínu viti. Hún gerir sér alveg grein fyrir því um hvað þessi þjóðaratkvæðagreiðsla er. Þetta snýst um valkosti í þessu máli. Þetta snýst um hvort við eigum að hefja aðildarviðræður eða ekki. Þannig að ég hef ekkert meira um þetta mál að segja,“ sagði Kristrún að lokum. Tengdar fréttir Ísland og ESB Fara fram á þingstubb í ágúst Hefur ekkert með ESB að gera Ítrekar gagnrýnina: „algjörlega ótímabær“ Sendiráðið bregst við brigslunum Samkeppnishæfni meiri en innan ESB » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Samkomulag á lokametrunum Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 „Allur er varinn góður“ Telur ólíklegt að þinglok verði á morgun Sögðu forsendur brostnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þróttarar á miklu skriði „Þessi samningur á sér óvini“ Trúlofuð í fjórða sinn með fokdýran hring Kanada bíður enn eftir fyrsta sigrinum á HM Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Íhuguðu að kasta sér fram af brú Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Réðst á dreng í sundi Sex flugferðum aflýst í dag Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Þróttarar á miklu skriði „Þessi samningur á sér óvini“ Trúlofuð í fjórða sinn með fokdýran hring Kanada bíður enn eftir fyrsta sigrinum á HM Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Verðbólga á sterum frá 2023 Musk fyrsti billjónamæringur sögunnar Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Sex flugferðum aflýst í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Réðst á dreng í sundi Sex flugferðum aflýst í dag Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna