Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Slot rekinn frá Liverpool

  • What: Manager of Liverpool football club was fired
  • Impact: Sports team management change
Read Full Article →

Arne Slot var í dag rekinn sem knattspyrnustjóri Liverpool. Hollendingurinn tók við Liverpool vorið 2024 af Þjóðverjanum Jürgen Klopp. Slot gerði Liverpool að Englandsmeisturum strax á sinni fyrstu leiktíð. Það gekk hins vegar langt frá því jafn vel á nýafstaðinni leiktíð og lítill stöðugleiki náðist eftir miklar breytingar á leikmannahópnum milli tímabila. Kergja stuðningsmanna Liverpool jókst og Slot virtist ekki hafa mikið traust hvorki í leikmannahópnum né meðal stuðningsmanna. Liverpool endaði titilvörn sína með því að enda í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og lék ekki til úrslita um neina titla. Í dag sendi Liverpool svo frá sér tilkynningu þess efnis að Slot hefði verið sagt upp störfum, honum þakkað fyrir hans framlag við að sækja Englandsmeistaratitilinn í fyrra og á erfiðum tímum við andlát Diogos Jota leikmanns liðsins síðasta sumar. Þá er Slot óskað velfarnaðar í framtíðinni. Ekkert kemur fram hver tekur Liverpool af Slot, en líklegt verður að teljast að leit af eftirmanni hans sé kominn eitthvað á veg.

Share this article