Donald Trump tilkynnti rétt í þessu að hafnbanni Bandaríkjanna gegn Íran verði aflétt sem væri risastórt skref í þá í átt að því að binda enda á stríðið. Í færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, sagði forseti Bandaríkjanna að skip sem hafa setið föst í Hormússundi „gætu nú hafið undirbúning að sigla heim á leið!“ Bandaríkin settu hafnbannið á 13. apríl eftir að íranski herinn lokaði í reynd sundinu, sem áður var flutningsleið fyrir um fimmtung allrar olíu heims, fyrir alþjóðlegri skipaumferð. Trump fullyrti einnig að auðgað úran Írans, sem hefur verið helsta ágreiningsefnið við að ná varanlegu friðarsamkomulagi, yrði fjarlægt af Bandaríkjunum og eytt með samstarfi íranskra stjórnvalda. Fyrr á föstudag varaði helsti samningamaður Írans hins vegar við því að „kjarnorkuryk“ landsins, sem Bandaríkin halda fram að sé ætlað til smíði kjarnorkuvopns, yrði aldrei flutt úr landi. „Ég mun nú funda í neyðarstjórnarmiðstöðinni (Situation Room) til að taka endanlega ákvörðun,“ sagði Trump. Færsla Donald Trump á samfélagsvef hans: Íranir verða að samþykkja að þeir muni aldrei eignast kjarnorkuvopn eða kjarnorkusprengju. Hormússund verður að vera opnað tafarlaust, án gjaldtöku, fyrir óhefta skipaumferð í báðar áttir. Öll tundurdufl, ef einhver eru, verða fjarlægð (við höfum eytt fjölmörgum slíkum með okkar frábæru skipum. Íran mun ljúka tafarlausri fjarlægingu og/eða eyðingu allra tundurdufla sem eftir kunna að vera, og þau verða ekki mörg!). Skip sem hafa setið föst í sundinu vegna ótrúlegs og fordæmalauss hafnbanns sjóhers okkar, sem nú verður aflétt, geta hafið undirbúining við að „halda heim á leið!“ Segið eiginkonum ykkar, eiginmönnum, foreldrum og fjölskyldum HALLÓ frá mér, uppáhaldsforseta ykkar! Auðgaða efnið, sem stundum er nefnt „kjarnorkuryk“ (Nuclear Dust), og er grafið djúpt neðanjarðar undir fjöllum sem hafa nánast hrunið vegna öflugrar árásar B-2 sprengjuvéla okkar fyrir 11 mánuðum, sem nú liggja ofan á því, verður grafið upp af Bandaríkjunum (sem samkvæmt samkomulagi eru eina landið, ásamt Kína, sem hefur tæknilega getu til þess!), í nánu samstarfi og samráði við Íslamska lýðveldið Íran og Alþjóðakjarnorkumálastofnunina (IAEA), og EYTT. Engir fjármunir munu skipta um hendur þar til annað verður ákveðið. Samkomulag hefur einnig náðst um önnur atriði sem skipta mun minna máli. Ég mun nú funda í Situation Room (neyðarstjórnarmiðstöð Hvíta hússins) til að taka endanlega ákvörðun. Takk fyrir athygli ykkar á þessu máli! DONALD J. TRUMP forseti