Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin „muni fái greitt fyrir að standa vörð“ um Hormússundið“. Hann segir í viðtali við Fox News að Bandaríkin stefni á að innheimta verndargjald upp á 20% á allan farm sem fer um sundið. Forsetinn bætti jafnframt við í færslu á Truth Social að Bandaríkin ætli að taka í gildi herkví á ný, sem stöðvi umferð skipa á vegum Írans eða viðskiptavina þeirra. „Við ætlum að halda sundinu opnu og líklega stjórna því,“ sagði Trump við Fox News. „Við verðum verndari sundsins - kannski köllum við okkur verndarengil sundsins. Og við eigum að fá bætur fyrir það.“ Áður en átökin hófust í lok febrúar fór um fimmtungur af flutningum með olíu og fljótandi jarðgas um Hormússund. „Það er ekki hægt að ætlast til þess að við gerum þetta endurgjaldslaust, eins og við höfum gert í mörg ár,“ sagði Trump. „Við stóðum vörð um [sundið] þess án þess að fá greitt, en nú ætlum við verja það og fá greitt fyrir. Mikla peninga.“ Bandaríkin og Íran hafa skipst á loftárásum undanfarna daga, sem hafa dregið verulega úr líkum á friðarsamkomulagi. Trump sagði á miðvikudaginn síðasta að vopnahlé milli ríkjanna væri lokið. Trump birti meðfylgjandi færslu um tvöleytið í dag. Frá því að stríðið í Íran hófst í lok febrúar hafa írönsk stjórnvöld gefið til kynna að þau hyggist innheimta gjöld af skipum sem sigla um Hormússundið, en Bandaríkin hafa ávallt hafnað því að slíkt fyrirkomulag standi til boða. Tímabundna vopnahléið sem Bandaríkin og Íran sömdu um fyrir mánuði síðan var háð því að írönsk stjórnvöld mættu ekki leggja nein gjöld á flutningaskip sem færu um sundið.