Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 13 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Mynd úr safni af Margréti Þórhildi. EPA Margrét Þórhildur, fyrrverandi Danadrottning, er útskrifuð af sjúkrahúsi. Hún var lögð inn á mánudag vegna blóðsöfnunar í mjöðm í kjölfar falls. Það var í annað sinn á tveimur vikum sem hún var lögð inn á sjúkrahús. Í fréttatilkynningu frá dönsku konungshöllinni segir að Margrét sé á heimleið til Fredensborg-hallarinnar frá Ríkisspítalanum Samkvæmt frétt DR var Margréti ráðlagt að taka því rólega næstu daga. Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Sauðfé í skjól undan éljagangi og kornbændur vona að ekki frysti Hálka, snjóþekja eða krapi er á fjallvegum austanlands og gul viðvörun í gildi fram á kvöld. Bændur í kornrækt segjast vongóðir um að uppskeran sleppi, hretið sé ekki eins slæmt og í fyrra. Fyrir 28 mínútumÍÞRÓTTIR Íþróttir Búið að opna tilboð og allt á áætlun með Þjóðarhöll Samningaviðræður standa nú yfir um byggingu Þjóðarhallar eftir að tilboð í verkið voru opnuð. Þrátt fyrir tafir segir fjármálaráðherra að áætlaður tímarammi verkefnisins standi enn. Ný höll er forsenda þess að Ísland geti haldið HM í handbolta 2031. Fyrir 40 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB – „Þetta er vissulega áskorun“ Landsmenn greiða atkvæði í lok ágúst um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að ESB. Landskjörstjórn gefur út kynningarefni í aðdraganda kosninga þar sem gera á grein fyrir ríkjandi sjónarmiðum á hlutlausan hátt. Fyrir 44 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar „Langþráður sigur“ Réttargæslumaður konu sem var beitt grófu og ítrekuðu kynferðisofbeldi af bróður sínum í barnæsku er ósátt við að refsingin hafi verið skilorðsbundin. Lögregla felldi rannsókn málsins niður á sínum tíma og bróðirinn var sýknaður í héraði. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Fimm drengileg dægurlög á föstudegi Það sem sameinar lög vikunnar að þessu sinni er sennilega ákveðinn kæruleysislegur hráleiki laganna sem eru frá The Avalanches, Lime Garden, In Color, Blondshell og Westside Cowboy. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Aðalræðismaður Rússlands rekinn heim frá Rúmeníu Rúmenar hafa lokað aðalræðisskrifstofu Rússlands og kallað sendiherra landsins á teppið eftir að rússneskur dróni lenti á íbúðarhúsi og særði tvo. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Mikið undir í leikjum kvöldsins Mikið er í húfi í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar níunda umferðin hefst með tveimur leikjum. FH tekur á móti ÍA og Fram fær Breiðablik í heimsókn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýr meirihluti Byggðalista og Sjálfstæðisflokks í Skagafirði Siguróli Magni Sigurðsson Sjálfstæðisflokkur og Byggðalisti skrifuðu í dag undir meirihlutasamkomulag í Skagafirði. Viðræður flokkanna á milli hafa staðið yfir síðan skömmu eftir kosningar. Töluverðar breytingar eru í farvatninu í Skagafirði en í fyrsta sinn í 24 ár er Framsóknarflokkurinn ekki í meirihluta. Magnús Barðdal, oddviti Sjálfstæðismanna, verður nýr sveitarstjóri í Skagafirði og tekur við af Sigfúsi Inga Sigfússyni sem hefur verið sveitarstjóri síðan 2018. Að sögn Eyþórs Fannars Sveinssonar, oddvita Byggðalistans, gengu viðræðurnar vel milli flokkanna og ákváðu þeir að gefa sér góðan tíma og vanda til verka. Sauðárkrókur er í Skagafirði RÚV / Björgvin Kolbeinsson Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ætla að „reifa allt í drasl“ í Höllinni um helgina Það er allt á fljúgandi siglingu hjá GusGus þessa dagana, ný plata væntanleg og risatónleikar í Laugardalshöll um helgina. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Inga Sæland í veikindaleyfi Mennta- og barnamálaráðherra er farin í tímabundið veikindaleyfi. Félags- og húsnæðismálaráðherra gegnir hennar störfum á meðan. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Andlát Aðalsteinn Bergdal látinn Aðalsteinn Bergdal leikari er látinn, 76 ára að aldri. Hann lék í vel á annað hundrað leiksýningum hjá atvinnuleikhúsunum, leikstýrði fjölda verka áhugaleikfélaga, talsetti um 600 teiknimyndir og framleiddi barnaefni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kanna sameiningu tveggja lífeyrissjóða Brynjólfur Þór Guðmundsson Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna - Lífsverks lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um hugsanlega sameiningu sjóðanna. Saman yrðu þeir fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með eignir upp á 1.035 milljarða króna. Kanna á hvort sameining sjóðanna myndi skapa sterkari grunn fyrir hagstæð og trygg lífeyrisréttindi beggja sjóða, bæta þjónustu og hafa samlegðaráhrif sem bæta rekstur, að því er fram kemur í tilkynningu um viðræðurnar. Þær eru á frumstigi en þeim á að ljúka fyrir mitt sumar. Rætt hefur verið við fjármála- og efnahagsráðuneytið sem þarf að staðfesta samrunann ef af verður. Eignir sjóðanna námu 1.035 milljörðum um síðustu áramót. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Héraðsdómur Meiðyrðamáli foreldra Sólons vísað frá Meiðyrðamáli foreldra fyrrverandi flugmanns gegn Icelandair var vísað frá í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Lögmaður þeirra segir málinu þó hvergi lokið. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bjargað úr rússíbana eftir fjóra tíma í 30 metra hæð Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla leitar manns sem áreitti börn í Árbæ Lögregla leitar manns sem áreitti börn að leik í Árbæ í gærkvöldi. Maðurinn var með kynferðislegar athugasemdir við börnin. Lögregla hefur undir höndum myndir af honum en ekki hefur tekist að bera kennsl á hann. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Barði mann og stappaði á höfði hans Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann í átta mánaða fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og fleiri brot. Hann réðst á annan mann í íbúð í Reykjavík í febrúar 2023 og barði manninn ítrekað í höfuðið þar til hann féll í gólfið. Þá stappaði hann ítrekað á höfði mannsins sem fékk margvíslega áverka. Maðurinn var líka sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og umferðarlagabrot. Í eitt skiptið ógnaði hann manni með hníf til að hafa af honum fé. Brotin framdi maðurinn á árunum 2023 til 2025. Dómur var kveðinn upp á miðvikudag. Héraðsdómur Reykjavíkur. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Of snemmt að segja hvort eða hvenær nýtt samkomulag verður klárað Varaforseti Bandaríkjanna segir að enn eigi eftir að slípa til samkomulag við Íran um framlengingu vopnahlés. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Arkitektúr Samfélag í bleyti framlag Íslands á næsta Feneyjatvíæringi í arkitektúr Arkitektar frá Basalt arkitektum, hönnuðir frá Gagarín og Rán Flygenring snúa bökum saman og fara með íslenska baðmenningu til Feneyja á næsta ári. Samfélag í bleyti skoðar sundlaugar og baðstaði sem mikilvæga félagslega innviði. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Ekki hægt að yfirtaka kaupskip í neyðarástandi Ísland gæti orðið háð öðrum ríkjum um skipaflutninga í neyðarástandi, segir innviðaráðherra. Hann boðar breytingar á alþjóðlegri skipaskrá. Ráðuneytið kannar hvort setja eigi sérlög um heimildir ríkisins ef neyðarástand skapast. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Átta vilja stýra Hafró Brynjólfur Þór Guðmundsson Átta sóttu um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Embættið var auglýst í byrjun maí og verður skipað í það til fimm ára. Umsækjendurnir eru: Arnljótur Bjarki Bergsson sjávarútvegsfræðingur, Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri, Guðmundur Jóhann Óskarsson sviðsstjóri, Guðmundur Þórðarson samningamaður, Hrönn Egilsdóttur sviðsstjóri, Kristín Harðardóttir fiskifræðingur, Logi Einarsson verkfræðingur og Óliver Snær Stefánsson nemi. Næsti forstjóri kemur úr röðum átta umsækjenda. RÚV / Arnór Fannar Rúnarsson Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Árekstur og tafir á hringtorgi Brynjólfur Þór Guðmundsson Árekstur varð á hringtorgi við Rauðavatn í Reykjavík klukkan níu í dag. Svo virðist sem flutningabíll hafi lent á fólksbíl. Sá valt og endaði á hliðinni í hringtorginu. Sjúkraflutningamenn komu á staðinn og huguðu að ökumanni fólksbílsins. Hann verður líklega fluttur á slysadeild til skoðunar en meiðsl hans virðast ekki alvarleg. Nokkrar tafir verða af þessum sökum meðan fólksbíllinn er fjarlægður. Lögregla stýrir umferð meðan þess gerist þörf. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Gleðigangan líklega leyfð í Búdapest í ár Ungverska lögreglan segir engan grundvöll vera fyrir því að banna gleðigönguna í Búdapest í ár. Gangan var bönnuð í fyrra og tók þá metfjöldi þátt í henni, þátttakendur komu víðs vegar að, meðal annars frá Íslandi. Ný ríkisstjórn er í landinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál 2,7% hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi Verg landsframleiðsla jókst um 2,7 prósent að raunvirði fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Utanríkisviðskipti drógu hagvöxtinn áfram. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Þykir dómurinn ekki of þungur Teymisstýra Bjarkarhlíðar segir dóm yfir manni sem braut ítrekað á barnungri systur sinni ekki vera þungan í ljósi brotanna. Maðurinn var dæmdur fyrir áralöng brot sem hann framdi fyrir tveimur áratugum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Bregðast ókvæða við drónasprengingu í Rúmeníu Vestrænir ráðamenn gagnrýna Rússa eftir að dróni lenti á þaki fjölbýlishúss í Rúmeníu. Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heitir því að verja hvern þumlung af landsvæði NATO-ríkja. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Trúarbrögð Mölturiddari í 33 ár: „Ég vissi alveg hvað ég var að gera og þetta var hluti af mér“ Óperusöngvarinn Hreinn Líndal hefur verið Mölturiddari í 33 ár. Hann bjó lengi í Bandaríkjunum og kynntist Ronald Reagan vel, klæddi Vigdísi Finnbogadóttur fyrstu ár hennar í forsetatíð og hefur sinnt mannúðarstörfum af krafti. Fyr