Innlent | Morgunblaðið | 28.5.2026 | 10:30 Til marks um metnaðar- og áhugaleysi Jón Pétur segir ljóst að menntamál séu ekki metnaðarmál ríkisstjórnarinnar. mbl.is/Þórður Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Meiri niðurskurður en áður hefur sést Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu » Fleiri tengdar fréttir Jón Pétur Zimsen, varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir niðurskurðaráform ríkisstjórnarinnar á framhaldsskólastiginu til marks um metnaðar- og áhugaleysi ríkisstjórnarinnar í skólamálum. Til að ná fram sparnaði á framhaldsskólastiginu hefði Jón Pétur frekar viljað sjá meiri sérhæfingu einstakra skóla. Morgunblaðið fjallaði í gær um þau áform sem birtast í drögum að fjárhagsáætlun ríkisstjórnarinnar um að skera niður fjárframlög til framhaldsskóla um 7,1% á næstu árum. Um er að ræða meiri niðurskurð en í fyrri áætlunum og að sögn Félags framhaldsskólakennara hefur skólastigið sennilega aldrei séð meiri niðurskurð. Félagið hefur gagnrýnt áformin harðlega, sagt að þau muni gera framhaldsskólum ómögulegt að uppfylla óskir nemenda um nám sitt og bent á að skólastigið hafi þegar verið fjársvelt um árabil. Frétt af mbl.is Meiri niðurskurður en áður hefur sést Jón Pétur Zimsen alþingismaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson Algjörlega ósamrýmanlegar aðgerðir „Þessi niðurskurðaráform slá mann ekki vel. Það er ljóst að þetta mun með einhverjum hætti þurfa að bitna á skólastarfinu,“ segir Jón Pétur og bætir við að niðurskurðurinn sé sérlega óheppilegur í ljósi nýrra laga ríkisstjórnarinnar um framhaldsskóla. „Nemendahópurinn er að verða fjölbreyttari sem þýðir að það mun kosta meiri tíma og mannafla að takast á við þann fjölbreytileika. Ríkisstjórnin samþykkti nýlega frumvarp um framhaldsskólann þar sem námsárangur var gengisfelldur við inntöku í framhaldsskólann. Það þýðir að í stað þess að skólar geti sérhæft sig varðandi ákveðna hópa nemenda þá eru tilmæli um að skólar taki við miklu fjölbreyttari hópum,“ segir hann og bendir á að til að geta sinnt fjölbreyttari nemendahópum muni skólar þurfa aukin framlög. „Það sést alveg greinilega hvað gerðist í grunnskólunum þegar ekkert nýtt fjármagn fékkst með skóla án aðgreiningar. Það jók bara álagið og kennarar brunnu út. Árangur minnkaði og velferð minnkaði líka. Þannig að það skýtur verulega skökku við að þessi áform fari saman; að auka fjölbreytileikann og minnka sérhæfingu framhaldsskólanna og skera síðan niður um leið. Það er í raun aðgerð sem er bara algjörlega ósamrýmanleg.“ Frétt af mbl.is Ný lög draga úr vægi námsárangurs barna Frétt af mbl.is Afturför í menntamálum: Börnum mismunað Vill auka sérhæfingu Hann segir að nýta hefði mátt fjármagnið sem rennur til menntaskóla betur með því að auka frekar sérhæfingu einstakra framhaldsskóla. „Það hefði sjálfkrafa sparað fullt af peningum og það hefði aukið gæði framhaldsskólanna vegna þess að þá hefðum við getað nýtt samlegðaráhrif starfsmannahópsins. Þá hefðum við getað sameinað sterka starfsmenn í ákveðnum þáttum skólastarfsins og þeir hefðu getað unnið í ákveðnum skólum og tekið á málunum þar með miklu skilvirkari og ódýrari hætti.“ Frétt af mbl.is Birtingarmynd af skóla án aðgreiningar? Verulegt áhugaleysi Þá segir Jón Pétur ljóst að menntamál séu ekki metnaðarmál ríkisstjórnarinnar. „Ég held að það blasi alveg við ef þú skoðar þingmálaskrána hjá menntamálaráðherra. Þar eru ný mál teljandi á fingrum annarrar handar. Það er ekkert í gangi þarna þrátt fyrir að ráðherra tali digurbarkalega og ég styð þau áform sem hann hefur talað um. Það er ekkert sem hefur birst að neinu leyti, sérstaklega á framhaldsskólastiginu, bara óreiða og óvissa sem veldur því að stigið er allt í hálfgerðu uppnámi,“ segir hann. „Þetta er eiginlega allt á sömu bókina lært þarna hjá þeim. Það er enginn metnaður og áhugaleysið verulegt.“ Víðir Reynisson formaður allsherjar- og menntamálanefndar baðst undan viðtali um málið að svo stöddu. Hvorki náðist í Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra né Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra við vinnslu fréttarinnar. Frétt af mbl.is Boða sókn í menntamálum en skera niður á sama tíma Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Meiri niðurskurður en áður hefur sést Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Unga stjarnan fékk áminningu frá NBA Þrír særðir eftir hnífaárás á svissneskri lestarstöð ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum „Færeyjaflugið fór strax vel af stað“ Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipta bókavörðum safnsins út fyrir öryggisverði Myndbirtingin var ekki ólögmæt Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Meiri niðurskurður en áður hefur sést Mest lesið Í gær Í vikunni Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Andlát: Stefán Carlsson Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Gistu í hylki í Perú Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Þingmenn fái aðgang að trúnaðargögnum um ESB Gular viðvaranir vegna snjókomu Versluninni Air verður lokað í Kringlunni Borgarlínustöðvar boðnar út Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Unga stjarnan fékk áminningu frá NBA Þrír særðir eftir hnífaárás á svissneskri lestarstöð ESB-gögnin verða ekki kynnt almenningi Ætlar að fækka lögreglustjóraembættum „Færeyjaflugið fór strax vel af stað“ Umræðan Hræðsluáróður um staðreyndir Fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skaut tollgæsla á bifreið með barn innanborðs? Myndbirtingin var ekki ólögmæt Borgarlínustöðvar boðnar út Selenskí bað Trump um fleiri skotfæri Mest lesið Í gær Í vikunni Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Andlát: Stefán Carlsson Segja Ísland ógna útgáfufrelsi Stakk mann og sló annan með járnröri í höfuðið Gistu í hylki í Perú Kynna ný gögn í Óshlíðarmálinu fyrir lögreglu Þingmenn fái aðgang að trúnaðargögnum um ESB Gular viðvaranir vegna snjókomu Versluninni Air verður lokað í Kringlunni Borgarlínustöðvar boðnar út Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Búið er að finna konuna Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Gripinn við að sækja Fedex-sendingu í Hafnarfirði Þórarna nýr forstjóri Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Enginn mætti frá ríkisstjórninni „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“