Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Meiri niðurskurður en áður hefur sést

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.5.2026 | 17:40 Meiri niðurskurður en áður hefur sést Guðjón segir að ef þessi niðurskurður gangi eftir verði framhaldsskólum gert ókleift að uppfylla væntingar nemenda til náms. mbl.is/Kristinn Magnússon Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Óbærileg ár fram undan Taka ekki tillit til ósamræmisins „Gyrðum okkur í bók!“ » Fleiri tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Almenningur borgar skattahækkanir Skattahækkanir í fjármálaáætlun Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Mun á endanum lenda á almenningi » Fleiri tengdar fréttir Samkvæmt þingsályktunartillögu fjármála- og efnahagsráðherra um fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031 er boðaður 7,1% niðurskurður á framlögum til framhaldsskólastigsins. Kennarar segja að líklega sé um að ræða niðurskurð sem þegar vanfjármagnað framhaldsskólastigið hefur aldrei séð áður – ekki einu sinni á árunum eftir bankahrunið 2008. Formaður Félags framhaldsskólakennara segir að niðurskurðurinn geri skólum ókleift að uppfylla óskir nemenda um nám og að gangi hann eftir verði næstu ár óbærileg fyrir starfsfólk skólanna. Samkvæmt fjármálaáætlun eru áætluð framlög til framhaldsskóla á næsta ári um 53,2 milljarðar en árið 2030 verða þau um 49,4 milljarðar. Um er að ræða lækkun upp á tæpa fjóra milljarða eða 7%. Í mótsögn við atvinnustefnu Í umsögn Félags framhaldsskóla um tillöguna segir: „Hér er stefnt að niðurskurði sem framhaldsskólastigið hefur líklega aldrei séð áður og ekki einu sinni á árunum eftir bankahrunið.“ Þá er bent á að niðurskurðurinn sé í mótsögn við það sem boðað er í nýrri atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. „Hún byggist á því að framhaldsskólar gegni lykilhlutverki í að undirbúa ungt fólk fyrir tæknibreytingar, svo sem áskoranir og tækifæri gervigreindarinnar, efla á kennslu í stærðfræði og raungreinum, iðn- og verkgreinum og byggja skal undir aukna sérhæfingu og undirbúning fyrir áframhaldandi nám,“ segir í umsögn félagsins. „Þetta kallar á aukinn undirbúning kennara, stjórnenda og ráðgjafa, aukna starfsþróun og auknar áherslur á þróun framhaldsskólastigsins. Fjármagnið er hins vegar skorið grimmilega niður svo ljóst er að þessi markmið hafa engan raunverulegan grunn.“ Frétt af mbl.is Óbærileg ár fram undan Hræddur um að skólar ráði frekar stundakennara Guðjón Hreinn Hauksson er formaður Félags framhaldsskólakennara en í samtali við Morgunblaðið bendir hann á að skólastigið hafi lengi verið vanfjármagnað. Eftir mikinn niðurskurð á árunum eftir hrun vann Ríkisendurskoðun skýrslu um rekstrarstöðu framhaldsskólanna árið 2014 en í henni kom fram að taka þyrfti á miklum rekstrarvanda. „Hún sýndi að skólarnir væru nánast komnir í þrot, mjög margir þeirra,“ segir Guðjón og bætir við: „Núna er staðan á skólunum enn verri en þá og núna er boðaður enn meiri niðurskurður næstu fjögur ár en eftir hrunið.“ Guðjón segir að ef þessi niðurskurður gangi eftir verði framhaldsskólum gert ókleift að uppfylla væntingar nemenda til náms síns og til að mynda muni þurfa að skera niður námsbrautir. „Við erum líka til dæmis hrædd um það að skólar fari að ráða til sín stundakennara frekar en að ráða fastráða kennara,“ segir hann. Þá telur Guðjón nær víst að niðurskurðurinn muni bitna á skólabókasöfnum og á öllum stuðningsstörfum utan um skólahaldið á borð við náms- og starfsráðgjafa, félagsráðgjafa og þroskaþjálfa. „Ég gæti talið endalaust áfram,“ segir hann. „Það er búið að vera að flysja þetta niður áratugum saman og nú á að gera þetta enn verra. Við horfum fram á tíma næstu árin sem verða bara óbærilegir fyrir starfsfólk framhaldsskólanna.“ Engin fjárfesting Nýlega auglýsti mennta- og barnamálaráðuneytið stöðu sérfræðings á sviði fjármála en í inngangi að þeirri auglýsingu sagði: „Það skiptir öllu fyrir íslenskt samfélag að fjárfesta í framtíðinni.“ Guðjón segir að tillagan að fjármálaáætluninni feli ekki í sér neina slíka fjárfestingu en það er sömuleiðis komið inn á þetta í umsögn Félags framhaldsskólakennara. „Þetta gæfi góð fyrirheit ef fjármálaáætlunin væri ekki eins svört og raun ber vitni. Þar er ekki nokkra fjárfestingu að sjá – aðeins enn þá grimmdarlegri niðurskurð en verið hefur,“ segir þar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Inga kynnir áform um einkunnabreytingu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Óbærileg ár fram undan Taka ekki tillit til ósamræmisins „Gyrðum okkur í bók!“ » Fleiri tengdar fréttir Fjármálaáætlun 2027-2031 Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Almenningur borgar skattahækkanir Skattahækkanir í fjármálaáætlun Ákvörðunin í höndum ríkisstofnana Mun á endanum lenda á almenningi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segist ekkert vera að flýta sér Flúði Kína á gúmmítuðru Á förum eftir áratug hjá Liverpool Meiri niðurskurður en áður hefur sést Vill losna frá Chelsea Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hér má skoða samstarfssáttmála nýs meirihluta Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Daði um undirskriftalistann: „Mjög impónerandi“ Meiri niðurskurður en áður hefur sést Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Segist ekkert vera að flýta sér Flúði Kína á gúmmítuðru Á förum eftir áratug hjá Liverpool Meiri niðurskurður en áður hefur sést Vill losna frá Chelsea Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Miðflokksmenn óánægðir með ákvörðun Hildar Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Selenskí bað Trump um fleiri skotfæri Gera má ráð fyrir snjó og krapa á vegum Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Hildur Björnsdóttir verður borgarstjóri Óbærileg ár fram undan Þórarna nýr forstjóri Ari Edwald: „Mjög skrýtið“ Afhenti Daða 42 þúsund undirskriftir Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Óvissan í fluginu bætist við mótvind Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“

Share this article