Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óbærileg ár fram undan

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 27.5.2026 | 6:00 Óbærileg ár fram undan Niðurskurðu hefur verið boðaður í framhaldsskólum landsins. mbl.is/Kristinn Magnússon Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Niðurskurðurinn sem boðaður er í framhaldsskólum landsins í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára er sennilega meiri en áður hefur sést hér á landi að sögn Félags framhaldsskólakennara (FF). Skólastigið hefur þegar verið fjársvelt um árabil en félagið segir áframhaldandi niðurskurðarstefnu stofna menntun ungmenna í hættu. Í nýrri fjármálaáætlun er ráðgert að fjárframlög til framhaldsskóla dragist saman um 7,1% á næstu fimm árum, fari úr 53,2 milljörðum árið 2027 í um 49,4 milljarða árið 2031. Þetta er meiri niðurskurður en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri fjármálaáætlun en hann á sér stað á sama tíma og stærstu árgangar Íslandssögunnar til þessa hefja framhaldsskólanám. Guðjón Hreinn Hauksson formaður FF telur að niðurskurðurinn muni bitna verulega á námi nemenda. Til að mynda muni þurfa að skera niður námsbrautir og draga úr stoðþjónustu. „Það er búið að vera að flysja þetta niður áratugum saman og nú á að gera þetta enn verra. Við horfum fram á tíma næstu árin sem verða bara óbærilegir fyrir starfsfólk framhaldsskólanna,“ segir Guðjón. Í ályktun aðalfundar FF frá mars á þessu ári kemur fram að útgjöld hins opinbera til framhaldsskólastigsins hafa verið skorin niður kerfisbundið allt frá aldamótum. Frá 1998-2024 hafa heildarútgjöld til fræðslumála hækkað um 16% á mann á föstu verðlagi – en útgjöld til framhaldsskólastigsins lækkað um 22% á sama tímabili. „Þessi stefna er ósjálfbær og stofnar menntun ungmenna í hættu. Framhaldsskólakennarar standa í framlínu og bera á herðum sér afleiðingar áratuga vanfjármögnunar – aukið álag, stærri námshópa, úr sér gengna aðstöðu og skort á stuðningi,“ segir í ályktun aðalfundar FF. Félagið hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlunina þar sem niðurskurðurinn er gagnrýndur harðlega, hann sagður grimmilegur og ganga beint gegn atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar sem var samþykkt í síðasta mánuði sem og fyrirheitum mennta- og barnamálaráðuneytisins um að fjárfesta í framtíð landsins. Lesa má nánar um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rakst á fyrrverandi og varð miður sín Líkamsárás og þjófnaður úr gámi Skúrir víða um land og gæti snjóað norðantil á morgun Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þorri atkvæða í 100 atkvæða bunkum Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Tekur væga dóma unglingspilta til skoðunar Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Veitingamenn hafa haldið hópinn í 55 ár Ekki hægt að leysa út lyf vegna tengslarofs Segir fjárskort tefja framkvæmdir í Árneshreppi Hret í kortunum og líkur á snjókomu Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Nýjast á mbl.is » Rakst á fyrrverandi og varð miður sín Líkamsárás og þjófnaður úr gámi Skúrir víða um land og gæti snjóað norðantil á morgun Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íþyngjandi gullhúðun: „Búið að vera gríðarlega þungbært“ Segir fjárskort tefja framkvæmdir í Árneshreppi Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Hret í kortunum og líkur á snjókomu Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Veitingamenn hafa haldið hópinn í 55 ár Ekki hægt að leysa út lyf vegna tengslarofs Segir fjárskort tefja framkvæmdir í Árneshreppi Hret í kortunum og líkur á snjókomu Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Enginn mætti frá ríkisstjórninni Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson

Share this article