Innlent | Morgunblaðið | 27.5.2026 | 10:00 Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Formaður utanríkismálanefndar segir áætlun verða að liggja fyrir um ESB-kerfisbreytingar. mbl.is/Sibba Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Mestu sérhagsmunir í sögunni » Fleiri tengdar fréttir „Sú mynd sem dregin er upp, að það verði búið upp risastórt embættismannakerfi sem síðan þyrfti að vinda ofan af ef niðurstaðan í seinni atkvæðagreiðslunni yrði neikvæð, er ekki alls kostar rétt,“ segir Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, í samtali við Morgunblaðið. Í grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær bendir Hjörtur J. Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur á misræmi í meirihlutaáliti utanríkismálanefndar annars vegar og málflutningi sömu aðila hins vegar, um hvort aðlögun að regluverki Evrópusambandsins yrði að fara fram samhliða aðildarviðræðum eða hvort það ætti að gera eftir samþykkt aðildarsamnings. Ekki tekið við styrkjum „Nefndin óskaði eftir mörgum gögnum í tengslum við málið, m.a. fundargerðum síðustu viðræðna. Þar kemur fram, t.d. í minnisblaði til ríkisstjórnarinnar sem Össur Skarphéðinsson sendi 20. desember árið 2010, að hvorki yrðu gerðar breytingar á lögum né stjórnsýslu í þeim eina tilgangi að laga íslenskt stjórnkerfi fyrir fram að ESB, né tekið við styrkjum sem beinlínis væru til að undirbúa aðild. Þetta var afstaða íslenskra stjórnvalda síðast og ég tel að okkar afstaða sé áfram sú sama, þ.a.e.s. að það verði ekki miklar og óafturkræfar breytingar gerðar, einungis í þeim tilgangi að laga Ísland að stjórnkerfi Evrópusambandsins. Auðvitað geta komið upp dæmi þar sem gerðar yrðu lagfæringar sem nýtast myndu hvort sem við færum inn eða ekki,“ segir Pawel. „Hafandi skoðað þetta finnst mér ekki fyrirsjáanlegt að við þurfum að búa til nýjar stofnanir til þess að geta gengið í Evrópusambandið. Einn stærsti munurinn verður örugglega á sviði landbúnaðarmála, en þar erum við með Matvælastofnun og erum að búa til nýja sameinaða stofnun með Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, og ég sé ekki betur en sú stofnun eigi að geta tekið við öllum þeim hlutverkum sem hugsanleg ESB-aðild myndi krefjast af okkur,“ segir hann. Þurfa að vera með áætlun „Við vitum auðvitað að það eru ekki 100% líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið, málið er pólitískt umdeilt og niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslu getur farið á hvorn veginn sem er. Við munum þá þurfa að vera með áætlun gagnvart Evrópusambandinu, þ.e. með hvaða hætti við ætlum að aðlaga einhvern hluta af okkar regluverki, eftir að við fáum já í seinna skiptið, en breytingarnar verða ekki gerðar áður en það já fæst,“ segir Pawel. Verða þá ekki gerðar neinar breytingar á íslensku regluverki meðan á aðlögunarviðræðum stendur til þess að laga okkar reglur að Evrópusambandinu? „Ekki ef eina markmið þeirra er að laga Ísland að Evrópusambandinu. Það geta auðvitað verið einhverjar breytingar sem nýtast okkur t.d. vegna EES-samningsins aða annarra þátta þar sem við teljum skynsamlegt að gera einhverjar umbætur. En það verður ekki þannig að við munum koma á nýju stuðningskerfi í landbúnaði t.d. sem verður fullbúið á þeim tíma sem síðari atkvæðagreiðslan fer fram en fellur svo úr gildi ef nei verður niðurstaðan. Það verður ekki þannig. Það er ekkert vit í því. Við ráðumst ekki í þá vinnu nema vilji þjóðarinnar liggi fyrir um að hún vilji ganga í Evrópusambandið. En það þýðir og hefur þær afleiðingar að við þurfum að vera með áætlun um hvernig við ætlum að gera stærri kerfisbreytingar og það hefur þau áhrif að við þurfum lengri tíma eftir síðari atkvæðagreiðsluna en ef við værum þjóð þar sem fullkominn einhugur ríkti um ESB-aðild og við gætum nokkurn veginn treyst á já í síðari atkvæðagreiðslunni. Þá væri kannski eitthvað unnið með því að gera allar þessar breytingar áður, og þá gætum við gengið inn í Evrópusambandið á tiltölulega skömmum tíma eftir síðara já-ið,“ segir hann. Segir ekki Evrópusambandið sjálft að upptaka og innleiðing evrópska regluverksins sé grundvöllur aðildarviðræðna? „Þetta var uppleggið hjá okkur síðast eftir því sem ég best veit og samkvæmt upplýsingum okkar í nefndinni eru ekki gerðar athugasemdir við það upplegg þegar kemur að stórum breytingum sem lúta fyrst og fremst að landbúnaði og eftir atvikum tollaumhverfi, að nálgunin myndi verða sú að við myndum hafa áætlun um innleiðingu og henni yrði hrint í framkvæmd ef já fengist í síðari atkvæðagreiðslunni.“ En Evrópusambandið minnist ekki á neina áætlun, heldur segir að þetta eigi að gerast samhliða, eftir því sem fram kemur á vef ESB, ekki satt? „Þetta var okkar nálgun síðast og útgangspunkturinn í okkar meirihlutaáliti. Ég er að tala um hver afstaða íslenskra stjórnvalda til þessa sambands er, því það er útgangspunkturinn í okkar meirihlutaáliti. Við nálgumst málið út frá okkar sjónarmiði, okkar hagsmunum og okkar nálgun, sem er sú sama og síðast,“ segir Pawel. Markmið ætluð samningafólki En samningsmarkmiðin, verða þau bara höfð til hliðsjónar? „Þau eru birt eins og síðast. Þá var umsóknin okkar ekki háð skilyrðum. Samningsmarkmiðin eru ætluð okkar samningafólki að líta til. Persónulega er ég ekki hrifinn af þeirri nálgun að tilgreina skýrt að þetta sé ófrávíkjanlegt og gefa þá til kynna að það megi líta fram hjá öðru sem þar stendur. Við setjum mörg og ítarleg samningsmarkmið, bæði varðandi fæðuöryggi í landbúnaði, varðandi yfirráð okkar yfir fiskveiðiauðlindinni, áframhaldandi herleysi og innflutning lifandi dýra. Allt þetta eru atriði sem skipta mjög miklu máli þegar kemur að hugsanlegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið,“ segir Pawel. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Vonlaus samningur verður ekki lagður fyrir þjóðina Mestu sérhagsmunir í sögunni » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Rækta mikilvægt samband Aðsókn í Kringluna jókst um 15% Þórey Þula fékk Morgunblaðshnakkinn Ætlar ekki að sofa hjá Ítala Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Örtröð á Landspítalanum hamlar smitvörnum Kannast ekki við samkomulag um lok ESB umræðu Ekki farið í aðlögun án þjóðarvilja Áfram í varðhaldi eftir manndrápstilraun Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Þorgerður óttast „Brexit-augnablik“ á Íslandi Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Rækta mikilvægt samband Aðsókn í Kringluna jókst um 15% Þórey Þula fékk Morgunblaðshnakkinn Ætlar ekki að sofa hjá Ítala Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Opin skilyrði vegna ESB viðræðna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ver Ísland gegn tölvuárásum Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Segir fjárskort tefja framkvæmdir í Árneshreppi Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Þorgerður óttast „Brexit-augnablik“ á Íslandi Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkiss