Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þá værum við að ljúga að þjóðinni“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.4.2026 | 18:18 „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ Pawel Bartoszek, formaður ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Alþing­is. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Hanna Katrín fundaði með sjávarútvegsstjóra ESB Málið komið fram á fölskum forsendum Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar » Fleiri tengdar fréttir „Ef við myndum segja við þjóðina að það sé ekki um neitt að semja og að einungis um aðlögun sé að ræða og ekkert svigrúm til að ná fram sérlausnum til að taka mið af hagsmunum Íslands, þá værum við að ljúga að þjóðinni. Þá værum við að segja eitthvað sem væri algjörlega ósamræmi við það sem ég hef t.d. heyrt í samtölum við mína kollega á öðrum þingum.“ Þetta segir Pawel Bartoszek, formaður ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Alþing­is, í samtali við mbl.is en fjallað var um það í Morgunblaðinu í dag og á mbl.is að ekki leiki vafi á því að aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) ef að þeim verður munu fela samtímis í sér aðlögun að reglusafni sambandsins meðan á viðræðunum stendur. Í umfjölluninni er vísað til samningsafstöðu ESB þegar aðildarviðræður hófust árið 2010 sem birtist í skjali Evrópusambandsins , sem þýtt var af utanríkisráðuneytinu á sínum tíma, en hlaut takmarkaða kynningu. Frétt af mbl.is Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Svigrúm til samtals Pawel segir að jafnvel í þeirri skýrslu sé að finna setningar sem megi vel túlka á þá vegu að það sé svigrúm til samtals. Þá segir hann að taka þurfi með í reikninginn að nokkrir forystumenn bæði Evrópusambandsins og stórra aðildarríkja hafi að undanförnu komið fram og gefið nokkuð skýr skilaboð þess efnis að það sé sannarlega svigrúm til samtals og viðræðna að mati Pawels. „Ég get nefnt yfirlýsingu Donalds Tusk forsætisráðherra Póllands á blaðamannafundi með Kristrúnu Frostadóttur. Ég nefni yfirlýsingu Mörtu Kos þegar fréttir bárust af fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu, sem lesa má mjög skýrt með þeim hætti að það sé svigrúm til viðræðna. Síðan í dag frá sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, sem segir náttúrulega að þetta séu alvörusamningaviðræður. Og ef sú yfirlýsingin er ekki nægilega sterk, þá veit ég ekki hvað.“ Frétt af mbl.is Málið komið fram á fölskum forsendum Ekki kröfur á gagngerar stjórnkerfisbreytingar Formaður utanríkismálanefndar segist reyndar telja að jafnvel inni í síðustu lotu, hafi ekki verið gerðar kröfur á að við myndum gera einhverjar gagngerar stjórnkerfisbreytingar í viðkvæmum málaflokkum meðan viðræðurnar stæðu yfir. „Ég get mér nú til að það sé nánast öruggt að það verði okkar afstaða í þessu ferli einnig. Það er að segja, við munum ekki fara að gera gagngerar breytingar á okkar stuðningskerfi í landbúnaði, nema ef til þess kemur að þjóðin samþykki aðild að Evrópusambandinu.“ Pawel segist huga að samningsafstöðu Íslands en ekki samningsafstöðu gagnaðilans og þá segir hann auðvitað líka verða að hafa í huga að ýmislegt hafi breyst á þessum 16 árum frá 2010. „Ég vona að Evrópusambandið hafi lært af reynslu sinni. Ég meina, eitt af stærstu og voldugustu ríkjum Evrópusambandsins gekk úr Evrópusambandinu og sumir myndu kannski segja vegna ákveðins skorts á sveigjanleika. Þannig að ég tel að það sé aukinn skilningur innan Evrópusambandsins í garð aukins sveigjanleika þegar kemur að umsóknum einstakra aðildarríkja. Öll mín samtöl við þingmenn og ráðamenn að undanförnu fá mig til þess að staðfesta þá skoðun.“ Frétt af mbl.is Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Þá værum við að segja eitthvað sem væri í ósamræmi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir í samtali við mbl.is að forystumenn ríkisstjórnarinnar hafi annað hvort viljandi eða óviljandi sagt þinginu og þjóðinni ósatt um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið og segir að málið sé komið fram á fölskum forsendum. Hvað viltu segja við því? „Ef við myndum segja við þjóðina að það sé ekki um neitt að semja og að einungis um aðlögun sé að ræða og ekkert svigrúm til að ná fram sérlausnum til að taka mið af hagsmunum Íslands, þá værum við að ljúga að þjóðinni. Þá værum við að segja eitthvað sem væri algjörlega í ósamræmi við það sem ég hef t.d. heyrt í samtölum við mína kollega á öðrum þingum,“ segir Pawel. Hann er í Lettlandi þar sem fundur formanna utanríkismálanefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna (NB88) fer fram. Þar segir hann mikið rætt um NATO og stuðning við Úkraínu. „Ég hef séð nýjar kannanir um afstöðu Íslands við alþjóðamál og það gleður mig að sjá að það er aukið fylgi við NATO-aðild og meiri stuðningur við það að Ísland styðji við Úkraínu, sem er líka ánægjulegt,“ segir Pawel Bartoszek. Tengdar fréttir Ísland og ESB Hanna Katrín fundaði með sjávarútvegsstjóra ESB Málið komið fram á fölskum forsendum Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fyrirliðinn hetja Vals Haukar – FH kl. 19.30, bein lýsing „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ KR - Þór, staðan er 2:0 Breiðablik – ÍA, staðan er 0:0 Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Málið komið fram á fölskum forsendum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Fyrirliðinn hetja Vals Haukar – FH kl. 19.30, bein lýsing „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ KR - Þór, staðan er 2:0 Breiðablik – ÍA, staðan er 0:0 Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Agabrot flugstjórans ólíðandi Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Málið komið fram á fölskum forsendum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá

Share this article