Innlent | Morgunblaðið | 27.5.2026 | 10:20 Þórey Þula fékk Morgunblaðshnakkinn Þórey Þula Helgadóttir á Hólum með gæðing sinn, Kjalar frá Hvammi. Hér er hún með verðlaunagripi sem hún fékk við brautskráningu; frá Félagi tamningamanna og Morgunblaðshnakkinn í hægri hendi. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Setja bókamerki „Námið á Hólum var frábært. Þar öðlaðist ég góða þekkingu og þjálfun til þess að geta helgað mig hestamennsku, sem ég hef stundað svo lengi sem ég man,“ segir Þórey Þula Helgadóttir. Hún var ein 17 nemenda sem brautskráðust sl. laugardag með BS-próf í reiðmennsku og -kennslu frá Háskólanum á Hólum í Hjaltadal – Hólaskóla. Þar fékk hún meðal annars Morgunblaðshnakkinn, sem blaðið hefur um árabil veitt þeim nema sem náð hefur bestum samanlögðum árangri í reiðmennsku yfir skólaárin þrjú. Þórey gerði sér svo lítið fyrir og vann einnig verðlaun þau sem Félag tamningamanna veitir fyrir hæstu einkunn á lokaprófi í reiðmennsku. Tamningar, kennsla og járningar Nemendur á Hólum voru sem fyrr segir brautskráðir úr námi í reiðmennsku og reiðkennslu. Einnig einn nemandi með MS-próf í hestafræðum og svo fyrsti hópurinn, sex nemendur, úr nýju sérhæfðu námi í járningum hesta. Sú námslína hefur lengi verið í þróun í Hólaskóla, en mikil þörf hefur þótt vera á að bjóða menntun í járningum. Nemendurnir munu, að loknu eins árs námi, fara út á akurinn til starfa með sérþekkingu á járningum og hófhirðu og geta orðið leiðandi í þróun járninga og faglegrar þekkingar úti í hinu stóra samfélagi sem tengist íslenska hestinum. Af kunnugum er járningum lýst sem svo að þær séu mikil kúnst. Þegar skeifa er lögð á hóf og fest með fjöður er hún aðeins millimetra frá kvikunni. Fyrir innan hófbeinið er blóðflæði og taugar sem ekki mega raskast. Eimitt þess vegna þarf að vanda mjög til verka eins og kennt er á Hólum. „Hestamennskan á Íslandi er í mikilli sókn og ungt fólk kemur þar inn í talsverðum mæli nú. Sá stuðningur sem hestamannafélögin veita krökkum sem kannski hafa ekkert bakland í sportinu en langar að leggja þetta fyrir sig hefur þar mikið að segja,“ segir handhafi Morgunblaðshnakksins, Þórey Þula, sem er frá bænum Hvammi í Hrunamannahreppi skammt frá Flúðum. „Mér fannst frábært að fara á Hóla; aðstaðan þar er góð og kennararnir frábærir. Ég er eftir þetta komin með ágæta þekkingu til þess að takast á við ný verkefni í hestamennskunni. Ég hef fengist við bæði tamningar og reiðkennnslu, til dæmis meðal ungmenna hér í uppsveitum Árnessýslu. Vonandi verða verkefnin fleiri í framtíðinni, en vettvangur þeirra sem starfa með íslenska hestinn er ekki síst erlendis.“ Fallegur dagur Dagskráin á Hólum síðasta laugardag byrjaði með glæsilegri reiðsýningu reiðkennaranema sem náði hámarki þegar varaformaður Félags tamningamanna klæddi þá í bláan einkennisjakka félagsins. Samkvæmt langri hefð fóru nemendur á hestum sínum í beinu framhaldi af reiðsýningunni upp að Hóladómkirkju í myndatöku. Prúðbúnir knapar og glæstir gæðingar í umgjörð sem á tæpast sinn líka. Brautskráningarathöfnin fór fram í þéttskipuðum íþróttasal skólans þar sem prófskírteini og verðlaun fyrir úrvals námsárangur voru afhent. Hera Sól Hafsteinsdóttir fékk verðlaun fyrir hæstu einkunn á BS-prófi og þau Charlotta Börgmann og Kristófer Darri Sigurðsson verðlaun fyrir frábæran námsárangur í kennslufræði og reiðkennslu. „Brautskráningardagurinn var bjartur og fallegur, sem vekur góðar vonir um framtíð hestamennskunnar á Íslandi,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum. Alls voru 65 nemendur við hestafræðideild skólans; þar af 58 í reiðmennsku og tamningum. Brautskráning nemenda frá ferðamála- og fiskeldisdeildum verður svo á næstu dögum. Dýr og fatlað fólk „Járninganámið við hestafræðideild kemur vel út og er nauðsynlegt. Það er sérhannað fyrir ganghesta eins og þá íslensku, sem eru tugir þúsunda víða um lönd,“ segir rektorinn og bætir við: „Hér er margvíslegt starf tengt íslenska hestinum í þróun. Núna er í undirbúningi að setja upp námslínu í dýrastuddri þjónustu við fatlað fólk. Reynsla og rannsóknir sýna að fólk sem glímir við einhvers konar hömlun, hvort sem hún er andleg eða líkamleg, getur notið þess mjög að vera með dýrum, til dæmis hestum. Þetta er starf sem sálfræðingar, geðlæknar, iðjuþjálfar, kennarar og fleiri tengdar stéttir koma að. Um þessi efni var fjallað á ráðstefnu hér á Hólum nýlega og væntanlega verðum við með einhver námskeið þessu tengd næsta vetur. Hugsanlega verður svo námslína á þessu sviði sett upp á allra næstu árum.“ Nemendur af hestafræðibraut hér við dómkirkjuna á Hólum. Framtíðin blasir við og nú verður svo sannarlega skellt á skeið. Ljósmynd/Ólína Björk Hjartardóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Rækta mikilvægt samband Aðsókn í Kringluna jókst um 15% Þórey Þula fékk Morgunblaðshnakkinn Ætlar ekki að sofa hjá Ítala Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Þorri atkvæða í 100 atkvæða bunkum Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Örtröð á Landspítalanum hamlar smitvörnum Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Þorgerður óttast „Brexit-augnablik“ á Íslandi Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Nýjast á mbl.is » Fulltrúar þriggja flokka undirrita samning í Viðey Rækta mikilvægt samband Aðsókn í Kringluna jókst um 15% Þórey Þula fékk Morgunblaðshnakkinn Ætlar ekki að sofa hjá Ítala Umræðan Tæknin lækkar fæðingartíðni Dýrabær lifir enn góðu lífi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ný aðildarríki ESB yrðu án neitunarvalds fyrstu árin Ekki óafturkræfar breytingar gerðar Markmiðið að hanna einföld og auðskilin merki Þorri atkvæða í 100 atkvæða bunkum Mest lesið Í gær Í vikunni Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Óbærileg ár fram undan Óvissan í fluginu bætist við mótvind Gantaðist með götuheiti á borgarstjórnarfundi Þórarna nýr forstjóri Ver Ísland gegn tölvuárásum Tæpur þriðjungur gesta var í boði ríkisins Þorgerður óttast „Brexit-augnablik“ á Íslandi Gangandi umferð þrýst út í bílagötu Ekki tekið tillit til mönnunar við skerðingu Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Sagt að hafa veitingastað Safna undirskriftum gegn nýjum meirihluta Niðurrif húsa hefst brátt á Traðarreit Íhugar að flytja úr landi vegna skattastefnu Valdimar kveður: Síðustu dagar verið krefjandi Hret í kortunum og líkur á snjókomu „Hvaða hörmung ertu kominn með?“ Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Blóðugur reikningur á Tenerife Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Enginn mætti frá ríkisstjórninni Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Grunnskólakennari sakaður um að maka saur „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“