Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Fólk er með svo ákveðnar hugmyndir um brúðuleikhús“

Read Full Article →

„Fyrir mér getur brúðuleikhús sagt meira en venjulegt leikhús af því að með brúðum er hægt að tala um það sem er erfitt að tala um og gert það fallega og blíðlega. Af því að brúður eru bara myndlíkingar,“ segir Greta Clough, stofnandi brúðuleikhússins Handbendis á Hvammstanga. Rót, nýtt verk úr smiðju Handbendis, verður sýnt á Listahátíð í Reykjavík, og þau Greta og Sigurður Arent Jónsson, sem fer með hlutverk í sýningunni, litu við í Víðsjá á dögunum til að segja frá sýningunni. Verkið Rót gerist árið 1995 og fjallar um strákinn Óla sem elst upp í sveit. Pabbi hans er íslenskur en mamma hans frá Paragvæ. Líf Óla tekur miklum breytingum þegar amma hans frá Paragvæ heimsækir fjölskylduna. Greta segir að við undirbúning sýningarinnar hafi hún viljað komast að því hvernig börnum með ólíkan menningarlegan bakgrunn líði á Íslandi. „Ég er búin að tala mikið við börnin sem eru í mínu lífi, dóttir mín er auðvitað ein af þessum krökkum, líka margir vinir hennar á Hvammstanga. Það er spurning hvernig þeim líður með þetta. Finnst þeim þetta gott og gaman eða er þetta eitthvað sem er erfitt?“ segir Greta sem kemur upphaflega frá Bandaríkjunum. Hún segir að þegar hún tali við fólk sem fluttist til Íslands á ofanverðri 20. öld þá vilji það ekki skilgreina sig sem útlendinga því það væri búið að vera hér svo lengi. „Núna er þetta öðruvísi. Núna er fólk stolt af því að vera frá útlöndum,“ segir Greta. Fjörug sýning með alvarlega undirtón Þau Gréta og Sigurður lýsa Rót sem brúðusöngleik og lofa mikilli skemmtun í bjartri og skemmtilegri sýningu sem er full af tónlist. Undir niðri sé þó alvarlegur undirtónn þar sem ástandið í heiminum er til umfjöllunar. „Það er allt dálítið flókið í heiminum núna og krakkar eru með margar spurningar um þetta. Leikritið talar smá um þetta á hátt sem hæfir aldri barnanna, við erum ekki að reyna að ýta pólitískum skilaboðum að þeim,“ segir Greta. „Við gerum þetta á þann hátt að fjölskyldur geta komið og notið sýningarinnar,“ bætir Sigurður við. „Hún Greta er algjör meistari í þessu. Hún setur fram svo fallegar sögur og segir svo vel frá en það er alltaf einhver undirtónn sem hinir fullorðnu skilja kannski betur eða hafa orðaforðann til að útskýra fyrir börnunum ef þau eru að spyrja út í.“ Þau segja sýninguna eiga talsvert erindi. Hér á landi búi fjöldinn allur af ólíkum fjölskyldum sem hafa flutt til landsins af alls kyns ástæðum. Aðstandendahópur sýningarinnar ber þess glöggt vitni, hann samanstendur af fólki af átta þjóðernum. Leiklistarformið sótt til Japans Sigurður segir það hafa verið gaman að kynnast brúðuleikhúsinu sem leiklistarformi en samstarf hans og Gretu hófst þegar Handbendi setti upp sýninguna Heimferð. „Þetta er ótrúlega magnað form,“ segir hann. Ekki síst handbragðið í brúðugerðinni sé áhugavert. „Sem leikari er líka ótrúlega áhugavert að þurfa að glæða brúðuna lífi á meðan þú ert líka að leika. Maður þarf því að bregða sér á milli hlutverka. Þetta er mjög líkamlegt og skemmtilegt.“ Formið sem þau Handbendi notast við í sýningunni Rót nefnist bunraku. „Bunraku-brúðuleikhús er rosalega gömul brúðuleikhústegund. Þetta er upprunalega frá Japan en núna erum við að gera smá vestrænt bunraku, breyta þessu smá. Þetta eru bara þrjár manneskjur og ein brúða,“ útskýrir Greta. Hún segir ýmislegt vera hægt sem ekki er hægt í hefðbundnu leikhúsi þar sem leikurinn er aðeins í höndum manneskja. Heldur alþjóðlega brúðulistahátíð á Hvammstanga „Þú getur gert alls konar sem leikari getur ekki gert. Brúður geta flogið, þú getur teygt úr þeim og stækkað þær og þú getur gert alls konar,“ segir Greta. Það getur þó tekið talsverðan tíma fyrir leikarahópinn að samhæfa sig við stjórn brúðunnar. Að mati Sigurðar hefur þetta leikhúsform ef til vill farið fram hjá fólki. „Mér finnst þess virði að minnast á Hvammstangi International Puppet Festival, alþjóðlega brúðuhátíð á Hvammstanga sem Handbendi og Greta standa fyrir,“ segir hann. „Hún er að fá svo ótrúlega frábæra listamenn til landsins og það vita ekki nógu margir af þessari hátíð. Fólk er með svo ákveðnar hugmyndir um brúðuleikhús, sérstaklega mín kynslóð sem ólst upp með Brúðubílnum. En þetta er svo ótrúlega stór heimur og tekur á sig svo mörg form.“ „Þú getur gert allt í brúðuleikhúsi. Bara ef þú getur hugsað um það þá er leið til þess að gera það,“ bætir Greta við. „Þú getur gert allt í brúðuleikhúsi. Ef þú getur hugsað um það þá er leið til þess að gera það,“ segir leikstjóri brúðusöngleiksins Rót sem verður sýndur á Listahátíð í Reykjavík. Greta Clough og Sigurður Arent Jónsson voru gestir Víðsjár í vikunni. Hægt er að hlusta á viðtal Melkorku Ólafsdóttur við þau í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article