Menning | Tónlist | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 17:05 „Allir fara út í hláturvímu“ Í flæðinu á æfingum mynduðust nýir vinklar á þjóðsögurnar. Ljósmynd/Kára Dís Ólafsdóttir Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Þetta er fyrsta stóra sýningin mín sem leikstjóri,“ segir María Björt Ármannsdóttir sem leikstýrir sýningu Hugleiks, Fjöllin vakna , sem frumsýnd er í kvöld. María hefur verið mikið tengd leikhúsinu og unnið bæði sem leikari og gert búninga og sviðsmyndir, en segir að það hafi lengi blundað í sér að leikstýra. „Þetta hefur verið mjög þroskandi og skemmtilegt ferli og ekki síst vegna þess að ég er með mjög flottan og frjóan hóp af fólki til að vinna með. Þau voru til í að prófa allt sem mér datt í hug,“ segir hún hress og bætir við að þetta sé líklega bæði það erfiðasta sem hún hafi gert og það allra skemmtilegasta. „Birgitta Björk Bergsdóttir er aðstoðarleikstjóri og við höfum stýrt hópvinnunni í átt að handriti sem hún hefur síðan skrifað.“ María Björt Ármannsdóttir. Ljósmynd/Aðsend Skellt upp á svið Í sýningunni er unnið með þjóðararfinn eins og hann birtist í þjóðsögunum og margar persónur eru kunnuglegar, eins og Djákninn á Myrká, hinn þjófótti Kiðhús og konan í selshamnum svo fátt eitt sé upp talið. „Hópurinn vinnur efnið í flæði og út frá því koma alls konar hugmyndir. Sumt notum við og annað ekki og svo skrifar Birgitta niður ljóðrænan texta að auki. Síðan í ferlinu öllu sáum við að Birgitta yrði að skella sér á sviðið og leika með hópnum, sem var mjög skemmtilegt.“ Tónlist leikur stórt hlutverk í sýningunni, en hún er í höndum Ármanns Guðmundssonar, Lofts S. Loftssonar og Þorgeirs Tryggvasonar. „Við erum með arkitektinn Böðvar Pál sem sér um að hanna stóru hlutina á sviðinu, en ég sé um hönnun og búninga,“ segir María. Unnið er með þræði úr íslenskum þjóðsögum í leikritinu. Ljósmynd/Kára Dís Ólafsdóttir „Sýningin er einn klukkutími og ég myndi segja að þetta væri mjög líkamlegt leikhús og við sveiflumst svolítið á milli gamansemi og ljóðrænu í verkinu. Sögumenn, sem birtast annað slagið, leiða sýninguna áfram og við hlökkum öll til að sýna verkið,“ segir María. „Æfingaferlið hefur gengið frábærlega og við höfum hlegið svo mikið að tárin hafa runnið. Allir fara út í hláturvímu eftir æfingar á kvöldin og ég er viss um að þessi leikgleði á eftir að skila sér til áhorfendanna.“ Fjöllin vakna er sýnd á Langholtsvegi 110 og hægt er að fá miða á midix.is. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn Banksy opinberað Árangur Laufeyjar án hliðstæðu „Múrinn étur upp húðina“ Tíu vilja verða tónlistarstjóri Óperunnar Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ Laufey gefur hundruð milljóna Myndir: Blússandi stemning á Íslensku tónlistarverðlaununum Halldóra Ósk valin Rödd ársins Söngurinn í blóðinu Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Laufey gefur hundruð milljóna Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ Þetta eru bestu hljóðbækur ársins Hann var alltaf til í að sjá eitthvað nýtt Söngurinn í blóðinu Halldóra Ósk valin Rödd ársins Farið hefur fé betra Vill ekki þagga neitt niður Penn tók Úkraínu fram yfir Óskarinn Laufey gefur hundruð milljóna Nafn Banksy opinberað Hjálmar H. Ragnarsson látinn Fólk kom út með tárin í augunum One Battle After Another sigurvegari kvöldsins Á að baki langa sorgarsögu Farið hefur fé betra Árangur Laufeyjar án hliðstæðu Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Eiginkonan gaf honum spark í rassinn Áhugaverð viðtöl Menning Hrá, hörð og kraftmikil Carmen Menning Sigraði 150 keppendur í prufuspili Menning Stanslaus lýsing við Grensásveg Menning Fljótið brúnt allan ársins hring Menning Óttaðist að missa barnið sitt Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn Banksy opinberað Árangur Laufeyjar án hliðstæðu „Múrinn étur upp húðina“ Tíu vilja verða tónlistarstjóri Óperunnar Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ Laufey gefur hundruð milljóna Myndir: Blússandi stemning á Íslensku tónlistarverðlaununum Halldóra Ósk valin Rödd ársins Söngurinn í blóðinu Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Laufey gefur hundruð milljóna Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ Þetta eru bestu hljóðbækur ársins Hann var alltaf til í að sjá eitthvað nýtt Söngurinn í blóðinu Halldóra Ósk valin Rödd ársins Farið hefur fé betra Vill ekki þagga neitt niður Penn tók Úkraínu fram yfir Óskarinn Laufey gefur hundruð milljóna Nafn Banksy opinberað Hjálmar H. Ragnarsson látinn Fólk kom út með tárin í augunum One Battle After Another sigurvegari kvöldsins Á að baki langa sorgarsögu Farið hefur fé betra Árangur Laufeyjar án hliðstæðu Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Eiginkonan gaf honum spark í rassinn Áhugaverð viðtöl Menning Sigraði 150 keppendur í prufuspili Menning Óttaðist að missa barnið sitt Menning Fljótið brúnt allan ársins hring Menning Leiksýningar ársins 2025 Menning Hvöt og nauðsyn sem yfirtekur allt