Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hypjið ykkur, Bandaríkin!

Read Full Article →

Rúmlega fimm hundruð manns söfnuðust saman til mótmæla í gær við nýja ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk á Grænlandi. Nýja skrifstofan, sem er á þremur hæðum, var opnuð í gær. „Hypjið ykkur, Bandaríkin!“ kölluðu mótmælendur fyrir utan nýju ræðismannsskrifstofuna. Margir voru með grænlenska þjóðfánann og spjöld sem á stóð: Make America Go Away eða: Fáið Bandaríkin til að fara í burtu og: We are not for sale eða: Við erum ekki til sölu. Rúmlega 500 manns mótmæltu nýrri ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna sem opnaði í gær í Nuuk á Grænlandi. Mótmælendur sneru baki í bygginguna og sögðust ekki vera til sölu. Það hefur verið mikil spenna milli Bandaríkjanna og Grænlands og Danmerkur vegna ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland, sem náði hámarki í lok janúar. Kenneth Howery, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, sagði í samtali við grænlenska sjónvarpið við vígslu nýju ræðismannsskrifstofunnar að Bandaríkjaforseti ætli ekki að beita valdi til að taka yfir landið. Framtíð Grænlands sé í höndum Grænlendinga. Hvorki formaður landstjórnar Grænlands né fulltrúar dönsku ríkisstjórnarinnar mættu á opnun skrifstofunnar. Bandaríkin hafa frá 2020 haft skrifstofu að láni hjá danska hernum í snotru rauðu húsi en sú nýja er þrjú þúsund fermetrar, á þremur hæðum, í miðborg Nuuk. Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom fram að hátíðleg stemning hefði verið á nýju skrifstofunni. Boðið hefði verið upp á sauðnautapylsur, rétti undir bandarískum og grænlenskum áhrifum og þjóðsöngvar beggja þjóða fluttir. Fyrir utan hafi andrúmsloftið verið allt annað. Aqqalukkuluk Fontain, sem skipulagði mótmælin, flutti ræðu fyrir utan nýju skrifstofuna. „Hlustið á Grænlendinga. Við erum ekki til sölu.“ Eftir ræðuna sneru mótmælendur baki í nýju skrifstofuna og stóðu þöglir í tvær mínútur.

Share this article