Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Í viðræðum um opnun þriggja her­stöðva á Græn­landi

Read Full Article →

Bandarísk og dönsk stjórnvöld hafa átt í reglulegum viðræðum á mánuðum um aukna viðveru bandaríska Bandaríkjahers á Grænlandi, samkvæmt heimildarmönnum BBC . Bandaríkin sækjast eftir að opna þrjár nýjar herstöðvar á Suður-Grænlandi. Með viðræðunum er horft til að leysa úr ágreiningi vegna ítrekaðra hótana Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland með hervaldi. Hvíta húsið og utanríkisráðuneyti Danmerkur staðfestu að ríkin eigi í viðræðum en vildu ekki tjá sig nánar um efnisatriði þeirra. Talsmaður Hvíta hússins sagði ríkisstjórnina bjartsýna um að viðræðurnar væru að stefna í rétt átt. Umræddar herstöðvar í suðurhluta Grænlands myndu fyrst og fremst leggja áherslu á eftirlit með mögulegri siglinga- og hernaðarstarfsemi Rússa og Kínverja í Norður-Atlantshafi milli Grænlands, Íslands og Bretlands,um GIUK-hliðið svokallaða, samkvæmt heimildarmönnum BBC. Ein af nýju herstöðvunum verður líklega staðsett í Narsarsuaq, þar sem Bandaríkin voru áður með herstöð sem hýsti lítinn flugvöll.

Share this article