Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tæpir 114 milljarðar í tvo bótaflokka í fyrra

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 22.5.2026 | 12:20 Tæpir 114 milljarðar í tvo bótaflokka í fyrra Tryggingastofnun. Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Alls greiddi Tryggingastofnun 85,3 milljarða króna í örorkubætur í fyrra og 28,4 milljarða í endurhæfingarlífeyri, og fóru því alls 113,7 milljarðar í þessa málaflokka í fyrra. Þetta kemur fram í svari Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðisráðherra, við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Spurt var um fjárhæð greiðslna Tryggingastofnunar í þessa málaflokka yfir 20 ára tímabil, fjölda bótaþega og hlutfall fjárhæðarinnar af fjárlögum hvers árs. Þegar litið er til örorkubóta sést að fjárhæðin hefur nær sexfaldast frá árinu 2006, en þá voru greiddir tæpir 15,5 milljarðar í örorkubætur. Bótaþegum hefur einnig fjölgað umtalsvert á tímabilinu eða úr 17.026 árið 2006 í 21.669 í fyrra. Fjöldi bótaþega hefur verið nokkuð stöðugur síðustu tíu árin, þeir voru 20.695 árið 2016 en 21.699 í fyrra. Þegar fjárhæð örorkubóta er reiknuð sem hlutfall af fjárlögum hvers árs sést að hlutfallið var 4,6% árið 2006, samanborið við 5,5% á síðasta ári. Hæst var hlutfallið í þeim samanburði árin 2017 og 2018, þegar það var 6,1% af fjárlögum viðkomandi árs. Í svarinu segir að í ársskýrslum Tryggingastofnunar komi fram að geðraskanir séu helsta ástæðan fyrir örorku og þar á eftir komi stoðkerfissjúkdómar. Því næst komi sjúkdómar í taugakerfi og skynfærum, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómar og sjúkdómar í blóðrásarkerfi. Aukning hafi orðið í öllum flokkum örorku frá árinu 2014 fyrir utan stoðkerfissjúkdóma sem séu eini flokkur sjúkdóma sem dregist hafi saman. Mest sé aukningin í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum sem má að miklu leyti megi rekja til fjölgunar tilfella þar sem sykursýki er ástæða örorku. Veruleg fjölgun hefur orðið í hópi þeirra sem þiggja endurhæfingarlífeyri á sl. 20 árum. Í svari ráðherrans kemur fram að þeir hafi verið 1.889 talsins árið 2006, en í fyrra var fjöldi þeirra 9.398 alls. Að sama skapi hefur fjárhæðin sem varið er til þessa málaflokks stökkbreyst, en árið 2006 voru greiddar 1.175 milljónir í endurhæfingarlífeyri en í fyrra var fjárhæðin 28,4 milljarðar króna. Sem hlutfall af fjárlögum var endurhæfingarlífeyrir 0,3% árið 2006, en var komið upp í 1,8% á síðasta ári, sem er sexföldun. Fjöldi þeirra sem þiggja endurhæfingarlífeyri hefur stigvaxið síðustu þrjú árin. Þeir voru 6.726 talsins árið 2023 en voru tæplega 9.400 í fyrra, eins og áður greinir. Spurningu um ástæður fyrir fjölgun fólks í þessum hópi er svarað á þann veg að geðraskanir séu helsta ástæðan fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum og þar á eftir koma stoðkerfissjúkdómar. Hvað aðrar ástæður varðar segir að þær skiptist á milli meðfæddra skerðinga og margra ólíkra sjúkdóma, svo sem sjúkdóma í blóðrásarkerfi, innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma og krabbameina. Fram kemur að aukning hafi orðið í öllum flokkum sjúkra- og endurhæfingargreiðslna frá árinu 2014 og af þeim sem búsettir eru á Íslandi hafi nýjum sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegum hlutfallslega fjölgað frá árinu 2015 úr 0,7% í 1,1% árið 2025, sem er sagt vera í samræmi við auknar áherslur á starfsendurhæfingu og endurkomu á vinnumarkað, einkum hjá yngra fólki. Þá segir að nýr greiðsluflokkur, sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, hafi gengið í gildi 1. september á síðasta ári og komið í stað endurhæfingarlífeyris sem nái til breiðari hóps einstaklinga en endurhæfingarlífeyrir gerði. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hefja beint flug á milli Washington og Keflavíkur Gabriel Attal býður sig fram til forseta „Er mjög veikur en ekki í lífshættu“ Tæpir 114 milljarðar í tvo bótaflokka í fyrra Launavísitalan hækkar enn Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Mestu sérhagsmunir í sögunni Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » Hefja beint flug á milli Washington og Keflavíkur Gabriel Attal býður sig fram til forseta „Er mjög veikur en ekki í lífshættu“ Tæpir 114 milljarðar í tvo bótaflokka í fyrra Launavísitalan hækkar enn Umræðan Má ESB ekki vita það? Fjáreignir og skattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helgin blaut: „Þetta er í raun síðasti dagurinn“ Hildur fundar í kvöld og á morgun Markleysið enn einn áfellisdómur Gagnrýna hvata örorkukerfisins Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Markleysið enn einn áfellisdómur Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Hvalfjarðargöng: Lokanir um Hvítasunnuhelgina „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ „Auðvitað myndi það hjálpa“ Meiri kólnun á vinnumarkaði en spáð var Milljarðasektin lækkuð í Landsrétti „Ástandið í íslenskum skólum er grafalvarlegt“ Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli „Mjög margir hringdu í 112“ Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article