Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Endurstillti fókus eftir veikindi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.2.2026 | 21:30 Endurstillti fókus eftir veikindi Veigar Margeirsson tónskáld í hljóðveri sínu í Gufunesi. Morgunblaðið/Karítas Á sunnudagskvöldið verður nýútkomin hljómplata Veigars Margeirssonar, Five Birds, flutt í heild sinni á sérstökum útgáfutónleikum í Silfurbergi í Hörpu. Platan er samin fyrir Stórsveit Reykjavíkur og mun Veigar sjálfur halda um tónsprotann á hljómleikunum. Tónskáldið segir plötuna vera sitt persónulegasta verk til þessa. „Titill hennar og samnefnt lag, Five Birds, eða Fimm fuglar, vísar t.d. til okkar fjölskyldunnar. Við erum fjögur. Fimmti fuglinn er dóttir sem við misstum,“ segir Veigar og sýnir blaðamanni húðflúr af fuglum sem hann og öll fjölskyldan bera. Annað lag á persónulegum nótum er Ballad for My Father en Veigar missti föður sinn á besta aldri fyrir rúmlega 30 árum. Opinn hugur Djass er í raun fyrir alla en margir eiga erfitt með að byrja að hlusta, eins og Veigar útskýrir. Spurður út í hvernig fólk eigi að nálgast tónlistina á plötunni segir Veigar að það hjálpi að vera með opinn huga. „Ég er til dæmis nýlega búinn að uppgötva dauðarokk og svartmálm í gegnum Viktor, son minn og bassaleikara. Það er stundum mikilvægt að leggja fyrirframákveðnar hugmyndir til hliðar. Ég hef meira að segja spilað með Viktori á trompet á dauðarokkstónleikum.“ Um sköpunarferlið segir Veigar að ekkert jafnist á við góða melódíu. „Besta dæmið um mikinn laglínusmið er kvikmyndatónskáldið Henry Mancini. Hann fékkst mikið við stórsveitartónlist á tímabili sem hljóðfæraleikari, tónskáld og útsetjari. Margir þekkja t.d. tónlist hans við gamanmyndina Bleika pardusinn.“ Veigar segir að tónlistin komi oft til sín í draumi. „Ég er með skissubók á náttborðinu og reyni að fanga hendingarnar áður en þær hverfa,“ segir Veigar. Hann segist ekki vera orðsins maður. „Ég vil frekar láta melódíuna fara með mig á einhverja staði.“ Hann nefnir til dæmis lagið Moon River eftir Mancini. „Það er eitt besta lag sem samið hefur verið. En ég kann ekki textann.“ Spurður um aðra áhrifavalda nefnir Veigar Bob Mintzer, einn af forsprökkum bandarísku bræðingshljómsveitarinnar Yellowjackets sem einnig er með sína eigin stórsveit. Hann nefnir einnig Mariu Schneider. „Upphaflega fór ég til Boston og þaðan til Flórída að læra að verða djasstrompetleikari og stórsveitarmaður. Ég kafaði mjög djúpt en komst líka að því að það er nánast ómögulegt að skapa sér lífsviðurværi við að semja eingöngu svona tónlist. En handverkið og fræðin nýtast mér afar vel í hinum ýmsu samtímaverkefnum.“ Veigar segir að nokkuð stór hluti af stórsveitartónlist sé snarstefjunin þar sem fólk spilar sóló. „Flestir spilarar í stórsveitum eru líka góðir einleikarar. Það er samt ekki nauðsynlegt að vera sólóisti.“ Ómstríðir hljómar Tónskáldið notar ýmsa hljóma. „Flóknu hljómarnir eru ómstríðir, kannski með 7-8 nótum. Þeir búa til spennu. Inn á milli blanda ég léttari og mildari hljómum.“ Veigar segist alltaf sjá myndir fyrir sér þegar hann semur. „Þess vegna hefur kvikmyndatónlist legið svo vel fyrir mér,“ segir Veigar sem hefur samið fyrir ótal sjónvarpsþætti og kvikmyndir. Þá rekur hann fyrirtæki í Bandaríkjunum sem sérhæfir sig í stiklutónlist fyrir kvikmyndir og tölvuleiki. „Ég datt inn í nám í kvikmyndatónlist í Los Angeles og sá að þetta stutta snið hentaði mér vel. Styttri tónlistarbútar fyrir auglýsingar og stiklur, allt frá 5 sekúndum upp í 2,5 mínútur. Þessi verkefni geta verið mjög erfið – en þau taka enda, sem er gott,“ segir Veigar og skellir upp úr. Hann segir að lengra snið hafi kallað á hann í seinni tíð. „Í dag blanda ég þessu öllu saman. Í Bandaríkjunum vinn ég mest sem verkefnastjóri og forleggjari. Eftir að ég lenti í alvarlegum veikindum fyrir tveimur og hálfu ári endurstillti ég fókusinn. Núna er ég að gera hluti sem ég verð að gera áður en ég dey. Þetta eru hlutir sem mér finnst ég þurfa að koma frá mér. Það góða er að mér er alveg sama hvort fólk fílar það sem ég er að gera. Það er nóg að ég hafi gaman af því.“ Hann segist hafa verið hvattur til þess í gegnum veikindin að nýta tónlistina til að glíma við áföll úr fortíðinni. „Ég er að vinna í annarri plötu núna og horfi þar enn meira inn á við en í Five Birds.“ Veigar segir að sér og tónlistinni hafi strax verið vel tekið af forsvarsmönnum stórsveitarinnar, Sigurði Flosasyni og Ólafi Jónssyni. „Ég hef fengið mikla hvatningu alls staðar að, ekki síst frá konunni minni. Þetta bras er gott fyrir hjartað, en ekki fyrir veskið,“ segir Veigar og brosir breitt. Um stjórnendahlutverkið segir Veigar að sér líki það vel. „Mér finnst mjög gaman að standa fyrir framan áhorfendur og ná sambandi við salinn. Ég hef alltaf átt auðvelt með það. Líklega tengist það því þegar maður var endalaust að koma fram á nemendatónleikum í Keflavík sem barn.“ Að stjórna stórsveit er öðruvísi en að stjórna sinfóníuhljómsveit að sögn Veigars. „Þú færð góðan stuðning frá hrynsveitinni; trommum, bassa, gítar og píanói. Þú getur leyft þér að slaka aðeins á og vera ekki alltaf að slá taktinn. En maður þarf að vera vakandi og passa að allir komi rétt inn. Einleikarinn getur t.d. óvart spilað of langt sóló. Þá er það stjórnandinn sem þarf að hleypa honum inn og koma öllum hljóðfæraleikurunum á sama staðinn,“ segir Veigar að endingu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér „Þetta er versta martröð allra foreldra“ Hrefna hlaut verðlaunin að þessu sinni ÍBV upp fyrir Aftureldingu Áhorfendur óska sér á leiðinni út Brentford - Arsenal, staðan er 1:1 Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Væringar í Vopnafjarðarhreppi Hálf-íslenskur hermaður sinnir loftrýmisgæslunni Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Stúlkan fundin heil á húfi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson „Þetta er versta martröð allra foreldra“ Hrefna hlaut verðlaunin að þessu sinni ÍBV upp fyrir Aftureldingu Áhorfendur óska sér á leiðinni út Brentford - Arsenal, staðan er 1:1 Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Nýtt merki undir Tenerife: Vísindaráð kallað saman 50-60 metra rof á Reynisfjöru „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Stúlkan fundin heil á húfi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article