Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Náttúruafl og óendanlegur kraftur

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2026 | 12:48 Náttúruafl og óendanlegur kraftur Margrét í sveiflu hér á miðri mynd í grænni blússu. Með henni hundruð kvenna sem tóku lagið af lífi og sál og vorið liggur í loftinu. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Einstök kona. Þetta er þráðurinn í frásögn þeirra kvenna sem mættu í sönghúsið Domux vox við Hlemm í Reykjavík sl. þriðjudagskvöld þar sem sjötugsafmæli Margrétar Jóhönnu Pálmadóttur kórstjóra var fagnað. Samkoman var í raun sjálfsprottin; gleðistund þar sem góðu starfi var fagnað og víst er að enginn syngur nema vera í góðu skapi. Margrét hefur í áratugi verið driffjöður í starfi kvennakóra, stofnað til þeirra og stjórnað. Með því fært gleði inn í samfélagið – enda vitum við öll að söngur gleður og lífið þarf list. Margrét hefur lifað og hrærst í tónlist frá barnsaldri. Margrét stofnaði Vox feminae 1993, sama ár og hún stofnaði Kvennakór Reykjavíkur, en einnig stofnaði hún og stjórnaði Kór Flensborgarskóla, Starfsmannakór SFR, Barnakór Grensáskirkju, Senjorítunum, Stúlknakór Reykjavíkur, Gospelsystrum Reykjavíkur, sem heita nú Cantabile, og sönghópnum Auroru. Árið 2000 stofnaði Margrét í félagi við aðra sönghúsið Domus, sem er staður stórra ævintýra. Lög þar sem sungið var um vorið og væntingarnar sem því fylgja voru sungin af hjartans lyst í afmælinu. Nærri 200 konur á öllum aldri voru þar mættar og gleðin var ósvikin. „Magga Pálma er náttúruafl, krafturinn og orkan sem hún gefur frá sér er óendanleg,“ segir Erla María Markúsdóttir fréttamaður, ein þeirra kvenna sem mættu í sönghúsið síðastliðið þriðjudagkvöld. Allt að þakka „Ég byrjaði hjá henni í Stúlknakór Reykjavíkur 5 ára gömul en færði mig svo í starfið í Langholtskirkju þegar ég flutti þangað 7 ára, en er núna að syngja hjá Siggu Soffíu dóttur hennar í Happy Hour-kórnum og kem endurnærð heim eftir hverja æfingu. Ég hef því lítið verið tengd Möggu síðustu ár en á henni á samt allt að þakka fyrir að hafa vakið hjá mér söngáhugann. Ég var dáleidd alveg frá fyrstu kóræfingu og vissi strax að starfið hennar væri eitthvað fyrir mig – og svo hefur verið allt til þessa dags.“ Margrét segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi fráleitt og það í tvöfaldri merkingu sungið sitt síðasta þótt sjötug sé orðin. Dóttir hennar, Sigríður Soffía, taki nú við stjórn og starfi í Domus Vox. Sjálf verði hún í tilfallandi verkefnum og með stjórn Cantabile; kór sem er skipaður konum sem eru fimmtugar og eldri. Svo sé líka sitt persónulega markmið að eldast með reisn og lifa lífinu með öllum sínum tækifærum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Náttúruafl og óendanlegur kraftur Marco Rubio heldur til Vatíkansins Langþráð endurkoma landsliðskonunnar Skipulagið andstætt vilja íbúanna Enn eitt áfallið fyrir Liverpool Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Inga Dögg lést í kajakslysinu Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Ég er enn með útþrá Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug Mokuðu út hamborgurum í New York Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Náttúruafl og óendanlegur kraftur Marco Rubio heldur til Vatíkansins Langþráð endurkoma landsliðskonunnar Skipulagið andstætt vilja íbúanna Enn eitt áfallið fyrir Liverpool Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mokuðu út hamborgurum í New York Stjórnmálamenn vildu Spaugstofuna út Laufey opnar sig í löngu viðtali við BBC Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Inga Dögg lést í kajakslysinu Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Ég er enn með útþrá Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug Mokuðu út hamborgurum í New York Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article