Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þetta getur ekki haldið svona áfram“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.5.2026 | 7:16 „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Karítas Ólafur E Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Það er ótrúlega hraður vöxtur útgjalda til málaflokksins og ég tel að það gagnist raunverulegum öryrkjum alls ekki að útgjöldin vaxi með aukinni tilkomu fólks sem ætti mun síður að eiga rétt á þessum bótum en hinir raunverulegu öryrkjar,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Miðflokksins, í samtali við Morgunblaðið, þegar leitað er viðbragða hans við vaxandi útgjöldum vegna greiðslna örorkubóta. Fram hefur komið í Morgunblaðinu að í fyrra hafi verið greiddir tæpir 78 milljarðar í örorkubætur af ýmsu tagi og hefur upphæðin vaxið um 25 milljarða á sex ára tímabili. Jafnframt fjölgar þeim sem þiggja örorkubætur ár frá ári. Sigmundur Davíð segir að farið sé að bera á því að hingað til lands komi útlendingar sem séu fljótir að átta sig á kerfinu hér og hinum ýmsu bótum sem í boði eru, hafi þeir ekki gert það áður en þeir komu til landsins. Þeir séu oft fljótir að sækja um bætur. „Helgi Magnús Gunnarsson fyrrverandi vararíkissaksóknari nefndi þetta í hlaðvarpsviðtali hjá Þórarni Hjartarsyni og sagði að læknum væri beinlínis hótað ef þeir veittu ekki uppáskrift um örorku. En burtséð frá slíkum atburðum þá virðist mér augljóst að viðmiðin hafi einnig breyst hjá hluta fólks um hvort rétt sé að sækjast eftir því að fara á örorkubætur. Öðruvísi er ekki hægt að skýra fjölgunina í hópi öryrkja,“ segir Sigmundur Davíð. Hann bendir á að þótt lífskjör á Íslandi hafi batnað mikið frá fyrri tíð hafi hlutfall öryrkja hækkað. Leita þurfi skýringa á því og eitt af því sem hann velti fyrir sér sé hvort þröskuldurinn við mat á örorku sé að lækka. Ósjálfbært kerfi „Það þarf að komast að því hvað veldur, því þetta getur ekki haldið svona áfram. Þetta er ekki sjálfbært og ekki til þess fallið að bæta kjör og stöðu raunverulegra öryrkja. Tökum dæmi af manni sem vinnur mikilvæg störf í þágu samfélagsins í sjálfboðavinnu, björgunarsveitarmanni t.d., sem slasast við björgunarstörf og verður óvinnufær eftir það. Er það sanngjarnt að mati samfélagsins að sá maður fái það sama og einhver sem vill fá hvíld frá vinnu? Það er ekki hægt að viðhalda slíku kerfi,“ segir Sigmundur Davíð sem bendir á að nauðsynlegt sé að laga kerfið, ekki síst með hag þeirra í huga sem þurfi í raun að reiða sig á það. „Þessi málaflokkur krefst endurskoðunar af einhverjum sem ekki hafa fyrirframmótaðar skoðanir á málinu, því skoða þarf alla þá áhrifaþætti sem stuðla að því hvernig komið er,“ segir hann og nefnir að hvatinn til þess að snúa út á vinnumarkaðinn á ný hafi farið minnkandi. Sigmundur Davíð segist þekkja dæmi þess að fólk þurfi að fá býsna há laun til að sjá sér hag í því að fara aftur út á vinnumarkaðinn. Skerðingarnar á hinum ýmsu bótum væru það miklar við að fara á vinnumarkaðinn og því gæti fólk fest í bótagildru. „Reglurnar eru ekki til þess fallnar að hvetja fólk til dáða,“ segir hann. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ekki samstaða um olíuleit Krefst milljóna í bætur eftir fall af sviði „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Þurfti að hætta eftir klaufalegt vinnuslys Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brjóta ítrekað af sér án raunverulegra afleiðinga Vinna við umönnun barna en ná ekki að sjá um sín eigin „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Ný forysta Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin Banaslys í Skorradalsvatni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Unnu í raun í Víkingalottóinu „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Ekki samstaða um olíuleit Krefst milljóna í bætur eftir fall af sviði „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Íslenski fáninn má blakta við hún allan sólarhringinn í sumar Þurfti að hætta eftir klaufalegt vinnuslys Umræðan Kópavogur – okkar heimili Kröfur stjórnarskrár til meðferðar stjórnarmála Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bandalag í bígerð um skipaumferð um Hormússund Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Fleiri stöður skólameistara auglýstar í haust Meira safnast en vonir stóðu til en spáin góð Mest lesið Í gær Í vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Röð af salmonelluinnköllunum vegna nautahakks Tvö ný útibú frá Góða hirðinum Fjórhjólaferðalögin eru ævintýri Ný forysta Stúdentaráðs Háskóla Íslands kjörin Banaslys í Skorradalsvatni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Unnu í raun í Víkingalottóinu „Legið fyrir í nokkurn tíma að ég er að verða 72 ára“ Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Banaslys í Skorradalsvatni Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Unnu í raun í Víkingalottóinu Blikur á lofti hjá hótelum Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV „Ég segi nei“ Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article