Innlent | Morgunblaðið | 21.5.2026 | 20:20 Gagnrýna hvata örorkukerfisins Með lagabreytingum í vor voru örorkubætur vísitölutengdar, en árið þar áður var frítekjumark einnig hækkað verulega. Örorkubótaþegar á Íslandi eru nú næstflestir á Norðurlöndunum á eftir Noregi. mbl.is/Eyþór Sveinn Valfells [email protected] Setja bókamerki Dæmi eru um að einstaklingar geti verið fjárhagslega betur settir á örorkubótum en í meðaltekjustörfum á vinnumarkaði. Fjöldi Íslendinga á örorkubótum nam um 10,4% fólks á vinnualdri árið 2025 samanborið við aðeins 6,5% árið 2000 og hefur hlutfallið því hækkað um tæp 4% frá aldamótum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs Íslands á stöðu örorkukerfisins en ráðist var í gerð úttektarinnar í kjölfar þess að ný lög um örorkulífeyriskerfið tóku gildi á síðasta ári. Ragnar Sigurður Kristjánsson hagfræðingur Viðskiptaráðs segir blikur á lofti vegna þeirrar miklu útgjaldaaukningar sem orðið hefur í málaflokknum á undanförnum árum. Hann ítrekar að Viðskiptaráð sé fylgjandi almannatryggingakerfinu. Hins vegar sé mikilvægt að stjórnvöld hugi að því að ekki séu til staðar beinir fjárhagslegir hvatar til þess að fólk leiti inn í kerfið. Afdrifarík breyting Þær umfangsmiklu breytingar sem gerðar voru á örorkukerfinu árið 2025 höfðu það að markmiði að einfalda kerfið, en þá voru greiðsluflokkar sameinaðir, greiðslur hækkaðar og reiknireglur einfaldaðar. Samhliða því voru innleiddir tveir nýir örorkuflokkar, annars vegar örorkubætur fyrir fólk með starfsgetu á bilinu 0-25%, og hins vegar hlutaörorkubætur fyrir einstaklinga með starfsgetu á bilinu 26-50%. „Hlutaörorkubætur nema um 340 þúsundum krónum á mánuði og frítekjumörkin eru svo um 368 þúsund krónur á mánuði. Þessi flokkur er því þess eðlis að samanlagaðar bóta- og launatekjur geta verið um 710 þúsund án þess að til neinnar skerðingar komi en þarna er um ansi háar fjárhæðir að ræða þar sem þetta eru aðeins þær grunnbætur sem bótaþegi á rétt á. Í ofanálag geta bótaþegar átt ríkan rétt til ýmissa annarra bóta og lífeyris ólíkt því sem átti við í fyrra kerfi. Einstætt foreldri á hlutabótum sem á nú rétt á heimilsuppbót, barnalífeyri og aldursuppbót, þyrfti því að vera með meira en eina milljón króna í laun á vinnumarkaði til þess að það borgaði sig ekki að vera á hlutabótum,“ segir Ragnar í samtali við Morgunblaðið. Breytingarnar hafi því gert það að verkum að einstaklingar geti undir ákveðnum kringumstæðum nú haft hærri ráðstöfunartekjur innan almenna örorkubótakerfisins en á vinnumarkaði. Viðskiptaráð telur þetta skýrt dæmi um það hvernig fjárhagslegir hvatar örorkubótakerfisins dragi úr virkni þess. Ef fjárhagslegir hvatar til að fara af vinnumarkaði inn í örorkubótakerfið eru fyrir hendi, sé augljóst hvernig það geti leitt til aukinnar ásóknar sem skerði því hlut þeirra sem raunverulega þurfi á aðstoð að halda. Samhliða þessu hafi verið gerðar aðrar breytingar sem ýti undir fjölgun bótaþega, þar sem örorka sé nú orðin varanleg og almennt ekki endurmetin. Bótaþegum farið fjölgandi „Þróunin á Íslandi hefur verið á þann veg að bótaþegum hefur farið hratt fjölgandi, og með þessum breyttu frítekjumörkum og svo vísitölutengingu bótanna er ekkert sem bendir til þess að þessari þróun verði snúið við. Þó eru viss jákvæð teikn á lofti með að endurhæfingarlífeyrisþegar fara í auknum mæli út á vinnumarkað eftir að endurhæfingu lýkur, en samhliða því eykst einnig sá fjöldi sem fer inn í endurhæfingarbótakerfið og því ljóst að stjórnvöld þurfi að skoða hvers vegna örorkubótaþegum fjölgar svona mikið og hvaða áhrif kerfið hefur á hvata til atvinnuþátttöku,“ segir Ragnar. Til þess að draga úr þessari þróun leggur Viðskiptaráð til að frítekjumörkum kerfisins verði breytt, svo tryggt sé að einstaklingar séu ekki betur settir á bótum, en í sinni núverandi mynd geri há frítekjumörk og samspil þeirra við önnur bótakerfi það að verkum að ríkur fjárhagslegur hvati sé til að sækja í kerfið og sækjast ekki eftir endurmati. Út frá því telur ráðið einnig mikilvægt að styrkja hvata til endurmats og endurhæfingar þar sem núverandi kerfi veiti takmarða fjárhagslega hvata til aukinnar atvinnuþátttöku en með því megi koma í veg fyrir að fólk festist varanlega innan kerfisins. Að lokum leggur ráðið til að stjórnvöld skuli reglulega meta áhrif breytinga kerfisins á atvinnuþátttöku svo kerfið þjóni áfram þeim sem þurfa á því að halda, en grafi samhliða ekki undan hvata til atvinnuþátttöku. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Cristiano Ronaldo meistari Gagnrýna hvata örorkukerfisins Á von á sekt eftir að hafa ekki virt forgang barns Eyjamenn komu til baka á Akranesi Er eitthvað betra en gamaldags kanilterta? Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Sjálfstæðismenn funda og spennan magnast Gagnrýna hvata örorkukerfisins Valdimar hafnar ásökunum um trúnaðarbrest Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Mjög margir hringdu í 112“ Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Enginn mætti frá ríkisstjórninni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Nýjast á mbl.is » Cristiano Ronaldo meistari Gagnrýna hvata örorkukerfisins Á von á sekt eftir að hafa ekki virt forgang barns Eyjamenn komu til baka á Akranesi Er eitthvað betra en gamaldags kanilterta? Umræðan Er stórútgerðin að eignast Ísland? Þegar kerfið ýtir undir hagsmunaárekstra Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð Vilhjálmur Árnason nýr bæjarstjóri Víkingur fékk einn hektara af landinu Mest lesið Í gær Í vikunni Enginn mætti frá ríkisstjórninni Andlát: Dr. Guðjón Reykdal Óskarsson Hildur: „Hann lék tveimur skjöldum“ Skatturinn birtir álagningu í dag Bubbi tekur Háskólabíó á leigu í heilan mánuð „Mjög margir hringdu í 112“ Íslendingar eyddu yfir milljarði í boli Hildur boðar til fundar Gullhúðun Skattsins sögð hækka bílverð Meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði slitið Blóðugur reikningur á Tenerife Andlát: Elín R. Líndal Stýrt úr „dótakassa“ borgarstjórans „Ég var nýbúinn að borða pasta“ Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Staðfestir að samstarf með Miðflokki sé útilokað SFS hjóla í RÚV vegna kvikmyndar Klemmdist undir rútu Fær 10 milljónir í bætur Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ná saman Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Enginn mætti frá ríkisstjórninni Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð