Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 35 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík pakkaði Val saman og færist nær úrslitum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Grindvíkinga með Ólaf Ólafsson innanborðs eru í góðum málum. Mummi Lú Grindavík vann öruggan heimassigur, 93-67 á Val í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta í kvöld. Þar með tók Grindavík forystuna í einvíginu og hefur nú unnið tvo leiki en Valur einn. Grindavík getur með sigri á Hlíðarenda á mánudag komist í úrslit, en vinni Valur verður oddaleikur í Grindavík 6. maí. Jeremy Raymon Pargo var stigahæstur Grindvíkinga í kvöld með 21 stig. Fyrir 11 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Bruggari leitar að týndu vegglistaverki Listaverk sem prýddi vegg í Tónabíói á sínum tíma hvarf undir sprunguviðgerðir fyrir mörgum árum. Aðstandendur Reykjavík Bruggfélags, sem hefur aðsetur í húsinu í dag, ætla sér að endurgera myndina. Fyrir 16 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Valsmenn einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Bjarni í Selvindi var öflugur hjá Val í kvöld. RÚV / Mummi Lú Valsmenn eru aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitli karla í handbolta eftir sigur á FH, 32-30 í þriðja úrslitaleik liðanna á Hlíðarenda í kvöld. Valur er nú 2-1 yfir í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari. Valur getur því með sigri á FH í Kaplakrika á mánudagskvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Vinni FH mætast liðin í oddaleik næsta fimmtudagskvöld, 7. maí að Hlíðarenda. Bjarni í Selvindi var markahæstur Valsmanna í kvöld með sex mörk. Björgvin Páll Gústavsson varði 12 skot í marki Vals í kvöld og var með 42% markvörslu skv. HbStatz. Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði níu mörk fyrir FH. Fyrir 21 mínútuÍÞRÓTTIR Fótbolti Fyrsti sigur Grindavíkur/Njarðvíkur og Þróttur vann FH Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Fyrir leik Grindavíkur/Njarðvíkur og Þórs/KA í kvöld. RÚV / Mummi Lú Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur vann í kvöld sinn fyrsta leik í Bestu deild kvenna þegar liðið vann Þór/KA 2-1 í Grindavík. Suðurnesjaliðið er nýliði í Bestu deildinni. Erin Flurey kom norðankonum yfir en Natasha Anasi jafnaði fyrir Grindavík/Njarðvík áður en Sigríður Emma Jónsdóttir skoraði sigurmarkið á loka mínútu leiksins. Í hinum leik kvöldsins vann Þróttur svo 2-1 sigur á FH. Berglind Freyja Hlynsdóttir kom FH yfir en Sigríður Th. Guðmundsdóttir og Kayla Rollins skoruðu mörk Þróttar. Þetta var fyrsti sigur Þróttar í deildinni í sumar. Fyrir 38 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Vilja útrýma notkun jarðefnaeldsneytis Alþjóðleg loftslagsráðstefna í Kólumbíu er fyrsta umhverfisverndarráðstefnan þar sem fókusinn er á orkuskipti og hvernig þjóðir heims geta sagt skilið við jarðefnaeldsneyti. Fyrir 50 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar „Ágætt að stjórnvöld ætli að hafa sérstakt aðhald með olíumarkaðinum“ Verð á eldsneyti lækkar á morgun. Útgjöld meðalneytanda ættu að lækka um 50 þúsund krónur á ári. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda fagnar því að Samkeppniseftirlitinu verði gert að vakta að lækkunin skili sér til neytenda. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi „Við getum endalaust elt en það er eftirspurnin sem drífur“ Lögreglan getur haldið áfram að eltast við fólk sem brýtur lög um vændiskaup en rót vandans er eftirspurnin og hve arðbær starfsemin er, segir yfirlögfræðingur Lögreglunnar á Suðurnesjum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosið um endurreisn Grindavíkur „Það hefur verið lítil pólitík í Grindavík,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins. Lítið var um ágreiningsefni í oddvitaumræðum í Grindavík í kvöld og eru þeir staðráðnir í að vinna saman að uppbyggingu og endurreisn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þjóðþekktir Íslendingar nafngreindir á vafasamri vefsíðu Vafasöm vefsíða hefur skotið upp kollinum á Íslandi á undanförnum dögum. Tilgangur hennar er að vara við ofbeldismönnum um heim allan, en hver sem er getur sett inn nafn og merkt við hvernig ofbeldi viðkomandi á að hafa beitt - alveg nafnlaust. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður í Grindavík Endurreisn samfélagsins í Grindavík var oddvitum lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu ofarlega í huga í oddvitaumræðum. Þrír listar eru í framboði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturland Banaslys í Skorradalsvatni Kajakræðari fannst látinn norðan megin í Skorradalsvatni í gær. Lögreglan biður húseigendur í frístundabyggðum Skorradals að yfirfara myndefni úr öryggismyndavélum milli klukkan 15:30 og 19:00 í gær. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddvitaumræður í Skagafirði Oddvitar framboða í Skagafirði mættust í oddvitaumræðum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Fjórir listar eru í framboði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Spurningum um ESB-aðild og evru svarað Aukinn útflutningur og lægri kostnaður heimila og fyrirtækja eru á meðal helstu ábata aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Á móti kemur að erfiðara yrði að bregðast við sveiflum í hagkerfinu. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Ný höggmynd eftir Banksy vekur athygli í London Skúlptúrinn sýnir mann í jakkafötum sem heldur á stórum fána. Fáninn hylur andlit mannsins sem sér því ekki að hann er við það að ganga af stöplinum. Stjórnandi hlaðvarps á BBC um Banksy segir þetta vera snilldarverk. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Dómnefnd Feneyjatvíæringsins segir af sér í mótmælaskyni Þátttaka Ísraels og Rússlands hefur verið bitbein í aðdraganda Feneyjartvíæringsins sem hefst 9. maí. Búið er að fresta verðlaunaafhendingu hátíðarinnar sem átti að fara fram sama dag. Hún verður þess í stað haldin 22. nóvember. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarráð vill að sýslumaður fjölgi utankjörfundarstöðum Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu sýslumanns í Hlíðarsmára í Kópavogi. Borgarráð segir ákvörðun sýslumanns um að hafa atkvæðagreiðsluna aðeins á einum stað skerða verulega aðgengi kjósenda að henni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Svört rigning fellur til jarðar í Rússlandi Úkraínumenn hafa aukið árásir á olíuinnviði Rússa undanfarna mánuði. Árásirnar hafa haft mikil áhrif og íbúar í borgum og bæjum nærri skotmörkum Úkraínumanna hafa meðal annars þurft að þola svarta rigningu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Frítt í strætó fyrir grunnskólabörn Reykjavíkur Borgarráð hefur samþykkt tillögur varðandi útfærslu þess að fella niður gjöld í strætó fyrir reykvísk grunnskólabörn. Áætlaður kostnaður við tillögurnar fyrir maí og júní eru tæpar 50 milljónir króna. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Reykjavíkurborg Guðjón Friðriksson er heiðursborgari Reykjavíkur Borgarstjóri sæmdi Guðjón Friðriksson, sagnfræðing og rithöfund, heiðursborgaranafnbótinni við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Hann hefur fengið margar viðurkenningar fyrir störf sín og verið sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Sonur fyrrverandi sendiherra Noregs látinn Sonur Monu Juul, sem sagði af sér sem sendiherra Noregs í Jórdaníu og Írak vegna tengsla við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, er látinn. Hann var 25 ára. Juul og eiginmaður hennar gagnrýna áhrif fjölmiðlaumfjöllunar á börnin þeirra. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Olíufélög sektuð ef lækkun skilar sér ekki til neytenda Samkeppniseftirlitið má sekta olíufélög sem fara ekki að lögum um tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Hann lækkar úr 24% í 11% á morgun og gert er ráð fyrir að lækkunin skili sér að fullu til neytenda. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkin leita bandamanna til að opna fyrir umferð um Hormússund að nýju Bandaríkin hyggjast efna til alþjóðlegs samstarfs til að koma umferð skipa af stað um Hormússund að nýju. Siglingaleiðin er enn að mestu lokuð vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Lokun sundsins hefur meðal annars áhrif á eldsneytisverð. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vesturbyggð Tveir strandaglópar í Flatey eftir tilfærslu Baldurs Vesturbyggð fékk engan fyrirvara um að ferjan Baldur skyldi sigla til Vestmannaeyja næstu daga. Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir ferjuna afar mikilvæga fyrir íbúa og atvinnulíf og óskiljanlegt hvers vegna ekkert samráð hafi verið. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist „Það er svo dýrmætt að semja tónlist með bestu vinkonu sinni“ Söngkonurnar Silja Rós og Bergrós hafa samið mikið af tónlist saman síðastliðin ár og fleiri lög eru í vinnslu. Þær sögðu frá nýju lagi í Popplandi á Rás 2. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Skoða hvort mögulegt sé að sigla í Landeyjahöfn á flóði Stefnt er að því að mæla dýpt Landeyjahafnar síðdegis. Breiðafjarðarferjan Baldur er lögð af stað suður fyrir land þar sem hún siglir á milli lands og Eyja næstu daga. Við það skerðast ferjusiglingar um Breiðafjörð. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstrið vill borg friðar og mannréttinda Oddviti Vinstrisins segir framboðið leggja áherslu á að Reykvíkingar geti búið sér heimili og liðið vel þar. Jöfnuður, velferð, náttúruvernd og almenningssamgöngur eru meðal áherslumála framboðsins. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Segir kjör og starfsaðstæður leikskólastarfsfólks óboðleg Niðurstöður könnunar um kjör og líðan ófaglærðra leikskólastarfsmanna koma ekki á óvart, segir formaður Eflingar. Kerfið sé látið ganga á kostnað andlegrar og líkamlegrar heilsu starfsfólks. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Segir Grindvíkinga lenda á vegg hjá Þórkötlu Forsætisráðherra hafnar því að stjórnvöld séu að hægja á enduruppbyggingu í Grindavík. Þvert á móti vilji ríkisstjórnin hraða uppbyggingunni en það þurfi að gera með réttum hætti. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Karl Gústaf Svíakonungur áttræður Svíar fagna á