Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Grindavík vann fyrsta leikinn gegn Val naumlega

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík vann fyrsta leik­inn gegn Val naum­lega Einar Örn Jónsson Grindavík og Valur mættust í kvöld í fyrsta leik sínum í undanúrslitum Bónusdeildar karla. Leikið var í Grindavík og fóru heimamenn með sigur af hólmi, 82-81. Jeremy Raymon Pergo skoraði sigurkörfu Grindavíkur hálfri mínútu fyrir leikslok en Grindavík vann upp 6 stiga forskot Vals í lokaleikhlutanum. Liðin mætast næst í Valsheimilinu á laugardag. Vinna þarf þrisvar til að komast í úrslitaviðureignina. Mummi Lú Fyrir 15 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Valur í úrslit - ÍBV tók for­yst­una gegn Haukum Einar Örn Jónsson Valur vann Fram í kvöld í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olísdeildar kvenna. Valskonur unnu alla þrjá leikina í einvíginu og eru komnar í úrslit. Í hinu einvíginu mættust ÍBV og Haukar í Vestmannaeyjum. Þar var gríðarleg spenna og var leikurinn framlengdur. Eftir mikla rimmu vann ÍBV eins marks sigur, 38-37. Staðan í einvígi liðanna er nú 2-1 fyrir ÍBV. Fjórði leikur liðanna er á laugardag í Hafnarfirði og sá fimmti í eyjum á þriðjudag ef á þarf að halda. Arna Karítas Eiríksdóttir og liðsfélagar í Val eru komnar í úrslit Olísdeildarinnar. RÚV / Mummi Lú Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Beita út­hugs­uð­um að­ferð­um til að ginna börn Það getur verið mismunandi eftir hverfum hvaða samfélagsmiðlar eru notaðir til að ginna börn. Lögreglumaður telur foreldra stundum feimna við að fylgjast með samfélagsmiðlanotkun barna sinna. Fyrir 40 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær „Bæj­ar­stjórn hefur tekið þá ákvörð­un að það verði skóla­hald í bænum í haust“ Bæjarstjórn Grindavíkur hefur tekið þá ákvörðun að skólahald verði í bænum í haust. Þetta kom fram á íbúafundi sem haldinn var í bænum í dag. Í ályktun íbúa af fundinum er gerð afdráttarlaus krafa um að stjórnvöld tryggi skólahald í bænum í haust. Fyrir 43 mínútumÍÞRÓTTIR Blak HK Ís­lands­meist­ari eftir svaka­lega end­ur­komu HK varð í kvöld Íslandsmeistari kvenna í blaki, þrátt fyrir að hafa lent 2-0 undir í þriðja úrslitaleiknum gegn KA. HK vann þrefalt í vetur. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Bjó til dróna sem leitar að fólki með hita­mynda­vél Tuttugu og tveggja ára háskólanemi hannaði dróna sem getur leitað að fólki, meðal annars með því að nema líkamshita. Hann sér fyrir sér að dróninn geti reynst vel við leit og björgun, sér í lagi þar sem útsýni er takmarkað. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Allt í járnum í leikj­um kvölds­ins í Bestu Einar Örn Jónsson Fyrstu tveir leikir 3. umferðar Bestu deildar karla voru í kvöld. Keflavík tók á móti Breiðabliki og var það fyrsti leikur sumarsins sem er leikinn á grasi. Hvort því sé um að kenna eða ekki þá voru engin mörk skoruð. Keflavík fékk sitt fyrsta stig í kvöld en Breiðablik er með 5 stig eftir þrjá leiki. Á Akranesi var KA í heimsókn og þar fór 1-1. Markús Páll Ellertsson kom ÍA yfir eftir 32 mínútur og Diego Montiel jafnaði þegar 20 mínútur voru eftir. Þetta var líka fyrsta stig KA í vor. ÍA er með 2 stig. Valgeir Valgeirsson, Bliki Mummi Lú Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Tempra launa­hækk­an­ir kjör­inna full­trúa Launahækkanir kjörinna fulltrúa og embættismanna verða minni en áður var ætlað ef frumvarp fjármálaráðherra verður samþykkt. Markmiðið er sagt að skapa sem víðtækasta sátt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kosn­inga­áhersl­ur Sjálf­stæð­is­flokks­ins kynnt­ar Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík kynnti í dag kosningaáherslur sínar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hildur Björnsdóttir, oddviti segir flokkinn leggja áherslu á allt sem hægt sé að framkvæma strax. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Glódís Perla og Bayern meist­arar í Þýska­landi fjórða árið í röð Einar Örn Jónsson Bayern München lagði Union Berlín að velli í þýsku kvennadeildinni í fótbolta í dag, 3-2. Sigurinn tryggir Bæjurum þýska titilinn fjórða árið í röð. Glódís Perla Viggósdóttir bar að venju fyrirliðaband Bayern í dag en fór af velli þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum. Fjórar umferðir eru eftir í deildinni en titillinn þegar í höfn. Það er skammt stórra högga á milli hjá Glódísi Perlu og Bayern því á laugardag spilar liðið fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Barcelona. Sá leikur verður sýndur beint á RÚV klukkan 16:15 á laugardag. Glódís Perla með sigurskjöld þýsku deildarinnar í fagnaði liðsins fyrir ári síðan. EPA / ANNA SZILAGYI Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Svart­fjalla­land færist nær Evr­ópu­sam­band­inu Ríki Evrópusambandsins samþykktu í dag að byrja samsetningu á inngöngusáttmála Svartfjallalands í Evrópusambandið. Stjórnvöld í landinu stefna að inngöngu eftir tvö ár. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lít­illi flug­vél hlekkt­ist á í lend­ingu á Norð­firði Þorgils Jónsson Lítilli eins hreyfils tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu og hvolfdi á Norðfjarðarflugvelli um klukkan hálf fjögur í dag. Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi segir að flugmaðurinn hafi verið einn í vélinni og hafi sloppið án meiðsla. Orsakir óhappsins eru til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa. Frá Norðfjarðarflugvelli. Myndin er úr safni. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum „Stærsta orku­kreppa sög­unn­ar“ Heimurinn stendur frammi fyrir stærstu orkukreppu sögunnar vegna stríðsins í Íran, að mati framkvæmdastjóra Alþjóðaorkumálastofnarinnar. Meiri olía og gas hafi tapast en í fyrri orkukreppum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Liam Ros­en­i­or rekinn frá Ch­el­s­ea – samdi til sex og hálfs árs fyrir þremur mán­uð­um Einar Örn Jónsson Enska fótboltafélagið Chelsea rak í dag þjálfara karlaliðs félagsins, Liam Rosenior. Chelsea hefur tapað fimm leikjum í röð, nú síðast gegn Brighton í gærkvöldi, 3-0. Rosenior entist ekki lengi í starfi. Hann tók við í janúar eftir að Enzo Maresca var rekinn og entist í 104 daga. Rosenior stýrði áður Strasbourg, sem er í eigu þeirra sem eiga Chelsea, og gerði sex og hálfs árs samning. Það kom ekki í veg fyrir að hann fengi að taka pokann sinn. Chelsea leitar því að þriðja þjálfaranum á þessari leiktíð og hefur Andoni Iraola, sem nú stýrir Bournemouth, verið nefndur. Hann tilkynnti í síðustu viku að hann myndi ekki vera áfram í Bournemouth. Liam Rosenior entist 3 mánuði af 77 mánaða samningi við Chelsea. EPA / ANDY RAIN Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Hætta á gróð­ur­eld­um næstu daga Ragnhildur Helgadóttir Slökkviliðið varar við aukinni hættu á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu næstu daga eftir langvarandi þurrka. Gróður er ekki farinn að taka við sér og mikið af sinu er til staðar, sem getur skapað hættu á gróðureldi. „Við hvetjum fólk að sýna sérstaka aðgát við meðferð elds utandyra, forðast opinn eld og ganga úr skugga um að ekki kvikni í gróðri,“ segir í tilkynningu frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Verði fólk vart við gróðureld er það beðið um að hafa strax samband við neyðarlínuna í síma 112. Veðurstofan spáir rigningu síðar um helgina sem gæti dregið úr hættunni. RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ís­lenskt trygg­inga­fé­lag varar við lækna­stofu á Kanarí Fjöldi svikamála hefur komið á borð tryggingafélagsins Varðar sem hafa tengst læknastofu á Gran Canaria. Vörður varar fólk við að sækja þangað þjónustu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Beint frá íbúa­fundi í Grinda­vík Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Gagn­rýna eft­ir­lits­leysi með Gauks­stöð­um: „Þannig að ég er bara labb­andi launatékki“ Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum segist ítrekað hafa reynt að benda barnaverndaryfirvöldum á að ekki væri allt með felldu þar. Kona sem bjó á heimilinu hringdi sjálf í barnavernd sem barn og faðir hennar sömuleiðis. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Ekkert standi í vegi fyrir hval­veið­um í sumar Núverandi hvalveiðilöggjöf er barn síns tíma, segir atvinnuvegaráðherra sem hefur boðað frumvarp um hvalveiðibann. Ekkert stendur í vegi fyrir hvalveiði í sumar í kjölfar þess að Bjarni Benediktsson veitti leyfi til fimm ára 2024. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Sá hand­tekni í Sví­þjóð á tán­ings­aldri Hallgrímur Indriðason Framhaldsskóli í Borlänge. Tveir lögreglubílar stóðu vaktina þar í morgun. SVT / Jennifer Howgate Hinn handtekni í tengslum við hótun um ofbeldi í skóla í Borlänge í Svíþjóð er drengur á táningsaldri. Hótanirnar urðu til þess að 20 skólum í bænum var lokað. Sænskir fjölmiðlar segja að hótunin hafi falið í sér skotárás en lögreglan hefur ekki tjáð sig um það. Lögreglan hafði lýst eftir drengnum á mánudaginn. Hún er með hótanirnar til rannsóknar og er verið að yfirheyra drenginn vegna þeirra. Hættan vegna hótananna er liðin hjá og skólarnir munu starfa eðlilega á morgun. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Skýrsla Rík­is­end­ur­skoð­un­ar ákveð­ið reið­ar­slag Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir ljóst að skýra þurfi hver beri ábyrgð á viðbragði við náttúruhamförum. Ríkisendurskoðun telur uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga hafa verið ríkislögreglustjóra ofviða. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Blaða­manna­fé­lag­ið for­dæm­ir harðn­andi orð­ræðu í garð blaða­manna Árásir, dylgjur og alvarlegar ásakanir í garð blaðamanna frá kjörnum fulltrúum og áhrifafólki í samfélaginu grafa undan trúverðugleika stéttarinnar. Harðnandi orðræða var fordæmd á aðalfundi BÍ í gær. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Kröfur til með­ferð­ar­heim­ila óljós­ar Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála hefur lokið frumkvæðisathugun á þjónustu meðferðarheimila Barna- og fjölskyldustofu. Í skýrslunni segir að framboð á þjónustu meðferðarheimila hafi verið verulega skert frá 2024. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Mengað vatns­ból vegna hraun­rennsl­is meira mál en biluð lögn Nokkuð af lykilinnviðum er á viðkvæmum slóðum í nýju hraunavá

Share this article