- What: A man is accused of attempted terrorism and weapons offenses in Iceland.
- Impact: The case is being heard in the Supreme Court.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 14:40 Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Sindri Snær Birgisson í Hæstarétti í morgun. mbl.is/Eggert Sindri Snær Birgisson er þriggja barna faðir og enginn „hryðjuverkamaður“. Þetta sagði Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra, fyrir Hæstarétti í dag. Sindri er ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og stórfellt vopnalagabrot. Ísidór Nathansson er ákærður fyrir hlutdeild í broti Sindra. Sindri var mættur fyrir dóm í morgun en ekki Ísidór. Sindri var hins vegar ekki viðstaddur eftir hádegishlé. Sakborningarnir fara fram á að ákæru um tilraun til hryðjuverka sé vísað frá dómi en til vara að sýknudómur Landsréttar verði staðfestur. Þeir voru þó dæmdir fyrir stórfellt vopnalagabrot. Málflutningur Sveins Andra rímaði að mestu leyti við málflutning hans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti. Hann nefndi meðal annars óréttmæta meðferð lögreglu og ákæruvaldsins og að ákæran málsins sé ófullnægjandi. Verjandinn sagði engu lýst um háttsemi sakborninganna, né hvenær eða hvar átti að fremja hryðjuverk í ákærunni. Heldur slengdi ákæruvaldið því fram að fremja átti hryðjuverk einhvern tímann á Íslandi. Frétt af mbl.is Ekki mormóni þó hugmyndafræðin sé stúderuð Sveinn Andri Sveinsson verjandi í Hæstarétti í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ummælunum fylgdi ekki athöfn Hann sagði að samtöl sakborninganna hefðu verið klippt til og tekin úr samhengi. Um hefði verið að ræða grín þar sem farið var úr einu í annað. Sveinn Andri nefndi að samskipti þeirra hefðu ekki verið dulkóðuð og þeim ekki eytt líkt og Signal-forritið býður upp á. Samtölin hefðu verið „galopin“ og að engum ummælum fylgdi nein athöfn. Þau sýndu alls ekki ótvíræðan ásetning. Nefndi hann meðal annars að mikilvægt sé að meta ásetning með því að setja sig inn í huga einstaklinga og því þurfi að fá heildarmynd af samskiptum mannanna. Sveinn Andri nefndi að á fyrri dómsstigum hefði Sindri lýst yfir mikilli eftirsjá að þessum samtölum. Frétt af mbl.is „Skammast mín alveg verulega“ Svíar kippa sér ekki upp Ríkissaksóknari hefur lagt áherslu á að meta þurfi heildarmyndina, ekki einstaka liði ákærunnar. Þeir eru alls 64. Sveinn Andri er þessu ekki sammála og sagði að ef meta eigi málið heildstætt þá verði að fara yfir hvern og einn lið ákæru, sem hann svo gerði fyrir dóminum. Sér til stuðnings nefndi hann dæmi um að ef maður væri tekinn 64 sinnum rétt undir áfengismörkum væri ekki hægt að dæma hann fyrir akstur undir áhrifum. Sveinn Andri nefndi í kaldhæðni að Sindri hefði farið fimm sinnum til Svíþjóðar til að heimsækja kærustu sína eftir að málið kom upp. Svíar hefðu hins vegar ekki verið að kippa sér upp við að „stórhættulegur hryðjuverkamaður“ væri í landinu. Lífið tekið úr sambandi Hann nefndi að lokum að frá því í september árið 2022, er tvímenningarnir voru handteknir, hefði líf Sindra verið tekið úr sambandi. Hann hefði hvergi getað fengið vinnu og því reynt að bjarga sér með því að stunda nám. Sveinn Andri nefndi einnig að ýmislegt hefði gengið á í lífi Sindra en hann missti yngri systur sína meðal annars úr illvígu krabbameini fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Verjandinn sagði að á 30 ára ferli sínum hefði hann kynnst ýmsum einstaklingum og þekkir orðið þá karaktera sem leiðast út í glæpi. Sveinn Andri sagðist þekkja Sindra og að hann væri enginn „hryðjuverkamaður“. Frétt af mbl.is Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Málmflís fannst í lifrapylsu Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Keyrði ítrekað á fyrrverandi kærustuna Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Sólveig klár í verkfallsaðgerðir ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Níu drepnir í skotárás í Kanada Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Málmflís fannst í lifrapylsu Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Keyrði ítrekað á fyrrverandi kærustuna Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Sólveig klár í verkfallsaðgerðir ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Allt var stöðvað: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Sindri mættur fyrir dóm Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson