- What: The Icelandic Supreme Court is hearing a terrorism case involving individuals accused of planning terrorist acts.
- Impact: The case involves charges of attempted terrorism and complicity, with the accused previously acquitted on those charges but convicted of weapons offenses.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 7:55 Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Frá aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar árið 2024. mbl.is/Eggert Jóhannesson 1.239 dagar eru síðan embætti ríkislögreglustjóra greindi frá því að grunur væri á að nokkrir menn hefðu verið að skipuleggja hryðjuverk hér á landi. Nú tæplega þremur og hálfu ári síðar mun æðsta dómstig landsins taka hryðjuverkamálið svokallaða fyrir. Sindri Snær Birgisson er nú 29 ára gamall og Ísidór Nathansson 27 ára. Sindri var ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og Ísidór hlutdeild í broti hans. Þeir voru sýknaðir af þeirri ákæru í héraðsdómi og Landsrétti en dæmdir fyrir stórfellt vopnalagabrot. Í fyrsta sinn í íslenskri réttarfarssögu reyndi á 100. gr. a. almennra hegningarlaga, það er að segja hryðjuverkaákvæðið. Hér verður stiklað á stóru í þessu reyfarakennda máli. Frétt af mbl.is Hryðjuverkamálið: Félagar með svartan húmor Úr vopnum yfir í hryðjuverkaáform Upphaf málsins má rekja til þess að lögreglu bárust upplýsingar í ágúst 2022 um að Sindri væri að búa til og selja þrívíddaprentuð vopn sem voru tengd við skotárás fyrr á árinu. Hann sat í gæsluvarðhaldi í viku vegna þess áður en honum var sleppt. Hluti þeirra vopna sem lögreglan lagði hald á. mbl.is/Arnþór Á þeim tíma hafði lögreglu tekist að afla rafrænna gagna úr farsíma Sindra. Að mati lögreglu voru samskipti hans og Ísidórs talin vera efnislega af þeim toga að þau gætu tengst meintum hryðjuverkaáformum af ýmsum toga. Degi síðar voru þeir báðir handteknir – þrátt fyrir að lögregla hefði fengið samþykktar ýmsar rannsóknaraðgerðir á hendur tvímenningunum í fjórar vikur. Sama dag sendi lögreglan frá sér tilkynningu þar sem sagði að „hættuástandi“ hefði verið afstýrt. Frétt af mbl.is Fjórir handteknir og „hættuástandi afstýrt“ 29. september sagði embætti ríkislögreglustjóra sig síðan frá rannsókn málsins þar sem kom í ljós að faðir þáverandi ríkislögreglustjóra, Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, hafði selt sakborningunum riffil. Embætti héraðssaksóknara tók við rannsókninni. Sindri og Ísidór sátu í gæsluvarðhaldi í tæplega þrjá mánuði þar til Landsréttur hafnaði kröfu um framlengingu. Það var meðal annars gert vegna niðurstöðu geðmats. Nokkrum dögum síðar hækkaði ríkislögreglustjóri viðbúnaðarstig vegna öryggisógnar. Það hefur ekki verið lækkað síðan. Frétt af mbl.is Felldu niður rannsókn á föður ríkislögreglustjóra Óskýr ákæra Það var svo ekki fyrr en í febrúar árið 2024 sem Héraðsdómur Reykjavíkur tók málið loks fyrir. Málið tafðist meðal annars af því að gefa þurfti út nýja ákæru þar sem sú fyrri þótti óskýr er varðar hryðjuverkahlutann. Í mars það ár sýknaði héraðsdómur mennina af þeim hluta ákærunnar. Sindri var dæmdur í 24 mánaða fangelsi fyrir vopnalagabrot og Ísidór í 18 mánaða fangelsi. Landsréttur mildaði síðan dómana, tæpu ári síðar. Sindri var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánaða fangelsi. Frétt af mbl.is Ólíkir túlkunarkostir á dómstigunum Dómur kveðinn innan mánaðar Ólíkt dómþingi hinna tveggja dómstiganna munu sakborningarnir ekki gefa skýrslu fyrir Hæstarétti heldur er einungis um munnlegan málflutning sækjanda og verjenda. Dómþing hefst klukkan 9 og hefur ákæruvaldið 90 mínútur til að flytja mál sitt, Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Sindra, fær 120 mínútur og Ásgeir Þór Árnason, nýr lögmaður Ísidórs, fær 60 mínútur. Er dómur fellur fyrir 11. mars mun þessu einstaka máli í íslenskri réttarfarssögu síðan að öllum líkindum ljúka fyrir íslenskum dómstólum. mbl.is mun greina frá málflutningnum síðar í dag. Frétt af mbl.is „Þetta var ekkert grín“ Handtekinn vegna hvarfs Guthrie Geislaði í kjól Marilyn Monroe frá árinu 1952 Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Níu drepnir í skotárás í Kanada ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Að minnsta kosti sex hlíft með yfirstrikunum Hjólað í verðtryggingu um áramót Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Mun fleiri taka hlutdeildarlán Allt að sjö stiga frost í dag Unga fólkið hefur forgang í íbúðirnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum Handtekinn vegna hvarfs Guthrie Geislaði í kjól Marilyn Monroe frá árinu 1952 Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Níu drepnir í skotárás í Kanada ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Hækkun ríkisútgjalda á sjálfstýringu Fleira áhugavert Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Auknar líkur á þunglyndi fyrir framan skjá „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Samkomulag loks í augsýn rúmum sjö árum síðar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Mun fleiri taka hlutdeildarlán Allt að sjö stiga frost í dag Unga fólkið hefur forgang í íbúðirnar Þrír handteknir eftir innbrot í verslun Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Tæplega 600 skráð sig úr flokknum