- What: Icelandic prosecutors are seeking a heavy sentence for two individuals accused of planning terrorist acts.
- Impact: The case involves preparations for potential attacks, including acquiring weapons and information on bomb-making.
Innlent | mbl | 11.2.2026 | 11:55 Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Anna Barbara Andradóttir, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknari og Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ríkissaksóknari fer fram á að Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson verði sakfelldir fyrir tilraun til hryðjuverka og fer fram á þunga refsingu í hryðjuverkamálinu. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í málflutningi sínum fyrir Hæstarétti að er heildarmynd málsins væri skoðuð væri ljóst að Sindri hafi ætlað að fremja hryðjuverk. Hann hefði meðal annars verið búinn að verða sér úti um vopn, tileinka sér efni þekktra hryðjuverkamanna, afla sér upplýsinga um sprengju- og drónagerð, mögulega brotaþola og lögreglubúnað. Allt þetta væru undirbúningsathafnir sem miðuðu að því að fremja hryðjuverk. Þá sagði hún Ísidór „yfir og undir og allt um kring“ í málinu, meðal annars þar sem Sindri hefði leitað til Ísidórs til hvatningar. Sigríður nefndi að Ísidór hefði eytt gríðarmiklu magni af tölvu sinni sem og Signal-samskiptunum daginn áður en hann var handtekinn. Lögreglu hefði tekist að endurheimta hluta efnisins, þar á meðal annars hans eigið manifestó. Reiði og andúð að baki Það hvort Sindri og Ísidór hefðu sýnt ótvírætt í verki ásetning til að fremja hryðjuverk er stóra spurning málsins. Um helmingur málflutningstíma Sigríðar fór í að fara yfir og túlka lagaákvæðin sem tvímenningarnir eru ákærðir fyrir brot á, þ.e.a.s. tilrauna- og hryðjuverkaákvæði almennra hegningarlaga. Lítið hefur reynt á bæði ákvæði í íslenskum dómafordæmum. Frétt af mbl.is Ólíkir túlkunarkostir á dómstigunum Er varðar skilgreiningu á hryðjuverkum nefndi hún að ekki sé skilyrði að hugmyndafræði búi að baki, heldur geti reiði og andúð í garð ákveðinna hópa legið að baki og verkið framið í þeim tilgangi að valda almenningi verulegum ótta. Sigríður sagði það eiga við í tilviki Sindra. Sindri Snær Birgisson í Hæstarétti í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson Lögregla stöðvaði hryðjuverk Sigríður sagði mikilvægt að meta undirbúningsathafnir mannanna í heild, ekki hverrar og einnar. Hún sagði að undirbúningsathafnir þeirra hefðu verið í fullum gangi þegar þeir voru handteknir í september árið 2022. Ekkert benti til að þeir ætluðu að setja verkið til hliðar og engan bilbug að finna á þeim. Því metur ákæruvaldið að lögregla hefði stöðvað áform þeirra. Sigríður sagði að enginn hefði getað stöðvað Sindra ef hann hefði verið klæddur sem lögreglumaður með árásarriffil og 30 skota magasín sem gat tæmst á 10 sek, líkt og athafnir hans bentu til að hann ætlaði að gera. Hún sagði að ekki mætti gefa afslátt af sönnunarkröfum í málinu en að hárfín lína væri á milli undirbúnings og framkvæmdar, þ.e.a.s. hvenær væri gengið út með riffilinn. Frétt af mbl.is Karl Steinar: „Rétt að stíga inn í þetta“ Fullorðnir menn að tala saman Sigríður sagði að ekki væri hægt að afskrifa samtöl Sindra og Ísidórs sem innihaldslaust hjal. Samskiptin hefðu átt sér stað í marga mánuði. Þeir séu ekki börn né glími við neina alvarlega geðræna kvilla. Heldur væri um að ræða tvo fullorðna menn sem töluðu saman, annar þeirra væri yfirlýstur kynþáttahatari og einangrunarsinni og hinn með mikla reiði í garð samkynhneigðra og lögreglu. Dómarar spurðu ríkissaksóknara þá um gagnrýni verjenda um að ummæli mannanna hefðu verið tekin úr samhengi. Sigríður gaf ekki beint svar við því heldur sagði að samskiptin lægju fyrir og að í málsgögnum væru þau ummæli sem máli skipti. Frétt af mbl.is „Rörsýn“ lögreglu og átt við sönnunargögn Íþyngjandi mál fyrir mennina Líkt og áður sagði þá fer ákæruvaldið fram á að mennirnir verði sakfelldir og refsing eigi að vera þung. Ef svo fari að þeir verði einungis sakfelldir fyrir stórfellt vopnalagabrot fer ríkissaksóknari fram á þyngingu refsingar og nefndi Sigríður að þyngsta refsing sem lög leyfa séu sex ár. Hún sagði alvarleika vopnalagabrotanna fordæmalausan. Mennirnir hefðu verið að framleiða stórhættuleg vopn, manndrápstól. Þá vísaði hún til þess að rannsókn málsins hófst eftir að upp komst að Sindri seldi manni vopn sem notað var í skotárás í Grafarholti í febrúar árið 2022. Sigríður sagði það heppni eina að brotaþola hefði ekki orðið bana af. Frétt af mbl.is Dæmdur í 8 ára fangelsi vegna skotárásar Að lokum sagði saksóknarinn að við ákvörðun refsingar megi líta til þess að málið hafi verið íþyngjandi fyrir Sindra og Ísidór þar sem það hefur dregist á langinn í réttarkerfinu. Hluti skotfær og vopna sem lögregla lagði hald á. mbl.is/Hólmfríður María Icelandair flýgur til Tromsø Útflutningur til Bandaríkjanna stóð í stað 2025 Myndskeið: Enn von í Vestmannaeyjum Framlengja varðhald vegna andlátsins Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Auknar líkur á þunglyndi fyrir framan skjá Nýtt framboð í Grímsnesinu Neitar afturvirkni í búvörufrumvarpi Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Icelandair flýgur til Tromsø Útflutningur til Bandaríkjanna stóð í stað 2025 Myndskeið: Enn von í Vestmannaeyjum Framlengja varðhald vegna andlátsins Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi ETS: sjálfsskaðakerfi ESB Samræmismat en ekki samningar Fleira áhugavert Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Trump virðist hafa vitað meira Epstein-vináttan sem skekur bresk stjórnmál Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Sindri mættur fyrir dóm Engir skattar verða hækkaðir fyrir vikið Fullt út úr dyrum á minningarleik um Patrek Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag Mestu vonbrigðin í forstjóratíð Runólfs Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Lést eftir að hafa smitast af berklum Andlát: Valgarð Már Jakobsson Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn