Innlent | mbl | 13.4.2026 | 22:00 „Þetta er gríðarlega áhugaverður sigur“ Árni sótti blaðamannafund Péter Magyar, verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, í dag. Ljósmynd/Árni Snævarr Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Sigur Péter Magyar í ungversku þingkosningunum þykir magnaður og athyglisverður að mörgu leyti, þá sérstaklega þegar horft er til taumhalds Viktors Orbáns á fjölmiðlum þar í landi. Magyar, sem nú er verðandi forsætisráðherra, hyggst ætla að sækja þá peninga sem hann segir að stolið hafi verið frá ungversku þjóðinni í valdatíð Orbáns. Þetta segir Árni Snævarr, rithöfundur og upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, í samtali við mbl.is. Árni er staddur úti í Ungverjalandi þar sem hann hefur fylgst með þingkosningunum og lýsir því í samtali við blaðamann mbl hvernig gleði og fögnuður brutust út á götum Búdapest er ljóst varð í gær að flokkur Magyar hefði náð 2/3 meirihluta á þinginu. Fólk söng og dansaði á götunum „Það sem gerir þessar kosningar allt öðruvísi en kosningar í flestum öðrum ríkjum er það að stjórnarflokkur Orbáns, Fidesz, hefur breytt stjórnarskránni ítrekað og kosningalögum hvað eftir annað með það í huga að það sé nánast vonlaust að koma flokknum frá, þ.e. að það sé kannski hægt að koma honum frá völdum en ekki hægt að uppræta áhrif hans,“ segir Árni og nefnir að í valdatíð Orbáns hafi t.a.m. eftirlaunaaldur dómara og saksóknara verið lækkaður með það að markmiði að þeir yrðu að víkja fyrir nýskipuðum „gæðingum“ Fidesz-flokks Orbáns. Því hafi mikil fagnaðarlæti brotist út í gær er ljóst varð að flokkur Magyar hefði náð meirihluta til að hnekkja fyrri breytingum. „Það var augnablikið þar sem fólk byrjaði að fagna. Svo færðist þetta bara almennt út á götur og fólk var bara að syngja og dansa og menn að flauta. En það verður að taka það fram að Búdapest er, og hefur lengi verið, í andstöðu við Orbán.“ Frétt af mbl.is Segir strengjabrúður Orbán-stjórnarinnar verða að víkja Árni var staddur í Búdapest þegar úrslit þingkosningana lágu fyrir. Ljósmynd/Árni Snævarr Aldrei fenginn í viðtal hjá ríkismiðlinum Árni sótti í dag blaðamannafund Magyar og segir að á löngum ferli hafi hann aldrei séð eins mikið af erlendri pressu og á umræddum fundi. Þá nefnir hann að sigur Magyars sé virkilega athyglisverður að því leyti til að forsætisráðherrann var aldrei fenginn í viðtal hjá ríkissjónvarpi Ungverjalands. „Magyar hefur aldrei komið í viðtal í ríkisútvarpinu né ríkissjónvarpinu. Það hefur bara aldrei verið talað við hann. 80% fjölmiðla eru á vegum ríkisins eða, sem algengara er, í eigu einhverra fylgismanna Orbáns. Þannig þetta er gríðarlega áhugaverður sigur að því leyti til.“ Þá segir hann sigur Magyar jafnframt magnaðan þegar horft sé til stuðnings meirihluta fjölmiðla við Orbán sem hlaut aukinheldur stuðning frá þjóðarleiðtogum á borð við Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Donald Trump Bandaríkjaforseta. „Að það dugi ekki til er magnað. Það er hreint út sagt magnað.“ Frétt af mbl.is Magyar boðar nýja tíma Ljósmynd/Árni Snævarr Spennandi tímar fram undan En segir það kannski ekki þá mikið um hvert ungverska þjóðin er komin? „Jú, algjörlega. Og það er tvennt í þessu. Annars vegar er það spillingin. Það er náttúrulega þannig að æskuvinur Orbáns, alveg frá því í blautri barnæsku, [Lorinc Mészáros] er orðinn ríkasti maður Ungverjalands og það verður ekki séð að maðurinn hafi unnið til þess nokkuð annað en að vera vinur forsætisráðherrans. Hann hefur unnið endalaus útboð og þess háttar og flokkurinn Fidesz hefur verið bæði beinlínis og óbeinlínis í alls kyns peningabraski, alls konar braski. Fyrst og fremst hefur það verið þannig að útboð á ríkisframkvæmdum hefur að verulegu leyti runnið til einhvers konar flokksgæðinga,“ segir Árni og nefnir að á blaðamannafundi Margyar í dag hafi hann verið harður á því að ná ætti til baka í peninga sem stolið hafði verið frá ungversku þjóðinni í valdatíð Orbáns. „Hvernig hann ætlar að gera það er náttúrulega ekki alveg ljóst en hann ætlar að stofna sérstaka rannsóknarstofnun til þess. Þannig það eru mjög spennandi tímar fram undan.“ Viktor Orbán, fráfarandi forsætisráðherra Ungverjalands. AFP Áróður um Úkraínu spilar þátt Bendir Árni þó á að þó að uppræta spillingu sé eitt helsta mál Magyar hafi ástandið verið viðvarandi lengi. Spillingin hafi verið yfirgengileg og harla leyndarmál. Það veki því upp spurninguna um hvað komi til að nú sé verið að taka á henni og nefnir Árni í því samhengi að lægð sé í ungverska hagkerfinu sem bitni á landsmönnum og spili ákveðinn þátt er kemur að viðhorfi fólks til Orbáns. Hins vegar nefnir Árni svo samskipti Ungverjalands og Rússlands sem annan þátt. „Orbán hefur verið að halla sér meira og meira að Rússum og Rússar eru ekki vinsælir í Ungverjalandi af sögulegum ástæðum. Svo er það eitt það mikilvægasta og það er að þessi áróður Orbáns um að hætta stafi af Úkraínu er náttúrulega absúrd því það vita allir að það voru Rússar sem réðust inn í Úkraínu.“ Frétt af mbl.is „Verður aftur sterkur bandamaður innan ESB og NATO“ Ljóst að Ungverska þjóðin vilji vera í Evrópusambandinu Ekki er langt síðan Orbán hindraði neyðarlán Evrópusambandsins upp á 90 milljarða evra sem ætlað er að styðja við fjárhags- og varnarmál Úkraínu árin 2026 og 2027. Aðspurður segir Árni Magyar hafa vikið sér undan spurningum þess efnis á blaðamannafundinum í dag. „Hann sagði að það væri búið að afgreiða málið og þess háttar og að hann tæki ekki við fyrr en eftir nokkrar vikur, þannig að mér fannst ekki alveg skýrt hvað hann ætlaði sér í því. En hins vegar má almennt segja að það sé alveg ljóst að fólkið í Ungverjalandi vilji vera í Evrópusambandinu. Ungverjaland hefur haft gríðarlegan hag af því að vera í Evrópusambandinu.“ Frétt af mbl.is Orbán kemur í veg fyrir fjárveitingu til Úkraínu Frétt af mbl.is Segir Evrópu vilja komast hjá neitunarvaldi Orbans Ferðast um Austur-Evrópu vegna bókarskrifa Spurður nánar um ferð sína til Ungverjalands til að fylgjast með kosningunum segir Árni bókarskrif liggja þar að baki. „Ég er að skrifa bók þar sem ég ber saman tímann þar sem kommúnisminn var að falla við það sem er að gerast núna. Ég var blaðamannanemi í París 1989 og ferðaðist mikið um Austur-Evrópu, og reyndar líka fyrir Ríkissjónvarpið aðeins seinna, og á þessum tíma töldu menn að frjálslynt lýðræði væri bara búið að vinna og það þyrfti ekkert að ræða neina hugmyndafræði framar. Kommúnisminn hefði verið sigraður. En það hefur náttúrulega orðið mikið bakslag, einkum í Austur-Evrópu, og ég hef svona verið að ferðast um þessi lönd eins og Ungverjaland, Rúmeníu, Pólland og Tékkland og bera það saman við það sem var áður og velta fyrir mér spurningunni af hverju frjálslynt lýðræði hefur ekki sigrað.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fimm stór hlutverk á árinu Lélegt ef við erum ekki í 30 mörkum „Þetta er gríðarlega áhugaverður sigur“ „Þetta er ár gervigreindarfulltrúanna“ Reynir Bergmann og Sólveig giftu sig í íþróttafötum Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Ísland á EM eftir stórsigur Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Kaus í fyrsta skipti 63 ára Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Lést eftir fall í Ölfusá Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Fimm stór hlutverk á árinu Lélegt ef við erum ekki í 30 mörkum „Þetta er gríðarlega áhugaverður sigur“ „Þetta er ár gervigreindarfulltrúanna“ Reynir Bergmann og Sólveig giftu sig í íþróttafötum Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir strengjabrúður Orbán-stjórnarinnar verða að víkja Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Ísland á EM eftir stórsigur Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Lést eftir fall í Ölfusá Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af