Bára Eyfjörð Jónsdóttir var nýlega ráðin fjármálastjóri Samherja hf. og tekur formlega við stöðunni í þessum mánuði. Hún hefur starfað hjá félaginu síðan 2006 og hefur gegnt ábyrgðarstöðum á sviði fjármála þvert á samstæðuna. Hún er fædd og uppalin á Grenivík en útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. „Úrvalið hérna fyrir norðan var annaðhvort að fara í viðskiptafræði eða sjávarútvegsfræði og ég ákvað að fara í sjávarútvegsfræði til að fá meiri breidd í námið. Helsta áherslan mín var á fjármálafögin en þar lá mitt helsta áhugasvið í náminu.“ Árið 2006 byrjaði Bára að vinna hjá Samherja samhliða námi í sumarafleysingu á skiptiborðinu og í bókhaldsdeildinni og var síðan ráðin fjárreiðustjóri Samherja hf. á árinu 2007 að lokinni útskrift. Nánar er fjallað um Báru í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .