Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bára ráðin fjármálastjóri Samherja

Read Full Article →

Bára Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Samherja hf. en hún hefur starfað hjá Samherja um tveggja áratuga skeið. Hún hefur gegnt ábyrgðarstöðum á sviði fjármála þvert á samstæðuna. Samhliða ráðningu nýs fjármálastjóra Samherja hf. hafa fjármálasvið og upplýsingatæknisvið Samherja Íslands ehf. verið sameinuð undir stjórn Finnboga Reynissonar sem verður fjármálastjóri félagsins. Þá mun Jón Rafn Ragnarsson einbeita sér að fjármálastjórn Samherja fiskeldis ehf. en hann hefur verið fjármálastjóri samstæðu Samherja frá árinu 2016. Bára er með B.Sc.-gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur unnið allan sinn starfsferil hjá Samherja en hún hóf störf samhliða háskólanámi árið 2006 og var síðan ráðin fjárreiðustjóri Samherja hf. á árinu 2007 að lokinni útskrift. Sjá einnig Paul Birger í stjórn Sam­herja fisk­eldis „Þann tíma sem ég hef starfað hjá Samherja hef ég sinnt fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Þar má nefna fjármögnun á ólíkum sviðum starfseminnar og umbreytingar á fjármálasviði. Þannig hef ég fengið tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu félagsins í gegnum árin,“ segir Bára Eyfjörð Jónsdóttir.

Share this article