Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stjórnarandstaðan líkleg til sigurs á sunnudaginn

Read Full Article →

„Það virkar eins og vindurinn sé meira í seglum stjórnarandstöðunnar, en við verðum að bíða eftir niðurstöðunum á sunnudag; Viktor Orban er sterkur andstæðingur sem hefur verið við völd í sextán ár,“ segir Zselyke Csaky, stjórnmálaskýrandi og greinandi hjá Centre for European Reform hugveitunni í Brussel í samtali við RÚV. (Viðtalið við Csaky (á ensku) er neðst í þessari færslu. Skoðanakannanir óháðra rannsóknarfyrirtækja í Ungverjalandi hafa í langan tíma sýnt að Tizsa, stærsti stjórnandstöðuflokkurinn, hefur talsvert meira fylgi en Fidez, flokkurinn sem Viktor Orban leiðir; nýjasta könnunin bendir til þess að Tisza gæti fengið um 140 af 199 þingmönnum á ungverska þinginu, og þar með aukinn meirihluta og stjórnmálaskýrendur búast við að kjörsókn verði meiri en nokkru sinni áður síðan 1989, þegar Ungverjaland losnaði undan oki Sovétríkjanna. Segja má að kosningabaráttan í Ungverjalandi snúist núna um tvo söguþræði; annars vegar söguna sem stjórnarflokkurinn vill segja um ógnir sem steði að Ungverjalandi utanfrá, og hins vegar sögu stjórnarandstöðunnar um spillingu þeirra sem setið hafi allt of lengi að völdum. „Megin röksemd stjórnarandstöðunnar í fyrri kosningum var að leiðtogar hennar væru ekki Viktor Orban,“ segir Csaky. „Það er vissulega það sem Peter Magyar og flokkmenn hans eru að segja núna, en þau reyna líka að tala um möguleikann á nýrri framtíð fyrir Ungverjaland. Fidez flokkurinn er að endurnýta sinn málflutning frá fyrri kosningum um erlenda óvini. Núna er það Úkraína, áður var það George Soros (ungversk-bandarískur auðkýfingur) , eða innflytjendur. Það virkaði fyrir Fidez í fyrri kosningum, en það er ekki víst að það virki í þetta skiptið. Spurningin núna er hvort kjósendur hafi meiri áhyggjur af stríði, eða stöðu efnahagsmála í Ungverjalandi, og svarið við þeirri spurningu verður ráðandi þátturinn í þessum kosningum.“ „Ungverjar kjósa með veskinu, og það virkaði fyrir Fidez í fyrri kosningum, því efnahagur Ungverjalands var á uppleið, en hagvöxtur hefur verið lítill sem enginn á undanförnum árum. Útlitið er aðeins betra núna, en orkukrísan hefur vakið upp þessar áhyggjur.“ Ekki búist við kúvendingum í utanríkismálum Peter Magyar, leiðtogi Tizsa flokksins er fyrrum liðsmaður Viktors Orban, og fréttaskýrendur hafa bent á að stefnumál Tizsa og Magyars séu að ýmsu leyti ekkert ósvipuð þeim sem stjórnvöld hafa rekið á undanförnum árum. Csaky tekur undir það. „Til dæmis hvað Úkraínu varðar, þá er Tizsa á móti því að hraða aðildarferlinu inn í Evrópusambandið, og er einnig á móti því að taka á móti flóttafólki, í samræmi við samkomulag sem aðildarríkin gerðu í fyrra (Migration Pact). Stóri munurinn er - og Peter Magyar hefur sagt þetta sjálfur - er að á vettvangi Evrópusambandsins verði ríkisstjórn Tizsa gagnrýninn en þó uppbyggilegur samstarfsaðili. “ Aukinn meirihluti verður lykillinn að breytingum Fyrstu vísbendingar um niðurstöðu kosninganna birtast að líkindum um níuleytið á sunnudagskvöld (um 19.00 að íslenskum tíma), og allra augu verða væntanlega hvað úrslitin þýða fyrir styrk flokkanna á ungverska þinginu. Fidsez hefur um árabil verið með aukinn meirihluta á þinginu og hefur í krafti þess getað gert grundvallar breytingar á stjórnarskrá Ungverjalands. Þannig hafa verið gerðar breytingar á kjördæmaskipan sem gagnrýnendur segja að hafi gagnast Fidez flokknum og gert stjórnarandstöðunni erfiðara fyrir í kosningum. „Það verður á brattann að sækja fyrir Tizsa ef flokkurinn sigrar,“ segir Csaky. „Ef Magyar fær einfaldan meirihluta á þinginu, þá verður Fidez flokkurinn í þeirri stöðu að gera valdhöfum erfitt fyrir að gera breytingar....en ef Tizsa fær aukinn meirihluta - sem virðist ekki vera mjög líklegt, en þó mögulegt - þá mun flokkurinn hafa möguleika á að gera víðtækar breytingar. Það verkefni verður auðvitað ekki auðvelt, einfaldlega vegna þess að Fidez hefur verið í þessari stöðu í sextán ár.“ Óháðar skoðanakannanir í Ungverjalandi benda til þess að stjórnarandstaðan fái meirihluta - jafnvel aukinn meirihluta, í kosningunum á sunnudaginn. Stjórnmálaskýrendur búast við met kjörsókn.

Share this article