Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ásakanir um erlend áhrif í aðdraganda þingkosninga

Read Full Article →

„Fidez er popúlískur flokkur þannig að þeir þurfa alltaf á óvinum að halda,“ segir Veronika Munk, ungversk blaðakona sem fylgst hefur með stjórnmálum í Ungverjalandi um árabil. „Áður voru það mismunandi óvinir, eins og Roma fólkið, eða Brussel og [Ursula] Von der Leyen, stundum er það ákveðin manneskja, eða minnihlutahópur og stundum er það eitt ákveðið ríki og núna er það Úkraína,“ segir Munk sem vinnur fyrir óháða fjölmiðilinn Denník N sem gefinn er út í Ungverjalandi, Slóvakíu og Tékklandi. Munk skrifar einnig vikulegan pistil um kosningabaráttuna (á ensku) á Substack. (Viðtal við Munk (á ensku) er neðst í færslunni.) Tugir þúsunda mættu á kosningasamkomur sem haldnar voru í Búdapest í gær þegar haldið var upp á þjóðhátíðardag Ungverjalands, nú þegar innan við mánuður er til þingkosninga. Fidez flokkurinn, með Viktor Orban forsætisráðherra í fararbroddi, hefur einbeitt sér að því að mála leiðtoga stjórnarandstöðunnar, Peter Magyar upp sem leiksopp erlendra afla á borð við Evrópusambandið, og gengið svo langt að kalla hann útsendara Úkraínu í Ungverjalandi. „Við þurfum að velja þann sem myndar ríkisstjórn [í Ungverjalandi], mig eða Zelensky,“ sagði Orban í ræðu sinni í gær; hann hefur sakað bæði Úkraínumenn og Evrópusambandið að vilja stjórnarskipti í Ungverjalandi. Magyar, leiðtogi Tizsa flokksins svaraði í sömu mynt á samkomu stjórnarandstöðunnar í gær og sakaði Orban um landráð. „Orban bauð rússneskum útsendurum til Ungverjalands til að hafa áhrif á kosningarnar og ræna okkur frelsinu, því dýrmætasta sem við eigum og forfeður okkar dóu fyrir,“ sagði Magyar. Harðasta kosningabaráttan í langan tíma Veronika Munk segir að þetta sé óvægnasta kosningabarátta sem hún hefur upplifað á ferli sínum. „Ég er búin að vinna í fjölmiðlum í Ungverjalandi í næstum tuttugu og fimm ár...og ég held að þessi kosningabarátta verði sú harðasta sem ég hef séð. Það er hörð barátta milli meginflokkanna tveggja og báðir eru á fullu að koma sínum skilaboðum og söguþráðum á framfæri...þetta er mjög neikvæð barátta, gervigreindin er mikið notuð og það fljúga sögusagnir um rússneska útsendara í Búdapest að hjálpa Orban með því að nota ungverska áhrifavalda, þannig að ég held að þetta eigi bara eftir að versna,“ segir Munk. „Fidez-flokkurinn þarf á óvinum að halda,“ segir Veronika Munk, ungversk blaðakona sem fylgst hefur með kosningum þar í landi um árabil. Tugir þúsunda mættu á samkomur andstæðra fylkinga í Búdapest um helgina.

Share this article