Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrjú þúsund eldingar mældust í gær

Read Full Article →

Miklar rafmagnstruflanir urðu þegar eldingu laust niður í Búrfellslínu 1 á Suðurlandi í gær. Rafmagn fór af Mosfellsbæ að hluta, víða á Suðurlandi, allt frá Landeyjum að Vík í Mýrdal, og einnig í Vestmannaeyjum og Borgarfirði eystri. Þá fór rafmagn af Keflavíkurflugvelli og Alþingishúsinu en í báðum tilvikum fóru varaaflstöðvar í gang. Þórður Arason jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að margar eldingar hafi mælst. „Þetta var mest sunnan við Reykjanesskagann og aðeins hérna á höfuðborgarsvæðinu. Yfir landinu voru þetta um 850 eldingar sem er bara mjög mikið. Yfir hafinu fyrir sunnan Ísland voru enn fleiri. Ég held að í öllu veðrinu hafi þetta verið um þrjú þúsund eldingar,“ segir Þórður. Þrumuveður hafa verið sjaldgæf á Íslandi og Þórður segir erfitt að meta hvort það sé að breytast. „Það eru að jafnaði tveir þrumudagar á ári í Reykjavík en það getur sveiflast. Stundum bara einn og stundum fjórir. Þannig að það þarf ekki að vera neitt sérstakt við það. Við sjáum svo sem ekki neina langtímaleitni í þessu en af því þetta eru svo fáir atburðir þá er voða erfitt að segja eitthvað um það,“ segir Þórður.

Share this article