Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Varnarkerfið virkaði sem skyldi þegar eldingaveður olli rafmagnsleysi

  • What: A power outage triggered a surge protection system in Iceland.
  • Impact: Widespread power outages occurred, with some areas without power for hours.
Read Full Article →

Varnarkerfi Landsnets virkaði sem skyldi þegar eldingu laust niður í Búrfellslínu í gær, segir Halldór Halldórsson öryggisstjóri Landsnets. Rafmagnslaust varð víða á sunnanverðu landinu, til að mynda á Keflavíkurflugvelli, og á sumum stöðum tók nokkrar klukkustundir að koma rafmagni á – til að mynda í Mosfellsbæ. Halldór segir varnarkerfið hafa farið af stað um leið og eldingunni laust niður. „Við það tekur varnarbúnaður sem ver rafmagnskerfið fyrir stórum eldingum út til að verja kerfið, til að verja fólk og tæki fyrir því að verða ekki fyrir skemmdum því eldingin getur í sjálfu sér endað inni í híbýlum manna ef svona varnarbúnaður er ekki til staðar.“ Halldór segir það hafa tekið um 20 mínútur að koma kerfinu í gang en á sumum stöðum hafi verið rafmagnslaust í nokkrar klukkustundir því þegar slær út í dreifiveitum þurfi oft að senda fólk á staðinn. Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og heitavatnslaust á Kjalarnesi Íbúar í Helgafellslandinu, á Völuteigssvæðinu og Miðholtinu í Mosfellsbæ voru án rafmagns þar til klukkan rúmlega tíu í gærkvöld. Þar fór aðveitustöð út sem hafði áhrif á hitaveitu í Mosfellsbæ og á Kjalarnesi. „Við vorum í smá vandræðum með að koma rafmagninu aftur á aðveitustöðina. Það þarf að gera það handvirkt,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna. Rafmagnsleysi af völdum eldingaveðursins leiddi til truflana eða þrýstingsfalls á hitaveitu í Hveragerði, Ölfusi og á höfuðborgarsvæðinu. Önnur elding olli rafmagnsleysi í Flóahreppi Eldingin olli víðtæku rafmagnsleysi á Suðurlandi – frá Landeyjum að Vík í Mýrdal. Önnur elding örlitlu fyrr olli einnig rafmagnsleysi í Flóahreppi. Guðgeir Guðmundsson, deildarstjóri kerfisstjórnar hjá Rarik, segir að vel hafi gengið að koma öllu aftur af stað. Guðgeir segir veðrið einnig hafa valdið rafmagnsleysi á Borgarfirði eystra. Þá hafi rafmagnsstaur brotnað milli Hveragerðis og Selfoss en það hafi ekki leitt til rafmagnsleysis.

Share this article