Samkvæmt nýrri spá TV2 um þingkosningarnar í Danmörku fær rauða blokkin, vinstriflokkarnir, 83 þingsæti, bláa blokkin, hægriflokkarnir, 79 þingsæti og miðjuflokkurinn Moderaterne 13 sæti. Spá DR , sem tekur mið af 66,7% atkvæða, segir til um að rauða blokkin fái 81 sæti, bláa blokkin 80 og Moderaterne 14. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne.AP/ntb / Jonas Been Henriksen Samkvæmt þessum spám verður ekki hægt að mynda ríkisstjórn án Moderaterne. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, er því í mjög góðri stöðu. Hann hefur lýst yfir vilja til að leiða samtal um ríkisstjórnarmyndun. Samkvæmt spám beggja fjölmiðla fá allir tólf flokkarnir í framboði sæti á þingi. Þetta eru spár en ekki niðurstaða kosninganna.