Hvorki rauða né bláa blokkin hefur tryggt sér tilskilinn meirihluta þingmanna á danska þinginu. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi miðjuflokksins Moderaterne, er því, eins og spáð var, í lykilstöðu þegar kemur að stjórnarmyndunarviðræðum. Síðustu tölurnar komu úr kjörkössum í Danmörku rétt í þessu en kosið var til þings í dag. Rauða blokkin, vinstriflokkarnir, fékk 84 þingsæti, bláa blokkin, hægriflokkarnir, fékk 77 sæti og Moderaterne 14 sæti. 179 sæti eru á danska þinginu og því þarf 90 þingsæti til að mynda meirihluta. Jafnaðarmannaflokkur Mette Frederiksen er enn stærstur með 21,9 prósent atkvæða og 38 sæti en missti í þessum kosningum 12 þingsæti. Allir flokkar í framboði fengu sæti á þingi. Danski þjóðflokkurinn, Dansk Folkeparti, má segja að sé stórsigurvegari kosninganna en flokkurinn bætti við sig 11 þingsætum og fer því úr 5 sætum í 16. Niðurstöður kosninganna Socialdemokratiet- Jafnaðarmannaflokkurinn hlaut 21,9% atkvæða og 38 þingsæti. Socialistisk Folkeparti - Sósíalíski þjóðarflokkurinn hlaut 11,6% atkvæða og 20 þingsæti. Venstre - Vinstri (Mið-hægriflokkur) hlaut 10,1% atkvæða og 18 þingsæti. Liberal Alliance - Frjálslynda bandalagið hlaut 9,4% atkvæða og 16 þingsæti. Dansk folkeparti (DF) - Danski þjóðarflokkurinn hlaut 9,1% atkvæða og 16 þingsæti. Moderaterne - Miðjuflokkurinn hlaut 7,7% atkvæða og 14 þingsæti. Det Konservative Folkeparti - Íhaldsflokkurinn hlaut 7,6% atkvæða og 13 þingsæti. Enhedslisten - Einingarlistinn hlaut 6,3% atkvæða og 11 þingsæti. Radikale Venstre -Róttæki vinstriflokkurinn (miðjuflokkur) hlaut 5,8% atkvæða og 10 þingsæti. Danmarksdemokraterne - Danmerkurdemókratarnir hlaut 5,8% atkvæða og 10 þingsæti. Alternativet - Valkosturinn hlaut 2,6% atkvæða og 5 þingsæti. Borgerens parti - Borgaraflokkurinn hlaut 2,1% atkvæða og 4 þingsæti. Lars Løkke útilokar ekki samstarf við Jafnaðarmannaflokkinn og Venstre. Hann segir leiðtoga flokkana þurfa koma af þeim háa stalli sem þau telja sig á. „Komið niður. Komið niður til okkar. Þið standið úti við hornfánana. Við stöndum í miðjunni. Komið og spilið með okkur,“ segir Lars Løkke. „Mette Frederiksen hljóp í átt að rauðu hornfánunum,“ segir hann. Fyrir Jafnaðarmannaflokkinn hafi kosningarnar að miklu leyti snúist um auðlegðarskatt. „Og hinn maðurinn, Troels Lund, hljóp út að blásvarta hornfánanum. Gleymið umheiminum. Skerið niður þróunaraðstoð. Þetta er alrangt,“ bætir Lars Løkke við. „Við höfum staðið kyrr á miðjunni,“ segir hann við mikinn fögnuð viðstaddra á kosningavöku Moderaterne. Troels Lund Poulsen, leiðtogi hægri-miðjuflokksins Venstre, réttir hönd út til Lars Løkke og Moderaterne. „Því það er mögulegt að taka nýja stefnu í Danmörku,“ segir hann. „Nú er tækifæri til þess, ef Lars Løkke sér til þess, að við getum fengið bláa miðjustjórn. Venstre er stærsti flokkurinn í bláu blokkinni. Úrslit hafa einnig borist frá Færeyjum þar sem búið er að telja atkvæði. Niðurstaðan er eitt rautt og eitt blátt þingsæti. Sjúrður Skaale úr færeyska Jafnaðarmannaflokknum fær 45,9 prósent atkvæða og tryggir sér þar með endurkjör. Hægrisinnaði frjálslyndi Sambandsflokkurinn fær 25,2 prósent og Anna Falkenberg snýr einnig aftur á Fólksþingið. Fréttin verður uppfærð.