Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Auður fær bréf fyrir hálfan milljarð í arf

Read Full Article →

Auður Kristín Árna­dóttir, stjórnar­maður í Hampiðjunni, hefur fengið 5.761.339 hluti í félaginu í fyrirframgreiddan arf, sam­kvæmt til­kynningu . Um er að ræða 0,92% eignarhlut. Sam­kvæmt til­kynningu var Auði af­hent bréfin í gær en hún er dóttir Ingi­bjargar Björns­dóttur og Árna Vilhjálmssonar heitins, fyrrverandi stjórnarmanns Hampiðjunnar. Ingibjörg átti 17,3 milljónir hluta, um 2,72% hlut, í Hampiðjunni þann 19. mars sl. sam­kvæmt lista yfir stærstu hluthafa félagsins. Miðað við gengi Hampiðjunnar, 89 krónur á hlut, er markaðsvirði bréfanna sem Auður fékk afhent 512,8 milljónir króna. Ingibjörg, Auður Kristín og Birna Björk Árnadóttir eru eigendur Íspans Glerborgar sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á gleri og speglum. Við­skipta­blaðið greindi frá því árið 2013 að Auður Kristín hefði sem hluthafi lagt til á aðalfundi Hvals að skipta félaginu í tvennt, annars vegar í hvalveiðihluta og hins vegar í fjárfestingarhluta. Systir hennar, Birna Björk, hafði viku áður skrifað harðaorða grein um hvalveiðar. Sjá einnig Hluthafi Hvals á móti hvalveiðum Hér að neðan má sjá lista yfir stærstu hluthafa Hampiðjunnar 19. mars.

Share this article