Bann kínverskra stjórnvalda á áfengisneyslu á opinberum viðburðum í fyrra hefur reynst þungt högg fyrir vínframleiðendur víða um heim. Ákvörðunin tengist því sem Xi Jinping og stjórnvöld líta á sem spillingu og óviðeigandi hegðun embættismanna. Á vef WSJ segir að vínræktendur frá Bordeaux til Ástralíu hafi neyðst til að rífa upp vínviði og láta þrúgur rotna í ökrum. Þar er meðal annars minnst á ástralska vínfyrirtækið Treasury Wine Estates, sem er jafnframt eitt það stærsta í heimi, en það fyrirtæki situr nú uppi með 150 milljóna dala virði af óseldu víni í vöruhúsum hjá kínverskum dreifingaraðilum. Sjá einnig Ástralir ekki lengur háðir kínverska markaðnum Vínræktendur höfðu vonast eftir því að eftirspurn Kínverja eftir erlendu rauðvíni myndi ná sér á ný eftir nokkurra ára lægð sem tengdust bæði efnahagsáskorunum á innlendum kínverskum markaði ásamt stjórnmáladeilum í kjölfar heimsfaraldurs. Kínverskir embættismenn eru hins vegar svo hræddir við að brjóta nýju reglurnar að ríkisrekin áfengisfyrirtæki í Kína hafa ákveðið að sleppa því að bera fram áfengi á ráðstefnum. Treasury Wine Estates, sem fékk 40% af sínum hagnaði frá Kína árið 2019, tilkynnti í desember að það myndi draga úr útflutningi til Kína. Evrópsku fyrirtækin Pernod Ricard og Diageo hafa einnig glímt við tveggja talna samdrátt í sölu í Kína. Sjá einnig Kínverjar afnema himinháa tolla á ástralskt vín Innflutningur á víni til Kína dróst saman um 11% á síðasta ári og er nú helmingi minni en hann var metárið 2018 þegar Kínverjar keyptu erlent vín fyrir tæpa þrjá milljarða dala. Vínæðið í Kína var svo mikið á sínum tíma að körfuboltagoðsögnin Yao Ming byrjaði með sína eigin vínframleiðslu í Napa í Kaliforníu. Ríkir kínverskir fjárfestar keyptu einnig um 100 vínekrur í Bordeaux og gáfu sumum þeirra ný nöfn til að höfða til kínverskra neytenda. Almenn neysla hefur þó dregist saman um allan heim en greinendur telja að samdrátturinn í Kína endurspegli bæði efnahagsáskoranir þar í landi ásamt breyttum áherslum stjórnvalda þar sem barátta gegn spillingu hefur dregið úr eftirspurn eftir lúxusvörum, þar á meðal víni.