Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Metútflutningur kínverskra bíla

Read Full Article →

Útflutningur bíla frá Kína náði nýju hámarki í júní þegar rúmlega ein milljón bíla var send úr landi. Bílaútflutningur jókst um 71,2% frá sama mánuði í fyrra og nam rúmlega milljón bílum. Samkvæmt greiningu Financial Times gæti Kína flutt út meira en 10 milljónir bíla á árinu, samanborið við 7,1 milljón í fyrra og 4,9 milljónir árið 2023. Vöxturinn kemur á sama tíma og sala á heimamarkaði hefur hægt verulega á sér eftir að niðurgreiðslum stjórnvalda á rafbílum var hætt í áföngum og eftirspurn eftir bensín- og dísilbílum minnkaði. Útflutningssóknin hefur þó orðið til þess að Evrópusambandið og fleiri lönd hafa lagt háa tolla á innflutta kínverska bíla. Wang Jun, aðstoðarforstjóri kínversku hagstofunnar, sagði aukinn útflutning rafbíla samræmast alþjóðlegri þróun í átt að minni kolefnislosun, sem ýtti undir eftirspurn eftir „grænum vörum“ frá Kína. Kínverskir bílaframleiðendur hafa náð forskoti með ódýrari bílum og öflugum hugbúnaði, sem setur aukinn þrýsting á framleiðendur í Japan, Suður-Kóreu, Evrópu og Bandaríkjunum. Árið 2021 voru rafbílar aðeins um 15% af bílaútflutningi Kína, en hlutfallið hefur breyst hratt eftir að kínversk rafbílafyrirtæki hófu markvissa sókn á erlenda markaði. Meðal bílaframleiðenda sem knýja útflutningsvöxtinn eru BYD sem seldi 175 þúsund bíla erlendis í júní, sem er 95% aukning frá því í fyrra. Geely flutti út 103 þúsund bíla, sem er 157% aukning, og Chery seldi 191 þúsund bíla erlendis, sem er 80% aukning. Wang sagði einnig að útflutningur rafknúinna járnbrautarlesta, rafmótorhjóla og rafhjóla hefði aukist verulega. Heildarútflutningur Kína jókst um 27% milli ára í júní, eftir 19,4% aukningu í maí, og var töluvert umfram spár greinenda. Innflutningur jókst um 36%, samkvæmt tölum kínverskra tollyfirvalda. Afgangur af vöruskiptum nam 576 milljörðum dala á fyrri helmingi ársins, 4,7% minni en á sama tíma í fyrra.

Share this article