Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðurkennir að eiga í reglulegum samskiptum við Lavrov á fundum ESB

Read Full Article →

Péter Szijjártó utanríkisráðherra Ungverjalands hefur gengist við því að hafa reglulega haft samband við Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og upplýst hann um efni lokaðra funda á vettvangi Evrópusambandsins. Um helgina greindi Washington Post frá upplýsingagjöf Szijjártós til Lavrovs. Szijjártó og ungerska ríkisstjórnin vísuðu í kjölfarið fréttaflutningum á bug og sögðu ásakanir Wasington Post vera falsfréttir. Í gær kallaði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins eftir því að þetta yrði útskýrt betur af Ungverjum. Fréttir Washington Post væru „áhyggjuefni“. Fundarmenn á lokuðum fundum um utanríkismál eru bundnir trúnaði. Ræðir efni fundanna við marga samstarfsmenn af ólíku þjóðerni Á kosningafundi í gærkvöld gekkst Szijjártó við því að hafa átt í samskiptum við Lavrov. Hann sagði ýmsar ákvarðanir Evrópusambandsins, til að mynda í orku- og öryggismálum, hafa áhrif á samband Ungverja við samherja þeirra utan sambandsins. Því væri það rétt af Szijjártó að ræða þessi atriði við samstarfsþjóðir. „Ég tala ekki bara við utanríkisráðherra Rússlands heldur líka við samstarfsmenn okkar í Bandaríkjunum, Tyrklandi, Ísrael og Serbíu, bæði fyrir og eftir fundi ráðherraráðsins,“ sagði Szijjártó. Ráðherrann birti myndband á samfélagsmiðlum í dag þar sem hann hafnar ásökunum um að hann hafi brotið öryggisreglur ráðherraráðsins. Reglulegur gestur stjórnvalda í Kreml Spennan magnast í Ungverjalandi í aðdraganda þingkosninga. Fidesz, flokkur forsætisráðherrans Viktors Orbáns, á í vök að verjast gegn flokki Oéter Magyars, Tisza, sem leiðir í skoðanakönnunum. Ríkisstjórn Orbáns er ein af fáum í Evrópu sem á í reglulegum samskiptum við stjórnvöld í Kreml. Ungverjar hafa auk þess haldið áfram innflutningi á jarðefnaeldsneyti í stórum stíl frá Rússlandi, þvert á tilmæli Evrópusambandsins. Szijjártó, sem er flokksbróðir Orbáns, hefur sótt Mosku heim 16 sinnum frá því að innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Í síðustu heimsókn sinni, fyrr í þessum mánuði, hitti hann Vladimír Pútín Rússlandsforseta.

Share this article