Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Isavia ANS verður Avians

Read Full Article →

Flugleiðsögufyrirtækið Isavia ANS, sem veitir íslenskum og erlendum loftförum flugleiðsöguþjónustu í íslenska flugstjórnarsvæðinu, hefur breytt um nafn og mun frá og með deginum í dag starfa undir heitinu Avians. Kjartan Breim, framkvæmdastjóri Avians, segir í samtali við Viðskiptablaðið að nafnabreytingin hafi verið í gerjun í dágóðan tíma en félagið vildi meðal annars hjálpa fólki að gera greinarmun á milli Isavia og Isavia ANS. „Þetta hefur oft valdið ruglingi á milli fólks sem heldur að Isavia og Isavia ANS séu sama fyrirtækið en þetta eru tvö ólík félög. Móðurfélagið Isavia ohf. hefur einnig verið að þróast í átt að því að nýta Isavia meira sem samstæðunafn.“ Hann bætir við að breytingin sé einnig tækifæri fyrir starfsfólk Avians til að styrkja félagið inn á við en með nafnabreytingunni öðlast fyrirtækið sitt eigið einkenni. Sjá einnig Sam­dráttur en aukinn rekstrar­hagnaður hjá Isavia „Við erum búin að mynda okkur skýra stefnu og það gengur vel. Við erum búin að setja upp vörumerkið í anddyrinu og svo verða líka einhverjar breytingar á húsnæðinu. Borgarlínan mun til dæmis stoppa hérna fyrir utan og þá hafa komið upp hugmyndir um að hafa það þannig að aðalinngangurinn snúi að Nauthólsvegi.“ Meðal stærstu flugleiðsögusvæða heims Avians sinnir flugleiðsögu og flugumferðarþjónustu á einu stærsta flugleiðsöguþjónustusvæði heims, sem nær einnig yfir efra loftrými grænlenska flugstjórnarsvæðisins og alveg upp að norðurpólnum. Starfsmenn Avians fylgjast stöðugt með veðurbreytingum og flugumferð. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Félagið er einnig hluti af samstarfi fyrirtækja í Norður-Atlantshafi undir ICAO en það svæði kallast Nat-Region og segir Kjartan að Avians telji sig vera nokkuð leiðandi í innleiðingum á nýjungum og breytingum innan þess samstarfs. „Við erum stoltir af því sem Íslendingar sem hafa veitt þessa þjónustu síðan eftir seinni heimsstyrjöld og höfum skapað mikla þekkingu, ekki bara meðal flugumferðastjóra heldur líka hjá tæknifólki sem hefur sérhæft sig í sínu fagi.“ Kjartan segir að starfsmenn fyrirtækisins séu heilt yfir mjög spenntir fyrir framtíðinni. Hann segir að flugiðnaðurinn sé spennandi geiri og að það sé alltaf þróun í gangi samhliða stórfelldu alþjóðlegu samstarfi. „Eitt sem einkennir flugbransann eru þó öll þessi utanaðkomandi áhrif en málið er að það verður einfaldlega alltaf þörf á þessari flugleiðsögu sama hvernig eldsneytisverðið er eða hvaða átök eru í gangi. Það þarf að sinna þessu og aðlaga sig að ýmsum aðstæðum en við erum bara á ákveðinni vegferð og vinnum að því að búa til flottara fyrirtæki.“

Share this article