Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sam­dráttur en aukinn rekstrar­hagnaður hjá Isavia

Read Full Article →

Isavia hagnaðist um 3,4 milljarða króna árið 2025, samanborið við hagnað upp á 5,2 milljarða árið áður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisfyrirtækinu. Munurinn á afkomu félagsins milli ára skýrist af stórum hluta af því að á árinu 2025 voru gengisáhrif neikvæð upp á 0,9 milljarða samanborið við jákvæð gengisáhrif á árinu 2024 upp á 2,1 milljarð króna. 5% tekjusamdráttur Tekjur samstæðunnar lækkuðu um 2,7 milljarða króna milli ára og námu 49,3 milljörðum króna. Það samsvarar 5% tekjusamdrætti Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var jákvæð um 12,2 milljarða króna samanborið við 10,7 milljarða króna árið á undan. Aukningin nemur um 1,5 milljörðum króna. Sjá einnig Reyna að halda dampi án aukins hluta­fjár frá ríkinu Fjárfestingar samstæðunnar námu um 12,6 milljörðum króna á árinu samanborið við 18,0 milljarða á síðasta ári. Eigið fé Isavia í lok árs 2025 nam 52,7 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 43,4%. Brotthvarf Play hafði talsverð áhrif Ingibjörg Arnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Isavia, segir að afkoma félagsins á síðasta ári hafi verið góð þrátt fyrir áskoranir. „Á síðasta ári fóru um 8,2 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll sem er um 2% fækkun á milli ára,“ segir Ingibjörg. „Það er ljóst að brotthvarf Play í lok september hafði áhrif á rekstur Isavia. Rétt er þó að hafa í huga að Play hafði nokkru áður boðað breytingar á rekstri, þ.e. fækkun áfangastaða og breyttar áætlanir. Það má því segja að við á Keflavíkurflugvelli höfum verið viðbúin að einhverju leyti. Þá er stærri hluti þeirra farþega sem upp á vantar í hópi tengifarþega, þannig að áhrifin á tekjur okkar eru minni en ella.“ Í sumar munu 27 flugfélög fljúga til 80 áfangastaða og 20 flugfélög til 65 áfangastaða í vetur. Lykiltölur úr ársuppgjöri samstæðu Isavia 2025: Rekstrartekjur: 49.262 milljónir króna Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA): 12.156 milljónir króna Heildarafkoma eftir skatta: 3.389 milljónir króna Handbært fé: 5.470 milljónir króna Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 11.451 milljónir króna Eigið fé í lok tímabils: 52.684 milljónir króna Eiginfjárhlutfall: 43,4%

Share this article