Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brent-olía áfram yfir 100 dölum þrátt fyrir undanþáguna

Read Full Article →

Brent hráolía fór í gær aftur yfir 100 dali á tunnu. Verðið hefur haldist yfir hundrað dölum í morgun, þrátt fyrir að bandarísk stjórnvöld gáfu það út í gærkvöldi að þau myndu leyfa þjóðum tímabundið að kaupa rússneska olíu sem er þegar sjóleiðis til að draga úr verðþrýstingi. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í færslu á X í gær að undanþágan frá viðskiptaþvingunum væri „mjög afmörkuð og tímabundin ráðstöfun“ sem eigi aðeins við um olíu sem þegar er í flutningi „og mun ekki veita rússneskum stjórnvöldum verulegan fjárhagslegan ávinning“. Undanþágan gildir til 11. apríl næstkomandi. Verð á Brent hráolíu stóð í 100 dölum á tunnu við lokun markaða í gær. Dagslokaverð var síðast hærra í ágúst 2022, að því er segir í umfjöllun Financial Times . Heimsmarkaðsverð Brent hráolíu hefur hækkað um 0,6% í dag og stendur í 101 dali á tunnu þegar fréttin er skrifuð. . @POTUS is taking decisive steps to promote stability in global energy markets and working to keep prices low as we address the threat and instability posed by the terrorist Iranian regime. To increase the global reach of existing supply, @USTreasury is providing a temporary… — Treasury Secretary Scott Bessent (@SecScottBessent) March 12, 2026

Share this article