Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,9% í 1,7 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Mesta veltan, eða um 570 milljónir króna, var með bréf Íslandsbanka en gengi bankans stóð óbreytt í 142 krónum á hlut. Gengi Arion banka lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 6%. Sú lækkun skýrist nær alfarið af argreiðslu upp á 11,5 krónur á hlut sem samþykkt var aðalfundi bankans í gær. Arðleysisdagur vegna þessarar arðgreiðslu er í dag. Gengi bankans stendur nú í 190 krónum á hlut. Oculis og Alvotech fylgdu þar á eftir í 4,6% og 3,1% lækkun hjá hvoru félagi um sig. Sjá einnig Síminn að kaupa vef- og útvarpsmiðla Sýnar Hlutabréfaverð Símans, sem tilkynnti í morgun um samkomulag um helstu skilmála vegna mögulegra kaupa Símans á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar, lækkaði um 2,2% í 72 milljóna króna veltu og stóð í 13,4 krónum á hlut við lokun Kauphallarinnar. Heildarvirði vef- og útvarpmiðla Sýnar í viðskiptunum nemur samkvæmt skilmálaskjali 5.250 milljónum króna. Gengi Sýnar hækkaði aftur á móti um 18,9% í 27 milljóna króna veltu og stóð í 21,4 krónum á hlut við lokun markaðarins. Gengi Sýnar var síðast hærra um miðjan októbermánuð þegar félagið sendi frá sér neikvæða afkomuviðvörun. Markaðsvirði Sýnar nemur nú 5,3 milljörðum króna, samanborið við rúmlega 4,4 milljarða í gær.