Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Þorkell Jóelsson

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.3.2026 | 21:30 Andlát: Þorkell Jóelsson Þorkell Jóelsson. Setja bókamerki Þorkell Jóelsson hornleikari er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 9. mars síðastliðinn, 73 ára að aldri. Þorkell fæddist í Reykjavík 28. maí 1952, sonur þeirra Jóels Kristins Jóelssonar garðyrkjubónda og Salome Þorkelsdóttur fv. alþingismanns og þingforseta. Þorkell ólst upp í Mosfellsdal og systkini hans eru Anna Jóelsdóttir myndlistarmaður og Jóel Kristinn Jóelsson verslunarmaður. Þorkell gekk í Gagnfræðaskóla Brúarlands í Mosfellsbæ og lauk stúdentsprófi úr hagfræðideild Verzlunarskóla Íslands. Hann hóf ungur tónlistarnám hjá Birgi D. Sveinssyni í Skólahljómsveit Varmárskóla og var þaðan ekki aftur snúið. Þorkell lék á trompet og trommur en færði sig síðar á franskt horn og hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Viðari Alfreðssyni. Þaðan lagði hann land undir fót til frekara náms í Lundúnum ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og stunduðu þau bæði nám í Guildhall School of Music and Drama. Þau fóru í kjölfarið í framhaldsnám til Ítalíu og upp frá því varð það reglulegur dvalarstaður fjölskyldunnar. Þorkell var hornleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1976 og fastráðinn frá 1980 og til ársins 2015. Hann hefur einnig leikið með Kammersveit Reykjavíkur, hljómsveit Íslensku óperunnar, Hljómskálakvintettinum, Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, óperuhljómsveitinni í Gautaborg og fleira. Hann var blásarakennari og stjórnaði lúðrasveitum í Mosfellsbæ og Reykjavík frá árunum 1975-2025. Hann var einnig sjálfskipaður stjórnandi og tónlistarstjóri lúðrasveitar Mosdælinga, Brak og brestir.Þorkell var lunkinn trommuleikari og lék með hinum ýmsu hljómsveitum, m.a. Gaddavír, Logum frá Vestmannaeyjum og danshljómsveitinni Blek og byttum. Þorkell var mikill náttúruunnandi og göngugarpur, stundaði hesta- og veiðimennsku auk þess að fara í jeppaferðir á fjöll. Hann var einkar duglegur að sinna vinum og fjölskyldu, og ferðuðust hjónin mikið innanlands og erlendis til að upplifa ýmiss konar menningarviðburði. Ungur að árum vann Þorkell garðyrkjustörf hjá Garðyrkjunni í Reykjahlíð, smalastörf hjá garðlöndum Reykjavíkurborgar, trjáræktar- og veðurathugunarstörf hjá Rannsóknarstöð Skógræktarinnar á Mógilsá, bókhaldsstörf hjá Burstagerðinni, aðstoðarstörf hjá Magnúsarbakaríi í Vestmannaeyjum og verkamannavinnu hjá Mosfellsbæ. Þorkell og Sigrún kynntust árið 1974 og kvæntust árið 1987. Tvíburadætur þeirra eru Salóme og Valdís og yngst er Melkorka. Tengdasynir þeirra eru Smári Hallmar og Ben Boorman og barnabörnin eru fjögur, Hjálmtýr, Stella, Sigrún Ingibjörg og Valdís Eyfjörð. Útför Þorkels verður gerð úr Hallgrímskirkju 18. mars kl. 13. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Valverde fór á kostum gegn Manchester City Ingibjörg þakkar fyrir sig Viktor lokaði markinu í Meistaradeildinni Rúrí, Finnbogi og Hildur Elísa verðlaunuð Andlát: Þorkell Jóelsson Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Segist saklaus Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Valverde fór á kostum gegn Manchester City Ingibjörg þakkar fyrir sig Viktor lokaði markinu í Meistaradeildinni Rúrí, Finnbogi og Hildur Elísa verðlaunuð Andlát: Þorkell Jóelsson Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Segja víðtækar árásir hafnar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Segist saklaus Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article