Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fékk þrettán mánaða dóm fyrir fíkniefnasmygl

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fékk þrett­án mánaða dóm fyrir fíkni­efna­smygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í síðustu viku til þrettán mánaða fangelsisrefsingar fyrir fíkniefnasmygl. Hann var staðinn að smygli á 1.870 grömmum af kókaíni til landsins. Efnið fannst í farangri mannsins þegar hann kom til Íslands frá Amsterdam í Hollandi 30. janúar. Maðurinn játaði brot við þingfestingu og sagðist hafa tekið að sér að flytja kókaínið til Íslands gegn greiðslu. Hann var því sakfelldur og dæmdur til fangelsisvistar. Héraðsdómur Reykjaness. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Enn og aftur met­hagn­að­ur hjá móð­ur­fé­lagi Zara Brynjólfur Þór Guðmundsson Inditex, móðurfélag spænska hraðtískurisans Zara, var rekið með methagnaði í fyrra. Þetta var þriðja árið í röð þar sem hagnaður af rekstri þess er meiri en nokkru sinni áður í sögu fyrirtækisins. Inditex skilaði 6,22 milljarða evra hagnaði í fyrra, andvirði rúmlega 900 milljarða króna. Auk Zara á Inditex meðal annars vörumerkin Massimo Dutti, Pull & Bear og Bershka. Það rekur yfir fimm þúsund verslanir víða um heim og hefur 160 þúsund manns í vinnu. Fyrr á þessu ári var tilkynnt að elstu Zara-búðinni yrði lokað. EPA / Cabalar Fyrir 40 mínútumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra Arna Sig­ríð­ur keppir í sinni loka­grein Arna Sigríður Albertsdóttir keppir í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu í dag. Keppni hefst innan skamms því ræst verður klukkan tuttugu mínútur fyrir níu. Sýnt verður beint frá keppninni á RÚV. Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Telur hægt að ljúka við­ræð­um á einu og hálfu ári Utanríkisráðherra segir í viðtali við Politico að Ísland gæti lokið aðildarviðræðum við Evrópusambandið á einu og hálfu ári, ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu verður að halda áfram viðræðum. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Arkitektúr Skipu­lags­mál eru pól­it­ík: „Það er verið að byggja of mikið af íbúðum sem menn vilja ekki kaupa“ Albína Thordarson arkitekt er gagnrýnin á skipulagsmál stjórnvalda, nefnir sérstaklega uppbyggingu Landspítala, flugvallarins í Vatnsmýri og fyrirhugaðrar þjóðarhallar í Laugardal í því samhengi. Núorðið stjórni peningar skipulagsmálum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Hæstiréttur Hæsti­rétt­ur dæmir í hryðju­verka­mál­inu Brynjólfur Þór Guðmundsson Hæstiréttur kveður upp tvo dóma í dag klukkan tvö. Annar er í hryðjuverkamálinu svokallaða. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathanssynir voru sýknaðir af ákærum um skipulagningu hryðjuverka í héraðsdómi og Landsrétti en ákæruvaldið áfrýjaði dóminum til Hæstaréttar og krafðist sakfellingar. Verjandi Sindra sagði ákæruvaldið hafa farið offari. Endanlegur dómur verður kveðinn upp í dag. Hæstiréttur kveður einnig upp dóm í máli gegn bræðrunum Jónasi og Elíasi Shamsudin og Samúel Jóa Björgvinssyni vegna fíkniefnalagabrota. Bræðurnir fengu tveggja og hálfs árs fangelsisrefsingu og Samúel þriggja ára. Sindri Snær Birgisson við aðalmeðferðina í Hæstarétti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ræddu að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB fram undir mið­nætti Brynjólfur Þór Guðmundsson Þingmenn ræddu þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið til að verða tólf á miðnætti í gærkvöld. Þingfundur hófst klukkan hálf tvö og stóð umræðan um aðildarviðræðurnar yfir frá klukkan tvö eða í tæpar tíu klukkustundir. 27 ræður hafa verið fluttar og andsvör við þeim á fyrstu tveimur þingfundadögum Alþingis eftir að tillagan var lögð fram. Fimmtán eru á mælendaskrá. Umræðunni verður ekki haldið áfram fyrr en eftir helgi þar sem nefndafundir eru á Alþingi í dag og á morgun. Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, í ræðupúlti í fyrradag. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Stór hluti vinn­unn­ar að fjölga hjúkr­un­ar­rým­um hér og þar Heilbrigðisráðherra segir stóran hluta átaks um fjölgun hjúkrunarrýma felast í að einfalda verklag og bæta við rýmum hér og þar. Hún segir engar skyndilausnir til en að ýmislegt sé á dagskrá. Brunnið hjúkrunarheimili við Sléttuveg opnar aftur í bráð. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Í dag: Ísland mætir Serbíu í und­ank­eppni EM Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Serbíu í undankeppni EM 2027. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er í Serbíu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árás á fjöl­býl­is­hús í Beirút í nótt Árásir hafa haldið áfram í nótt á borgir víða í Miðausturlöndum. Ísraelski herinn gerði árás á fjölbýlishús í miðborg Beirút í nótt og mikill eldur braust út í kjölfarið. Árásin var gerð skömmu fyrir sólarupprás svo íbúar voru líklega í fastasvefni. Breskt flutningaskip varð fyrir árás af völdum óþekktra vopna undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna í nótt. Enginn úr áhöfninni slasaðist og allir eru óhultir. Íranskir og ísraelskir embættismenn segja New York Times að nýr æðstiklerkur Írans hafi særst á fyrsta degi árása Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran. Hann hefur ekki komið fram opinberlega síðan hann tók formlega við af föður sínum. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vinda­sam­ir dagar með snjó­komu Búast má við slyddu eða snjókomu víða um land í dag. Nokkur vindur verður í dag og fer vaxandi á morgun. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Björg­vin Páll: „Vil finna meira fyrir því að hann sé að henda mér út“ Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, er spenntur fyrir komandi leikjum gegn Svíum. Ísak Steinsson er einn af þremur markvörðum í hópnum fyrir leikina og Björgvin vill að hann láti finna fyrir sér. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Sex ír­ansk­ar lands­liðs­kon­ur fá hæli í Ástr­al­íu Sex íranskar landsliðskonur í fótbolta hafa fengið hæli í Ástralíu. Ein liðskvennanna sótti um hæli en dró svo umsókn sína til baka og sveik landsliðsfélaga sína. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Gögn birt um skipun Mand­el­sons sem sendi­herra Búist er við að hundruð skjala tengdum skipun Peter Mandelsons sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum verði birt í dag. Skjölin eru talin vekja upp enn fleiri spurningar um ákvörðun Keir Starmers að skipa Mandelson sem sendiherra. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ítalía Ít­alska ríkið festir kaup á 4,5 millj­arða króna mál­verki eftir Cara­vagg­io Ítalska ríkið hefur fest kaup á málverki eftir ítalska meistarann Caravaggio. Málverkið, sem kostaði rúmlega 4,5 milljarða íslenskra króna, hafði verið í einkasafni í Flórens fram að kaupunum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Sviss Sex létust og fimm slös­uð­ust í elds­voða í rútu Sex eru látnir og fimm eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir að eldur kom upp í rútu í Sviss í gærkvöld. Lögreglan telur af eldsvoðinn hafi verið af mannavöldum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkra­ínski herinn hefur náð nær öllu Dnipropetr­ovsk-héraði til baka af Rússum Úkraínski herinn hefur náð til baka tæplega 400 ferkílómetra landsvæði af hernumdu svæði á undanförnum vikum. Herinn hefur ekki náð svo miklu landsvæði til baka af Rússum síðan sumarið 2023. 10. mars 2026 kl. 22:49INNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður „Ekki gefast upp“ Færni á vinnumarkaði er starfstengt nám fyrir fatlað fólk í atvinnuleit sem er að stíga inn á almennan vinnumarkað. Í Kastljósi kvöldsins var rætt við ungan mann sem hafði fallega reynslusögu að segja. 10. mars 2026 kl. 22:40INNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Sér­stök versl­un með varn­ing tengd­an Lauf­eyju Í Laufeyjarlandi í Smáralind er hægt að kaupa ýmsan varning tengdan tónlistarkonunni Laufeyju. Biðröð myndaðist fyrir utan þegar búðin var opnuð í hádeginu og aðdáendur þustu inn þegar hliðið var opnað. 10. mars 2026 kl. 22:17ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Banda­ríkja­her grand­aði 16 skipum nærri Hormúss­undi Miðstjórn bandaríska hersins greindi frá því í færslu á X að 16 skipum sem grunuð eru um að hafa komið fyrir tundurduflum við Hormússund hafi verið grandað. Samkvæmt Trump voru skipin ekki í notkun þegar árásin varð. 10. mars 2026 kl. 22:04ÍÞRÓTTIR Fótbolti Stór­sigr­ar hjá Bayern og At­leti­co Madrid - Liver­pool lá í Ist­an­búl Einar Örn Jónsson 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu hófust í kvöld með fjórum leikjum. Galatasaray og Liverpool riðu á vaðið og unnu Tyrkirnir eins marks sigur, 1-0. Í Madríd fór Atletico ákaflega illa með Tottenham. Staðan var orðin 4-0 eftir 22 mínútur og lokatölur urðu svo 5-2. Bayern München fór enn verr með Atalanta á Ítalíu og vann 6-1. Loks gerðu Newcastle og Barcelona 1-1 jafntefli í Newcastle. Síðari leikir liðanna fara fram eftir rúma vik, 18. mars. Á morgun eru hinar fjórar viðureignirnar og mætast Leverkusen og Arsenal, Bodö/Glimt og Sporting, PSG og Chelsea og Real Madrid og Manchester City. Jamal Musiala fagnar marki sínu gegn Atalanta í kvöld. AP / Luca Bruno 10. mars 2026 kl. 21:57INNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Vinnu­stað­ur­inn er stund­um eini öruggi stað­ur­inn Stuðningur vinnuveitenda getur skipt sköpum við þolendur ofbeldis í nánum samböndum. Ný slysatrygging, stuðningsleyfi, á að auðvelda vinnustöðum að styðja við þolendur. 10. mars 2026 kl. 21:55ÍÞRÓTTIR Klifur Birgir Óli og Agnes Matt­hild­ur Ís­lands­meist­arar í klifri Íslandsmótið í grjótglímu í klifri fór fram í Hafnarfirði í dag. Þar kepptu átta bestu karlarnir og konurnar í krefjandi keppni. 10. mars 2026 kl. 21:07INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Gefur lítið fyrir áhyggj­ur af stöðu Ic­elandair: „Rekst­ur­inn er al­gjör­lega trygg­ur“ Forstjóri Icelandair telur það ekki vera hlutverk innviðaráðherra að velta fyrir sér hlutabréfaverði félaga sem skráð eru á markað. Hann gefur lítið fyrir áhyggjur af stöðu félagsins og segir reksturinn algjörlega tryggan. 10. mars 2026 kl. 20:32INNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Brjót­ast inn í dósa­gáma með slíp­ir­okk­um og sér­smíð­uð­um áhöld­um Fólk notar sérsmíðuð áhöld og slípirokka til að komast inn í dósagáma Grænna skáta og stela úr þeim. Lögregla finnur fólk í gámunum og þjóf

Share this article