Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Hlaut sex mánaða dóm fyrir smygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðsdómur Reykjaness dæmdi erlendan karlmann í dag til sex mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var staðinn að smyglinu þegar hann kom til Íslands með flugi frá Portúgal. Hann var með 386 grömm af kókaíni á sér. Maðurinn játaði sök þegar ákæra gegn honum var þingfest. Hann sagðist hafa tekið að sér að flytja fíkniefnin hingað til lands gegn greiðslu. Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli 6. febrúar. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Rekja stórbruna til hleðslutækis fyrir lyftara Lögreglan telur líklegast að eldurinn sem kviknaði í vöruskemmu í Gufunesi í janúar hafi kviknað út frá hleðslutæki fyrir lyftara. Engin merki fundust um íkveikju eða gáleysi með eldhvetjandi efni. Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Snorri hefur samúð með ráðherra Ólíklegt er að það takist að klára umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við ESB í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gera fjarveru forsætisráðherra ítrekað að umræðunefni. Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Hækkandi olíuverð geti kynt undir verðbólgu Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að hátt olíuverð á heimsvísu gæti aukið verðbólgu hér á landi. Mögulega komi það til með að hafa áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku. Fyrir 29 mínútumÍÞRÓTTIR Formúla 1 Nýtt Formúlu 1 tímabil hafið Um helgina hófst nýtt tímabil í Formúlu 1 kappakstrinum í Ástralíu. Miklar breytingar hafa verið gerðar á bílum og nýtt lið mætt til leiks. Bragi Þórðarson og Pétur Jóhann Sigfússon spáðu í spilin á Sportrásinni á Rás 2. Fyrir 38 mínútumÍÞRÓTTIR EM karla í handbolta 2026 86,8% landsmanna ánægðir með útsendingar RÚV frá EM í handbolta Mikill meirihluti landsmanna voru ánægðir með útsendingar og umfjöllun RÚV frá nýliðnu Evrópumóti karlalandsliða í handbolta. Þetta segja niðustöður úr rannsókn Gallup. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Hvers vegna eru bestu liðin svona miklu betri en næstbestu liðin? Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hóf leik í undankeppni heimsmeistaramótsins í síðustu viku. Andstæðingarnir voru heimsmeistararnir og Evrópumeistararnir. Adda Baldursdóttir og Albert Ingason rýndu í leikina og stöðuna á Sportrásinni á Rás 2. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra Arna datt í lokabeygjunni — „Ég var að reyna að vera svolítið aggressív“ Arna Sigríður Albertsdóttir datt í lokabeygjunni í sprettgöngunni sem hún keppti í á Vetrarólympíumótinu í morgun. Það hafði mikil áhrif á tímann hennar en hún varð í 19. sæti af 19 keppendum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fundar með úkraínskum lækni sem vinnur við þjónustustörf Forstjóri Landspítala segir að fréttir af úkraínskum lækni, sem fær ekki vinnu á Íslandi í samræmi við menntun, bendi til að nauðsynlegt sé að bæta ferlið við móttöku erlends heilbrigðisstarfsfólks. Hann hefur boðað lækninn á fund við sig. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Nýir skattar á orkumannvirki gætu lent á almennum notendum Nýir fasteignaskattar á orkumannvirki gætu hækkað raforkuverð að mati nokkurra orkufyrirtækja. Stóriðjan er varin með langtímasamningum og í fyrstu gæti hækkunin lent á almenningi og smærri fyrirtækjum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hlutabréfaverð í Icelandair rýkur upp Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðmæti hlutabréfa í Icelandair hefur hækkað um tæp fimmtán prósent í morgun. Fram að því hafði verð þeirra lækkað jafnt og þétt síðustu daga, eftir að stríð hófst milli Bandaríkjanna og Ísraels annars vegar og Írans hins vegar. Olíuverð hækkaði mjög á heimsmörkuðum eftir það. Olíuverð hefur lækkað mikið í morgun eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að stríðið við Íran myndi ekki vara lengi enn. Gengi hlutabréfa í Icelandair stendur í 0,81 þegar þetta er skrifað og hefur ekki verið svo hátt í mánuð. Lægst fór það í 0,70 á föstudag. Þotur Icelandair á Akureyrarflugvelli á dögunum. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Öskudagar U2 U2 sendi öllum að óvörum frá sér 6 laga plötu á öskudag sem heitir Days of Ash og þar sem þeir syngja um strið og frið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vilja að Hringvegurinn nái inn á Vestfirði Vestfirðir verða ekki lengur eini landshlutinn sem Hringvegurinn nær ekki til ef tillögur starfshóps á vegum innviðaráðherra ná fram að ganga. Hópurinn vill að Djúpvegur og Vestfjarðavegur verði hluti Hringvegarins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ekki farið fram á gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra fór ekki fram á gæsluvarðhald yfir þeim sem hafa stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn á kynferðisbroti á Akureyri um helgina. Yfirmaður rannsóknardeildar segir þeim hafa verið sleppt að lokinni skýrslutöku. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Storytel braut ekki af sér með Sönnum íslenskum sakamálum Dómari sýknaði hljóðbókaútgáfu af fimm milljóna kröfu kvikmyndaframleiðanda vegna útgáfu þátta undir heitinu Sönn íslensk sakamál. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Klifur Í kvöld: Íslandsmótið í klifri Íslandsmeistaramótið í grjótglímu fer fram í íþróttamiðstöð Bjarkar í Hafnafirði í dag. Sýnt verður beint frá keppninni á RÚV 2. Bein útsending frá Íslandsmeistaramóti kvenna hefst klukkan 17:50 og klukkan 20:00 er komið að körlunum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Ferðaveður getur víða orðið slæmt á morgun Brynjólfur Þór Guðmundsson Hríðarveður gæti sett strik í reikninginn hjá þeim sem ætla að fara á milli staða á morgun. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á að í fyrramálið verður blint og erfið akstursskilyrði í norðanhríð á fjallvegum á Vestfjörðum, til dæmis á Þröskuldum. Sömuleiðis verður hríð austantil á heiðum, og eru Fjarðarheiði og Fagridalur tiltekin sérstaklega. „Svo bætast flestar heiðar einnig við á norðanverðu landinu síðdegis á morgun,“ segir í ábendingu Daníels Þorlákssonar veðurfræðings. Það á til dæmis við um Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Bílar á ferð á Fjarðarheiði. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Á leiðinni heim til Íslands eftir erfiðar nætur í Barein Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir og sonur hennar eru á leið í flug frá Riyadh í Sádí Arabíu í dag. Hún hefur búið í Barein síðastliðin 14 ár. Hún segir undanfarnar nætur hafa verið hræðilegar og að eldflaugum og sprengjum frá Íran hafi rignt yfir eyjuna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Skólastjóri hverfur til annarra starfa eftir 4 milljóna úttekt á stjórnunarháttum Skólastjóri í Víðistaðaskóla hverfur til annarra starfa hjá Hafnarfjarðarbæ eftir að starfsfólk gerði alvarlegar athugasemdir við störf hennar í nóvember. Þetta er í annað sinn sem skólastjórinn hrökklast frá störfum vegna kvartana starfsfólks. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla hefur beitt rafbyssum ellefu sinnum Brynjólfur Þór Guðmundsson Á fyrstu sextán mánuðunum eftir að lögregla fékk heimild til að nota rafbyssur beittu lögreglumenn slíkum tækjum ellefu sinnum gegn mönnum við handtöku. Þar að auki drógu lögreglumenn slík tæki upp eða ógnuðu meintum brotamanni með þeim 100 sinnum. Þetta kemur fram í nýrri ársfjórðungsskýrslu ríkislögreglustjóra. Mest var um að lögreglumenn drægju rafbyssurnar úr slíðrum sínum á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs, öðrum heila ársfjórðungnum eftir að notkun þeirra var leyfð. Mest var um að lögreglumenn beittu þeim á haustmánuðum, fjórum sinnum á þriðja ársfjórðungi síðasta árs. Lögregla fékk heimild til beitingar tækjanna í september 2024. RÚV / Fréttagrafík/Kristrún Eyjólfsdóttir Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Minningar og mörg handtök í húsinu sem þarf að rífa Hafist var handa við að rífa ónýt íbúðarhús við Mánagötu og Mánagerði í Grindavík í gær. Fyrrum eigandi eins þeirra segir eftirsjá að húsinu. „Þó að þetta sé dauður hlutur þá er bara allt of mikið af minningum þarna,“ segir Ingibjörg Reynisdóttir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fá að draga sjöundadagsaðventista og Eden fyrir dóm vegna malarnáms Héraðsdómur Reykjavíkur verður að taka stefnu 21 sóknarbarns í Kirkju sjöunda dags aðventista gegn trúfélagi sínu og malarnámsfélagi í eigu tveggja sóknarbarna til efnislegrar meðferðar. Deilt er um samning vegna malarnáms fyrir Þýskalandsmarkað. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Ólympíumót fatlaðra Arna Sigríður í 19. sæti í sprettgöngunni og komst ekki áfram Arna Sigríður Albertsdóttir keppti í sinni fyrstu grein á Vetrarólympíumóti fatlaðra í morgun. Hún var þá ein 19 keppenda í sitjandi sprettgöngu og endaði í 19. sæti. Seinni grein hennar á mótinu er strax á morgun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fleiri konur mæta í krabbameinsskimun en áður Brynjólfur Þór Guðmundsson Konum sem mæta í skimun fyrir brjósta- og leghálskrabbameini hefur fjölgað mikið síðustu ár. Í fyrra mættu 65 prósent kvenna í skimun fyrir brjóstakrabbameini og hafði hlutfallið þá hækkað um níu prósentustig frá 2023. Á sama árabili fjölgaði konum sem létu skima sig fyrir leghálskrabbameini úr 61 prósenti í 70 prósent. Samhæfingarstöð krabbameinsskimana hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins stefnir að því að minnst 75 prósent kvenna taki þátt í slíkum könnunum ár hvert. Tæki og tól til krabbameinsskimunar. RÚV / Guðmundur Bergkvist Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Aukin umræða um Evrópusambandið eykur andstöðu Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir enga einhlíta skýringu á vaxandi andstöðu gegn aðild að Evrópusambandinu meðal félagsmanna samtakanna. Aukin umræða um ESB síðustu ár veki neikvæð viðbrögð. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Lego hefur aldrei hagnast jafn mikið Brynjólfur Þór Guðmundsson Danski leikfangaframleiðandinn Lego hagnaðist um 16,7 milljarða danskra króna, andvirði 325 milljarða