Innlent | mbl | 9.3.2026 | 14:05 Vonast til þess að efla samvinnu um farsæld barna Eitt markmiða Farsældarvikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum í átt að farsæld þeirra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Fyrsta sameiginlega farsældarvika höfuðborgarsvæðisins, sem miðar að því að efla farsæld barna og styrkja samvinnu ólíkra kerfa, hefst í dag og mun standa yfir fram á föstudag. Markmið hennar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum, efla samvinnu kerfa í kringum börn og minna á að hvert barn á sinn tengilið sem getur kallað eftir samræmdum stuðningi þegar þörf er á, að því er fram kemur í tilkynningu frá Farsældarráði höfuðborgarsvæðisins . Að vikunni standa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólar og íþróttahreyfingin. Farsældarvikan stendur yfir 9.-13. mars. mbl.is/Eyþór Heilsugæslan með rafræn erindi Farsældarvikan er fyrsta sameiginlega aðgerð Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins sem stofnað var síðastliðið haust, en um er að ræða samstarfsverkefni allra helstu kerfa sem þjónusta börn á höfuðborgarsvæðinu. Fjölbreyttar vinnusmiðjur, fræðsluerindi og kynningar munu fara fram í vikunni ýmist fyrir starfsfólk, foreldra eða börn um allt höfuðborgarsvæðið. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins mun í bjóða upp á stutt hádegiserindi er varða farsæld barna, svo sem skjánotkun, tengsl og málþroska, sem verða öllum opin og nálgast má hér . „Von Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins er að Farsældarvikan styrki enn frekar samvinnu á svæðinu,“ segir í tilkynningu frá Farsældarráði höfuðborgarsvæðisins. „Þegar ólík kerfi tala saman, deila ábyrgð og vinna samkvæmt sameiginlegu verklagi er betur hægt að tryggja að börn fái réttan stuðning á réttum tíma.“ Fjölbreytt dagskrá á vegum sveitarfélaganna Hér að neðan má nálgast áherslur sveitarfélaganna í Farsældarvikunni. Farsældarvikudagskrá einstakra sveitarfélaga Í Reykjavík verða vinnusmiðjur tengiliða um farsæld og kynningar á grunnstoðum farsældar í gegnum samtal, myndbönd og fræðslu. Þá verður áhersla lögð á fjölmenningarlega farsæld og það hvernig megi betur ná til jaðarsettra hópa. Í Kópavogi verður boðið upp á fræðslufundi um farsæld fyrir forsjáraðila og starfsfólk sem starfar með börnum í bænum. Tengiliðir í skólum munu einnig vekja athygli barna, forsjáraðila og samstarfsfólks á farsæld barna með fjölbreyttum leiðum. Í Hafnarfirði verður athyglinni beint að því að kynna úrræði sveitarfélagsins og tengiliði farsældar. Hafnarfjarðarbær hefur lagt áherslu á tengiliði á þessu skólaári og unnið að því að efla þá í starfi. Fjölbreyttar kynningar verða í skólunum þar sem nemendur, foreldrar og starfsfólk fær kynningu á hlutverki tengiliðar farsældar. Sveitarfélagið hefur látið útbúa veggspjöld og bækling sem lögð verður áhersla á að hengja upp og dreifa. Í Garðabæ verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir starfsfólk bæjarins, foreldra og börn. Haldin verður vinnusmiðja með tengiliðum og málstjórum farsældarinnar og boðið verður upp á rafræna fræðslu og upprifjun um farsældarlögin fyrir allt starfsfólk sem vinnur með börnum. Auk þess verður foreldrum boðið upp á kynningu á farsældarlögunum og samþættingu þjónustu. Leik- og grunnskólar munu einnig vekja athygli á farsæld barna með ýmsum hætti og sinna fræðslu til nemenda, foreldra og starfsfólks. Víða verður unnið með börnum á þeirra forsendum, meðal annars með því að sýna BOFS-fræðslumyndbönd og nota Barnasáttmálann til að gera grein fyrir því hvað farsæld þýðir í daglegu lífi. Í Mosfellsbæ leggja tengiliðir í öllum skólum sérstaka áherslu á að kynna verklagið fyrir samstarfsfólki í litlum hópum og efla þannig sameiginlega ábyrgð innan skólasamfélagsins. Í Seltjarnarnesbæ verður lögð áhersla á fræðslu og vitundarvakningu í innra starfi bæjarins og þá fara fram sértæk námskeið á vegum barnaverndarþjónustu. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sést strax í næstu verðbólgumælingum Arsenal leiðir kapphlaupið Vonast til þess að efla samvinnu um farsæld barna Fréttaskýring: Vinur er eitt og samherji annað Snorri enn að vega og meta hlutina Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sá handtekni starfsmaður verktaka Missti stjórn á bílnum vegna hálku Vilja rannsókn á snjóflóðunum Færð getur spillst hratt Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Sést strax í næstu verðbólgumælingum Arsenal leiðir kapphlaupið Vonast til þess að efla samvinnu um farsæld barna Fréttaskýring: Vinur er eitt og samherji annað Snorri enn að vega og meta hlutina Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Færð getur spillst hratt Verið er að búa til hærra gólf fyrir hækkun bóta Alltof margir fengið rangar rukkanir Feimni við að leggja fyrir heimanám Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason